Fréttablaðið - 15.04.2010, Blaðsíða 25
EIGNIR
Eignir sjóðsins námu 283,2 milljörðum í árslok saman-
borið við 248,8 milljarða árið áður. Á árinu 2009
greiddu 32.305 sjóðfélagar til sjóðsins og námu
iðgjaldagreiðslur alls 16.313 m.kr. Þá greiddu 7.152
fyrirtæki til sjóðsins vegna starfsmanna sinna.
AFKOMA
Ávöxtun á árinu 2009 var 9,9% og hrein raunávöxtun
1,1%. Á liðnu ári bárust áframhaldandi fréttir af erfiðri
stöðu innlendra fyrirtækja, banka og sparisjóða. Það
hefur leitt til aukinnar niðurfærslu á skuldabréfaeign
sjóðsins og haft áhrif á afkomu hans. Á móti hafa
erlendir hlutabréfamarkaðir tekið við sér og hækkaði
heimsvísitala hlutabréfa um 30% á árinu. Stærstur hluti
eigna lífeyrissjóðsins er í traustum verðbréfum.
FJÁRFESTINGAR
Á árinu 2009 námu kaup á innlendum skuldabréfum
umfram sölu 25.797 m.kr. og kaup innlendra hlutabréfa
umfram sölu nam 742 m.kr. Sala erlendra verðbréfa
umfram kaup nam 1.847 m.kr.
SÉREIGNARDEILD
Alls áttu 40.823 einstaklingar inneignir í árslok 2009
sem nam 6.003 m.kr. Lífeyrisgreiðslur úr séreignardeild
námu 1.011 m.kr. samanborið við 180 m.kr. árið 2008.
Ávöxtun verðbréfaleiðar var 9,9% og hrein raunávöxtun
1,1%. Ávöxtun innlánsleiðar var 11,9% sem samsvarar
3,0% raunávöxtun.
LÆKKUN LÍFEYRISRÉTTINDA OG LÍFEYRISGREIÐSLNA
Tryggingafræðileg athugun miðað við árslok 2009 leiðir
í ljós að heildareignir sjóðsins samanborið við heildar-
skuldbindingar eru neikvæðar um 10,8%. Lög um
starfsemi lífeyrissjóða mæla fyrir um að eignir þeirra
og skuldbindingar til framtíðar þurfi að standast á, þó
heimilt sé að víkja frá því tímabundið. Ljóst er að lag færa
þarf tryggingafræðilega stöðu sjóðsins og endurskoða
lífeyrisréttindi og lífeyrisgreiðslur til lækkunar. Frestun
á því leiðir til ójöfnunar milli greiðandi sjóðfélaga og
lífeyris þega. Stjórn sjóðsins hefur því ákveðið að leggja
til við aðildarsamtök sjóðsins að áunnin lífeyrisréttindi
sjóðfélaga verði lækkuð um 10% frá 1. janúar 2010.
Jafnframt lækka lífeyrisgreiðslur til lífeyrisþega um
10% frá og með júlí 2010. Sjóðfélögum verður gerð
nánari grein fyrir framkvæmd lækkunarinnar bréflega
innan skamms ásamt tilkynningu á heimasíðu sjóðsins.
Á tímabilinu 1997 til ársins 2009 voru lífeyrisréttindi
sjóðfélaga hækkuð um 21,1% umfram verðlags breyt-
ing ar. Eftir lækkunina nú nemur hækkun þessa tímabils
9%. Á ársfundi lífeyrissjóðsins verður sjóð félögum gerð
grein fyrir tryggingafræðilegri stöðu sjóðsins.
LÍFEYRISGREIÐSLUR
Á árinu 2009 nutu 9.049 lífeyrisþegar lífeyrisgreiðslna
úr sameignardeild að fjárhæð 5.916 m.kr. Lífeyris-
greiðslur árið áður námu 4.841 m.kr. og hækkuðu því
um 22% milli ára. Greiðslurnar eru verðtryggðar og
taka mánaðar lega breytingum vísitölu neysluverðs.
STJÓRN 2009
Ragnar Önundarson, formaður
Helgi Magnússon, varaformaður
Ásta R. Jónasdóttir
Benedikt Kristjánsson
Benedikt Vilhjálmsson
Bogi Þ. Siguroddsson
Hannes G. Sigurðsson
Stefanía Magnúsdóttir
Framkvæmdastjóri er Guðmundur Þ. Þórhallsson.
0
2.000
4.000
6.000
8.000
20092005 2006 2007
í milljónum króna
2008
4%
14%7%
2%
35%
25%
13%
0
100.000
200.000
300.000
20092005 2006 2007
í milljónum króna
2008
Lífeyrisgreiðslur sameignardeildar
Hrein eign til greiðslu lífeyris
Skipting verðbréfaeignar í árslok 2009
Skrifstofa sjóðsins er opin frá kl. 8.30 – 16.30 | Húsi verslunarinnar, 5. hæð, 103 Reykjavík | Sími: 580 4000 | Símbréf: 580 4099 | skrifstofa@live.is | www.live.is
ÁRSFUNDUR
Ársfundur sjóðsins verður haldinn mánudaginn
17. maí nk. kl. 18.15 á Grand Hótel. Fundurinn
verður nánar auglýstur síðar.
9Ársreikningur
EFNAHAGSREIKNINGUR Í ÁRSLOK
Í milljónum króna
2009 2008
Innlend skuldabréf 109.919 96.085
Sjóðfélagalán 41.648 39.363
Innlend hlutabréf 4.772 3.628
Erlend verðbréf 104.231 87.307
Verðbréf samtals 260.570 226.383
Bankainnstæður 37.962 36.050
Eignarhluti í Húsi verslunarinnar 254 268
Rekstrarfjármunir og aðrar eignir 66 73
Skammtímakröfur 2.644 2.010
Skuldir við lánastofnanir 1) -17.881 -15.674
Skammtímaskuldir -448 -349
Samtals hrein eign 277.164 248.761
Hrein eign séreignardeild 6.003 6.089
Hrein eign sameignardeild 283.167 242.672
BREYTINGAR Á HREINNI EIGN
Í milljónum króna
2009 2008
Iðgjöld 16.313 17.100
Lífeyrir -6.927 -5.021
Fjárfestingartekjur 25.472 -31.994
Fjárfestingargjöld -274 -241
Rekstrarkostnaður -245 -221
Aðrar tekjur 67 69
Breyting á hreinni eign á árinu 34.406 -20.308
Hrein eign frá fyrra ári 248.761 269.069
Hrein eign til greiðslu lífeyris 283.167 248.761
KENNITÖLUR
2009 2008
Ávöxtun 9,9% -11,8%
Hrein raunávöxtun 1,1% -24,2%
Hrein raunávöxtun (5 ára meðaltal) 0,3% 2,3%
Hrein raunávöxtun (10 ára meðaltal) 2,2% 3,2%
Rekstrarkostnaður í % af eignum 0,07% 0,06%
Rekstrarkostnaður í % af iðgjöldum 1,11% 0,92%
Lífeyrir í % af iðgjöldum 37,0% 29,4%
Fjöldi sjóðfélaga 32.305 33.120
Fjöldi lífeyrisþega 9.049 8.386
Stöðugildi 29,3 28,6
Ávöxtun innlánsleiðar 11,9%
Hrein raunávöxtun 3,0%
1) Gjaldmiðlavarnarsamningar: réttarleg óvissa er um endanlega niðurstöðu
uppgjörs samninganna.