Fréttablaðið - 20.03.2010, Blaðsíða 39
Hjálparstarf kirkjunnar 3
Mikael R. Ólafsson var í hópi
íslenskra björgunarsveitarmanna
sem voru með þeim fyrstu sem
komu til starfa eftir jarðskjálftann
mikla á Haítí 12. janúar.
Það vakti athygli hve fljótir þeir
voru á vettvang.
Við vorum með allt klárt
Síðastliðin 10 ár hefur
rústabjörgunarsveitin þjálfað sig
og undirbúningur miðast við að
geta verið klár á innan við fjórum
klukkustundum. Allur búnaður er
í eigu björgunarsveitanna sem
standa að þessari sérsveit og
stendur tilbúinn fyrir útkall,
vigtaður og skráður. Einnig eru
menn alltaf með persónulega
búnaðinn sinn að mestu leyti
kláran til útkalls. Í þessu tilfelli
voru það einnig skjót viðbrögð
utanríkisráðuneytisins sem vógu
þungt. Sveitin, sem samanstendur
af 30 björgunarmönnum, hefur
hlotið vottun af hálfu Sameinuðu
þjóðanna sem rústabjörgunarsveit
af miðlungsstærð og er þjálfuð
samkvæmt stöðlum þeirra. Allir
félagar í íslensku alþjóðasveitinni
eru einnig virkir félagar í björgunar-
sveitum Slysavarnarfélagsins
Lands bjargar, starfa á Landspíta l-
anum eða hjá Slökkviliði
höfuðborgarsvæðisins.
Auðveldara að telja hús sem stóðu
Við lentum 13. janúar um klukkan
16.00 í Port-au-Prince og það tók
okkur fram í myrkur að útvega
ökutæki og ná sambandi við
almannavarnir staðarins. Okkur
var úthlutað svæði á íþrótta-
leikvangi til að setja upp búðir og
héldum við þangað í svarta myrkri
og reyndar aftur til baka á flug-
völlinn þar sem við settum á
endanum upp búðirnar. Þrátt fyrir
að hafa séð á leiðinni skemmd hús
og sum hrunin gerðum við okkur
í raun ekki grein fyrir þeim
hrikalegu aðstæðum sem blöstu
við fyrr en næsta dag í björtu.
Það sem sló mig mest í fyrstu var
þögnin sem var svo ótrúlega mikil
þegar maður hugsar til þess að við
vorum að lenda í þriggja milljóna
manna borg og það var algjör þögn.
Það var ekki fyrr en næsta dag
þegar við héldum inn í borgina
í fyrsta verkefnið okkar, sem var
í nýlegum stórmarkaði sem hafði
verið fjórar hæðir og var nú ein,
að maður gerði gerði sér grein fyrir
þessari gríðarlegu eyðileggingu og
hrikalegu aðstæðum. Í raun var
auðveldara að telja þau hús sem
voru uppistandandi en þau sem
höfðu hrunið. Það er erfitt að lýsa
því hvernig manni líður í svona
aðstæðum en fyrsta hugsunin er
að byrja að gera það sem maður
hefur þjálfað sig í að gera varðandi
björgun úr rústum. Fókusinn er
í raun allur á verkefninu og aðrar
tilfinningar og úrvinnsla þeirra
bíða þar til verkefninu á staðnum
er lokið.
Fólkið frábært, vandamálin
tæknilegs eðlis
Við vorum ein fyrsta alþjóðlega
sveitin á vettvang og almanna-
varnir á staðnum voru rétt að ná
yfirsýn yfir skaðasvæðið.
Fólk var mjög þakklátt og tilbúið
að aðstoða okkur í hvívetna
þannig að erfiðleikarnir voru
eingöngu tæknilegs eðlis.
Vorum alveg sjálfbærir
Sveitin kemur með allan
björgunarbúnað með sér og á að
geta starfað í allt að 10 daga án
utanaðkomandi aðstoðar nema
hvað varðar eldsneyti. Það gekk
upp hjá okkur en sumar sveitir
áttu í miklum erfiðleikum með að
útvega sér eldsneyti.
Æðruleysi fólksins sem komst af
og að fá að fylgjast með því
hvernig lífið hélt áfram.
Maður fylgist með fréttum af
svæðinu til að sjá hvernig
uppbyggingin gengur. Þegar heim
er komið hefst mikil rýnivinna þar
sem sveitin fer ofan í saumana
á öllum þáttum útkallsins og við
það er maður einnig að vinna úr
tilfinningum sínum. Það má líka
segja að eftir svona útkall þar sem
hlutirnir ganga upp er maður
stoltur af því að hafa verið
þátttakandi í svona viðamiklum,
vel heppnuðum björgunar-
aðgerðum og það hjálpar manni að
takast á við það sem blasti við. En
sterkasta minningin er hvað fólkið
sem komst af var æðrulaust og það
að fá að fylgjast með því hvernig
lífið hélt áfram.
Áberandi betra ástand með
hjálp kirkjunnar – hvet fólk til
að vera með
Þegar við komum á staði þar
sem fólk hafði safnast saman var
áberandi betra ástand þar sem við
sáum fólk á vegum kirknanna á
Haítí að störfum. Það er ljóst að
þörfin á utanaðkomandi aðstoð er
afar brýn og ég hvet fólk til að
taka þátt í söfnun Hjálparstarfsins
fyrir hjálpar- og uppbyggingarstarf
á Haítí.
Algjör þögn í þriggja milljóna manna borg
HEILDARLAUSN UMSLAGS
VIÐ GETUM AÐSTOÐAÐ ÞIG ALLA LEIÐ.
www.umslag. is
Mikael á vettvangi