Fréttablaðið - 20.03.2010, Blaðsíða 104
76 20. mars 2010 LAUGARDAGUR
FÓTBOLTI Arsene Wenger óttast
að þrálát meiðsli varnarmanns-
ins Williams Gallas skemmi
fyrir viðræðum leikmannsins um
nýjan samning. Roma hefur mik-
inn áhuga á Gallas sem verður
samningslaus í sumar.
„Gallas verður ekki með um
helgina. Þessi meiðsli virðast
endalaus og það er áhyggjuefni.
Sol Campbell og Mikaël Silvestre
verða að vera reiðubúnir,“ sagði
Wenger.
Wenger segir þó að Frakkar
þurfi engar áhyggjur að hafa
varðandi HM í sumar, Gallas
verði tilbúinn í slaginn þá.
Góðu fréttirnar fyrir Arsenal
eru þær að miðjumennirnir Cesc
Fabregas, Tomas Rosicky og Alex
Song verða allir tilbúnir í slaginn
fyrir leikinn gegn West Ham í
dag. - egm
Samningar Williams Gallas:
Meiðsli hamla
viðræðum
WILLIAM GALLAS Gæti skipt um félag í
sumar. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Ryan Shawcross, varn-
armaður Stoke, hefur enn ekki
talað við Aaron Ramsey hjá
Arsenal eftir tæklinguna sem
varð til þess að Ramsey fót-
brotnaði.
Shawcross hefur reynt að
biðja Ramsey afsökunar en
án árangurs. Shawcross fékk
þriggja leikja bann en Ramsey
getur hins vegar ekki leikið
fyrr en á næsta tímabili.
„Ég hef reynt að ná í hann. Ég
hef hringt í hann og skilið eftir
skilaboð og einnig sent honum
textaskilaboð. Ég hef ekkert
fengið til baka en það er allt í
hans höndum,“ segir Shawcross.
„Mun ég hitta hann? Það gæti
gerst í framtíðinni en Aaron
ræður hvort af því verður.“
Shawcross fór grátandi af
velli eftir atvikið en hann segist
ekki ætla að breyta sínum leik-
stíl þrátt fyrir það sem gerðist.
- egm
Aaron Ramsey reiður:
Svarar ekki
Shawcross
LÍÐUR ILLA Shawcross var miður sín er
hann fótbraut Ramsey.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Titilvörn Evrópumeist-
ara Barcelona í átta liða úrslit-
um Meistaradeildarinnar verður
gegn Arsenal. Dregið var í Sviss
í gær. Manchester United mun
mæta Bayern München en þessi
lið mættust í einum eftirminni-
legasta úrslitaleik í sögu Meist-
aradeildarinnar árið 1999.
Ef United tekst að komast
áfram mun liðið leika við sigur-
vegarana úr franska slagnum,
Lyon-Bordeaux, í undanúrslitum.
Sigurvegarinn úr viðureign Bar-
celona og Arsenal mætir annað-
hvort Inter eða CSKA Moskvu.
Samkvæmt veðbönkum eru
Börsungar sigurstranglegast-
ir í keppninni en þeir unnu Ars-
enal í úrslitaleik hennar fyrir
fjórum árum. Txiki Begiristain,
yfirmaður íþróttamála hjá Bar-
celona, segir að áhorfendum sé
tryggð skemmtun í leikjunum
gegn Arsene Wenger og læri-
sveinum hans.
„Þetta verður ein fallegasta
viðureign fótboltans. Þetta eru
tvö lið sem leika frábæran og
áhorfendavænan bolta,“ sagði
Begiristain.
Næstsigurstranglegastir eru
rauðu djöflarnir frá Manchester.
„Þegar horft er á fyrri viðureign-
ir þessara liða sést að þetta verð-
ur mjög erfitt fyrir okkur,“ segir
Sir Alex en Bayern hefur haft
betur þegar skoðaðar eru inn-
byrðis viðureignir liðanna síð-
ustu ár. „Vonandi verða allir sem
við þurfum á að halda heilir fyrir
þennan leik. Ef svo er eigum við
góða möguleika.“
Karl-Heinz Rummenigge,
stjórnarformaður þýska liðsins,
segir að hans menn eigi erfitt
en skemmtilegt verkefni fyrir
höndum.
„Við þurfum að eiga okkar allra
besta leik til að komast áfram.
Manchester United er sigur-
stranglegra liðið enda eitt það
allra besta. En það gerir verk-
efnið skemmtilegra, að reyna að
slá út þá sigurstranglegri,“ sagði
Rummenigge.
Ítalíumeistarar Inter eru tald-
ir eiga auðveldasta verkefnið en
þeir leika gegn CSKA Moskvu.
