Fréttablaðið - 01.04.2010, Síða 42

Fréttablaðið - 01.04.2010, Síða 42
30 1. apríl 2010 FIMMTUDAGUR menning@frettabladid.is Leikhús ★★★ Eilíf óhamingja eftir Andra Snæ Magnason og Þorleif Örn Arnarson Leikstjóri: Þorleifur Örn Arnarson. Leikmynd: Drífa Freyju-Ármanns- dóttir. Búningar: Judith Amalía Jóhannsdóttir. Lýsing: Kjartan Þórisson. Dramatúrg: Símon Birg- isson. Samstarfsverkefni Lifandi leikhúss og Borgarleikhússins. Tvennt vekur strax athygli við Óhamingjuna eilífu. Hún er sögð bein tilraun til að kanna samtíð sína og hugarfar. Og svo er hún höfundarverk ungs, fyrirgefið, leikstjóra á besta aldri sem er þegar tekinn að marka sér gott orð á einum þróaðasta og kröfu- frekasta leikhúsmarkaði heims í Þýskalandi. Þá er aðkoma Andra Snæs líka athyglisverð: við vitum lítið hvert hann er að fara klyfjað- ur erlendum viðurkenningum fyrir Draumalandsævintýrið. Verkinu velja þeir form á auðu sviði þar sem fjórir millistéttar- menn sitja fyrir svörum í einhvers konar meðferðarprógrammi undir stjórn atferlisfræðings. Vakandi augu upptökutækja vakir yfir þeim og þau virðast sjálfviljug gengin í tilraun sem leitar sannleika um það sem „gerðist“ og í okkar huga er það skýrt: bönnuð lykilorð vekja með þeim kvalir eins og hleypt sé á straumi falli þau í orðræðunni, þau verða í réttlætingum sínum og skýringum að skjótast hjá þeim á leið til „sannleikans“. Yfirheyrslan eins og meðferð- arprógrammið er tekin að verða algeng í smíðum af þessu tagi. Hvers vegna formið er svo ásæk- ið höfundum vekur nokkra spurn- ingu. Viðfangsefnið er sett undir valdboðið, verður að svara. Það er sök þegar frá upphafi, varnar- ræður og afsakanir verða meg- inuppistaðan. Og um leið skapast viss fjarlægð áhorfenda og hinna „seku“. Við erum sett í kviðdóm í huganum. Önnur leið væri að setjast í þeirra raðir, gerningsmannanna: Nótt í Kaupþingi, Fixið í FL etc. Enron-málið hentar þannig sökum þess að það er vandlega rannsak- að. Af efnisatriðum úr Milestone- yfirheyrslum er ljóst að þar verð- ur mikið efni fyrir leikritahöfund: þrjú systkini, hinn laglegi for- stjóri og annar skuggastjóri. Það eru fleiri leiðir færar inn í þessa snúnu fléttu, hrunið. Því er á það bent að þetta form hefur ákveðna hneigð innbyggða. Stjórnandann Matthildi leikur Sólveig Arnarsdóttir af miklum bravúr; loksins sér maður þann víða skala sem hún ræður yfir á sviði, nákvæma stjórn á fasi sem hún stýrir örugglega í styrk, full- komna raddbeitingu í hljóm og stöðu, hvernig hún skákar sér til milli svæða í fjór- eða fimmskipt- um persónuleika. Matthildur er hrunin hið innra þrátt fyrir vald- stöðuna sem hún gegnir. Hún legg- ur áherslu á að hið stóra speglist í hinu smáa, hið opinbera í því sem er prívat, sum sé í einkahögum okkar er hrunið fólgið – við berum ábyrgð öll, hvert með sínum hætti á okkar innra hruni sem skýrir hið stærra. Sjálf er hún klofin vegna mis- beitingar sem birtist okkur snemma og verður um leið ein- hverskonar lykill að meginþætti dramans í verkinu: hver persóna hefur á einkasviði sínu brotið og allt er það tengt kynlífi. Svo langt nær klámvæðingin og skilyrðir bestu menn, rétt eins og þeir átti sig ekki á að í kynlífsofbeldi er falin ein sælubirting valdsefjun- ar rétt eins og valdsefjun og -beit- ing úr skjóli aðstöðu peninga og eigna. Þannig renna grunnskýr- ingar á persónulegri sök niður í klofið á höfundunum. Fórnarlömb hins kynferðislega valds verða svo mörg og misjöfn og þá kölluðu höf- undar og meðsekur dramatúrgur fram margar gamlar klisjur nat- úralismans: vanrækt barn, kona sem hórast á valdastól, hinn hlé- drægi og trausti misyndismaður. Einkum ágerðist þetta er nær dró lyktum. Viðföngin fjögur eru misstór: