Fréttablaðið - 01.04.2010, Síða 28
„Ég hlakka heldur betur til pásk-
anna þó minnugur þess að gleð-
in kostaði líf Guðs sonar. Maður
skynjar umskiptin svo sterkt á
páskadagsmorgun, eftir að hafa
gengið í gegnum texta Biblíunn-
ar um síðustu kvöldmáltíðina og
píslarsöguna, því þá kemur upp-
risuboðskapurinn og hrein unun
að finna gleði taka völd á ný við
það stórkostlega undur,“ segir
séra Guðmundur Karl Brynjars-
son, sóknarprestur í Lindakirkju,
þar sem heillandi dagskrá verður í
hávegum höfð yfir páskadagana.
Séra Guðmundur Karl segir mik-
ilvægt að taka sér tíma á föstu-
daginn langa til að hugsa um þann
atburð þegar Jesús tók á sig syndir
heimsins og dó fyrir þær á kross-
inum.
„Ég minnist þess að vera í pöss-
un á föstudaginn langa hjá ömmu.
Hún var nú ekki annáluð kirkju-
kona en henni var mikilvægt að
ég gerði nákvæmlega ekkert þann
daginn. Jújú, allt í lagi, ég mátti
svosem fara út, en ekki til þess að
leika mér. Önnur minning er um
mikla prjónakonu sem tók ekki upp
prjónaskapinn fyrr en þrjú síðdeg-
is, en sagði þá: „Jæja, þá ættu þessi
ósköp að vera yfirstaðin“ og hóf að
prjóna á ný, en þá hafði Kristur
gefið upp öndina.
Þessum alvarleika föstudagsins
langa höfum við nú tapað, en flestir
eru enn meðvitaðir um mesta sorg-
ardag sögunnar og fallegt að sjá
almenna hluttekningu sem felst
í að flagga í hálfa stöng til minn-
ingar um dauða Krists,“ segir séra
Guðmundur Karl sem nú heldur
páska öðru sinni í Lindakirkju, en
kirkjustarfið var í mun þrengri
húsakosti á meðan kirkjan var í
byggingu.
„Nú getum við tekið mót fleirum
í máltíð Drottins á skírdag, en þá
setjast kirkjugestir við langborð í
stað hefðbundinnar altarisgöngu
og líkami Krists gengur hringinn
manna á milli. Í stað oblátu hef
ég venjulegan brauðhleif, en við
notum líka stundum norskar lefsur,
sem eru prýðilegt altarisbrauð, og
einnig flatkökur eins og gert var á
kristnihátíðinni á Þingvöllum. Með
tímanum vonast ég til að við getum
bakað okkar eigið altarisbrauð í
kirkjunni,“ segir séra Guðmund-
ur Karl sem temur sér hóf í páska-
eggjaáti, en leggur heimilisfólkinu
lið við þeirra páskaegg.
„Ég tek matarvenjur páskanna
ekki hátíðlegar svo að ég fasta ekki
né borða fisk á föstudaginn langa.
Ég er heldur aldrei með stórsteik-
ur þann daginn, meðvitaður um að
Kristur fékk hvorki vott né þurrt
á krossinum, utan þess að varir
hans voru vættar með ediki,“ segir
séra Guðmundur Karl sem bíður í
ofvæni eftir morgunmessu páska-
dags sem hefst klukkan 8.
„Mér finnst ástæða til að fagna
því sem gerðist í dagrenningu að
morgni. Við létum berast að það
yrði morgunverður eftir messu
á páskum í fyrra og viti menn;
kirkjugestir komu færandi hendi
með nýbakaðar brauðbollur, hnall-
þórur og reykta laxinn úr kistunni.
Það fór ekki á milli mála að hátíð
ríkti í húsi Guðs og mikil gleði að
taka daginn snemma í kirkjunni,“
segir séra Guðmundur Karl sem
ætlar að halda kyrru fyrir í faðmi
fjölskyldunnar um páskana.