„Það væri rangt að vanmeta
CSKA af tveimur ástæðum. Í
fyrsta lagi er tímabilið nýhafið
hjá þeim og þeir eru ferskari en
önnur lið. Þá spila þeir á gervi-
grasi og því er erfiðara fyrir þau
lið sem búa yfir mikilli tækni að
hafa stjórn á boltanum,“ sagði
Ernesto Paolillo, stjórnarmað-
ur hjá Inter, sem var þó ánægð-
ur með að losna við Manchester
United og Barcelona á þessu stigi
keppninnar. elvargeir@frettabladid.is
Hágæðaskemmtun tryggð
Arsenal og Barcelona munu mætast í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu
en dregið var í gær. Manchester United mun leika gegn þýska liðinu FC Bayern.
HENRY OG MESSI Fagna eftir sigur Barcelona í úrslitaleiknum í fyrra. Henry þekkir
Arsenal vel enda var hann áður fyrr skærasta stjarna liðsins. NORDICPHOTOS/GETTY
MEISTARADEILDIN - DRÁTTUR
Átta liða úrslit:
Lyon - Bordeaux
FC Bayern - Manchester United
Arsenal - Barcelona
Inter - CSKA Moskva
Undanúrslit:
Arsenal/Barcelona - Inter/CSKA
FC Bayern/Man Utd - Lyon/Bordaux
FÓTBOLTI Dregið var í átta liða
úrslit Evrópudeildarinnar í gær.
Liverpool mætir þar Benfica
sem trónir á toppi portúgölsku
deildarinnar. Ef Liverpool nær
sigri úr þeirri viðureign mun það
mæta sigurvegaranum úr rimmu
spænsku liðanna Valencia og
Atletico Madrid í undanúrslitum.
Rafael Benítez, stjóri Liver-
pool, segir að sitt lið eigi erf-
itt verkefni fyrir höndum.
„Við vitum að þetta er gott
lið og höfum mætt því áður
í Meistaradeildinni. Það
á góða stuðningsmenn og
þetta verður krefjandi,“
sagði Benítez eftir
dráttinn.
„Það er auð-
vitað mikilvægt
að seinni leik-
urinn sé á okkar heimavelli. Við
vitum að við þurfum að spila vel
á útivelli og vera öflugir heima.
Þeir hafa leikið áður á Anfield og
verða kannski ekki eins hræddir
og önnur lið,“ sagði Benítez.
Hann vildi ekkert tjá sig um
möguleikann á því að mæta
sínu gamla félagi, Valencia, í
undanúrslitum. „Eins og þið
blaðamenn ættuð að vita
þá tek ég alltaf einn leik í
einu. Við horfum bara til
leiksins gegn Benfica.
Þeir eru á góðu skriði og
þetta verður erfitt.“
Fulham mætir þýska
liðinu Wolfsburg í
átta liða úrslit-
unum.
- egm
Liverpool fær Benfica í Evrópudeildinni:
Eigum erfiða leiki
fyrir höndum
FORSÍÐAN Arnar er flottur á forsíðu
gríska blaðsins Sport-day.
FÓTBOLTI Arnar Grétarsson, spilandi
aðstoðarþjálfari Breiðabliks, hefur
verið orðaður við stöðu yfirmanns
íþróttamála hjá gríska stórliðinu
AEK Aþenu um nokkurt skeið. Gríska
íþróttablaðið Sport-day slær málinu
upp á forsíðu sinni og segir að Arnar
muni samkvæmt heimildum sínum fara
til Grikklands í komandi viku og skrifa
undir samning.
Arnar vildi hvorki játa né neita þess-
um fréttum þegar Fréttablaðið hafði
samband við hann. „Ég kýs að tjá mig
ekkert um þetta mál við fjölmiðla,“ sagði
Arnar.
Blaðið segir að Arnar hafi hitt Stavr-
os Adamidis, stjórnarformann AEK, í
Lundúnum á dögunum og þeir rætt þessi
mál. Arnar lék með AEK á árunum 1997-
2000. - egm
Spilandi aðstoðarþjálfari Blika í grískum fjölmiðlum:
Arnar á leið í AEK?
Laugavegi 13, 101 Reykjavík
sími 515 5800, rannis@rannis.is
www.rannis.is
Vakin er athygli á breyttum umsóknarfresti í Rannsóknasjóð fyrir styrkárið 2011.
Nýr umsóknarfrestur verður þriðjudaginn 1. júní 2010.
Umsóknarfresturinn 1. október fellur niður við breytinguna.
Rannsóknasjóður
-breyttur umsóknarfrestur
Athugið!