Atli Rafn sýnir í túlkun kerf- iskallsins og lögfræðingsins þann sem enn er í fullkominni afneitun á sök og talar eins og helstu for- kólfar hins frjálsa markaðar gera enn. Honum er gefinn, ekki síst fyrir færni sakir, langur sólóp- assus í sýningunni sem er hroll- vekjandi í flutningi og sannar enn eina ferðina hvílíkur færleikur Atli er orðinn á sviði. Bæði Sara og Orri standa sig prýðilega, part- ur Guðjóns er minnstur, en í heild má segja að fimmmenningarnir standi þétt um þann uppbrotsstíl sem Þorleifur setur leiknum. Örfá orð um svið: Þorleifur kýs að setja leikinn á svið á oddinum á litla sviði, nýtir þessa tungu nokk- uð á miðsvæði en þó aðallega botn hennar. Fyrir bragðið er sjónar- sviptir í hliðunum, og enn er kallað á að hugað verði að því að takast á við Litla sviðið sem hring, en menn hætti þessu semi-rammasýningum þar inni. Þótt erindið þrjóti sumpart í þessu verki, ætlun höfunda að „við“ finnum okkar „sök“ í stað þess að kenna öðrum um, þá er sviðsetningin og verkið mikillar athygli verð. Þar er gerð tilraun til að takast á við stóru myndina, greina bresti hennar og bakgrunn, hvaða efni eru þar á ferðinni. Þeir sem vilja fylgjast með lifandi leik- húsi ættu því að koma sér á sjóið; innlit bara til þess eins að sjá fimmstjörnu performans hjá Atla og Sólveigu réttlæta heimsóknina. Páll Baldvin Baldvinsson Niðurstaða: Merkileg og spennandi tilraun sem mun ótvírætt kalla fram afstöðu hjá hverjum áhorfanda. Getum við beðið um meira? Íslands óhamingju verður allt … EILÍF ÓHAMINGJA Sólveig Arnarsdóttir og Atli Rafn Sigurðarson í hlutverkum sínum. MYND/GUÐMUNDUR RÚNAR KRISTJÁNSSON „Þau æfðu flutninginn á fimmtu- dagskvöldið var og þetta leit mjög vel út,“ segir Hjálmar Jónsson, prestur við Dómkirkjuna í Reykja- vík. Í stað hefðbundinnar predik- unar í messu á föstudaginn langa munu Þórður Helgason, dósent við Kennaraháskóla Íslands, og Svanhild- ur Kaaber lesa þýðingu Þórðar á sonnettusveig eftir Lisbeth Smedegaard Andersen sem nefnist Nú stillir alla storma hafa og landa. Lisbeth þessi er danskur prestur og rit- höfundur. „Þessi sonnettu- sveigur lýsir píslargöngu Krists og er samin af alveg sérstöku listfengi,“ segir Hjálmar en höfundurinn hefur hlotið mikið lof og viðurkenn- ingar fyrir sonnettusveiginn í heimalandi sínu. Messan á föstu- daginn langa í Dómkirkjunni hefst klukkan 11. - fgg Ljóðalestur í stað predikunar HJÁLMAR JÓNSSON býður upp á ljóða- lestur á föstudaginn langa. Laugarneskirkja kl. 23 Brot úr Passíusálmum Hallgríms Péturssonar og fleiri sálmar eftir hann verða fluttir í Laugarneskirkju í kvöld kl. 23. Flytjendur eru Kirst- ín Erna Blöndal söngkona, Gunn- ar Gunnarsson organisti og Matthí- as Hemstock sem leikur á slagverk. Sálmalögin eru bæði gömul og ný. > Ekki missa af … Hinn margverðlaunaði banda- ríski kvikmyndagerðarmaður Jim Finn verður í forgrunni á kvikmyndakvöldi Kínóklúbbs- ins í Hafnarhúsi í kvöld kl. 20. Sýndar verða myndirnar The Juche Idea (62 mín, 2008), Great Man and Cinema (3:49, 2009) og Dick Cheney in a Cold, Dark Cell (2:30, 2009). Aðgangur er ókeypis. 1 3 5 7 9 2 4 6 8 10 Nemesis - kilja Jo Nesbø Hafmeyjan - kilja Camilla Läckberg Meiri hamingja Tal Ben-Shahar Stóra myndorðabókin Ýmsir höfundar Góða nótt, yndið mitt - kilja Dorothy Koomson Póstkortamorðin - kilja Liza Marklund/J. Patterson Litli prinsinn Antoine de Saint-Exupéry METSÖLULISTI EYMUNDSSON SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í EYMUNDSSON UM LAND ALLT 24.03.10 - 30.03.10 Veröld sem var - kilja Stefan Zweig Risasyrpa - Í grænum sjó kilja - Walt Disney Svörtuloft - kilja Arnaldur Indriðason

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.