„Punkturinn yfir i-ið verður
gospelkvöldvaka annan í páskum
en þá má búast við þéttsetnum
kirkjubekkjum. Við búum svo vel
að eiga tvær frábærar söngkonur
við kirkjudyrnar; Áslaugu Helgu
Hálfdánardóttur blússöngkonu
og Regínu Ósk Óskarsdóttur sem
frá fyrstu tíð hefur sýnt kirkjunni
mikinn velvilja. Þær ætla að syngja
ásamt fleirum undir stjórn Óskars
Einarssonar tónlistarstjóra okkar,
sem margir þekkja úr Fíladelfíu,
og skapar galdra og eyrnakonfekt
úr öllum tónlistarviðburðum sem
hann kemur nálægt.“
thordis@frettabladid.is
Gleðin kostaði líf Krists
Um páska sveiflast vitund manna milli sorgar og gleði vegna atburða sem aldrei gleymast um Jesúm Krist,
þjáningu hans, dauða og upprisu. Séra Guðmundur Karl Brynjarsson man tímana tvenna á páskum.
Guðmundur Karl Brynjarsson er sóknarprestur í Lindakirkju í Kópavogi, en þar verður
mikið um dýrðir í dymbilvikunni og um páskana. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ÞÓRBERGSSETUR á Hala í Suðursveit verður opið
alla páskana frá 9 til 20 til þriðjudagsins 6. mars. Opið er
inn á sýningar og hægt að fá leiðsögn um þær ef óskað er.
Fagnaðargjörningur verður í turni Hallgrímskirkju
klukkan 15 í dag er nýtt tónverk verður frumflutt.
Verk fyrir kirkjuklukkur og lúðra hljómar í turni
Hallgrímskirkju í dag eftir þá Viktor Orra Árna-
son og Hjört Ingva Jóhannesson úr hljómsveitinni
Hjaltalín og Guðmund Stein Gunnarsson og Inga
Garðar Erlendsson úr Samtökum listrænt ágengra
tónsmiða umhverfis Reykjavík, S.L.Á.T.U.R.
„Þetta verður magnað,“ segir Viktor Orri og
rekur hugmynd að gjörningnum til Melkorku
Ólafsdóttur, flautuleikara og umsjónarmanns
listavöku ungs fólks. Hann segir höfundana fjóra
semja verkið í félagi en þurfa ekki að skrifa út
hverja einustu nótu því flytjendurnir séu flin-
kir. „Við getum alveg treyst þeim til að leika eitt-
hvað af fingrum fram,“ segir hann og á þar við
Ellu Völu Ármannsdóttur sem leikur á horn, Grím
Helgason sem blæs í klarinett, Ara Hróðmarsson
básúnuleikara og Vilhjálm Sigurðsson á trompet.
Hjörtur Ingvi spilar á kirkjuklukkurnar og það
hlýtur að vera erfitt að æfa sig á þær, án þess að
allt komist í uppnám á holtinu. Hann gerir þó ekk-
ert úr því vandamáli. „Ég spila á klukkurnar í
gegnum lítið hljómborð sem er neðst í kirkjunni.
Það nær yfir tvær áttundir og gefur marga mögu-
leika. Venjulega fer það í gang sjálfkrafa þegar
til er ætlast en svo er líka hægt að spila beint á
það og það ætla ég að gera. Þannig að þetta verð-
ur ekkert afrek. Það er bara í útlöndum og litlum,
íslenskum sveitakirkjum sem hringjarinn togar í
spotta og það eru heilmikil vísindi bak við svoleið-
is spilamennsku.“
En á fólk að standa úti þegar það hlustar? „Nei,
þá mundu klukkurnar yfirgnæfa allt. Því er plan-
ið að hafa hljóðfæraleikarana efst í stigaganginum
og áheyrendur þar fyrir neðan. Þá ætti að koma
gott jafnvægi í flutninginn.“
- gun
Leikið á klukkur og lúðra
Viktor Orri hlakkar til að taka þátt í hinum listræna fagnaðar-
gjörningi klukkan þrjú í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HB FASTEIGNIR
Kjarrivaxnar útsýnislóðir í
Hvalfirði
Til sölu eða leigu stórar, fall-
egar lóðir með frábæru útsýni
yfir Hval örð. Lóðirnar eru í
skjólgóðri, kjarrivaxinni hlíð
sem snýr mót suðri í landi
Kalastaða, 55 km frá Reykjavík.
Tilbúnar l a endingar.
Fjölbrey afþreying í nágren-