Fréttablaðið - 06.05.2010, Page 16

Fréttablaðið - 06.05.2010, Page 16
16 6. maí 2010 FIMMTUDAGUR STJÓRNSÝSLA Síðastliðin fimm ár hefur Florence Kennedy, sérfræð- ingur í samningatækni, kennt áhugasömum hvernig best er að hegða sér við samningagerð. Florence segir mikilvægasta þátt- inn í samningaviðræðum að ein- blína ekki bara á um hvað er verið að semja. Horfa verði til undirliggj- andi ástæðna, eða hvata, fyrir við- ræðunum. Þannig megi oft finna nýja fleti á viðræðum sem annars hefðu siglt í strand. „Ef viðræður komast í öngstræti þarf að finna eitthvað annað sem hægt er að semja um sem uppfyll- ir okkar undirliggjandi þarfir. Sem dæmi má nefna mann sem biður um launahækkun en yfirmaðurinn til- kynnir að ekki séu til peningar til slíks. Hvað gerirðu þá? Annaðhvort snýrðu frá óham- ingjusamur eða reynir að kom- ast að því til hvers þú þarft pen- inga. Kannski er það til þess að kaupa nýjan bíl eða til að bæta eft- irlaunasjóðinn. Ef þú horfir á það í stað þess að einblína á að þú þurf- ir meira fé, koma upp fleiri kostir sem hægt er að semja um. Kannski færðu fyrirtækisbíl, eða það er eft- irlaunaáætlun hjá fyrirtækinu sem þú kemst að. Í stað þess að viðræðum verði sjálfhætt vegna þess að engir pen- ingar eru til, opnast möguleikar á öðrum lausnum.“ Gildir líka um Icesave Florence segir þetta gilda um allar samningaviðræður, hvort sem þær eru minni eða stærri. Það gildi einn- ig um milliríkjaviðræður eins og Icesave, sem enn er óleyst mál. Mikilvægt sé að hafa í huga að viðræður séu samningar á milli tveggja aðila. Enginn græði á því að þröngva sínum sjónarmiðum upp á mótaðilann, þegar til lengri tíma er litið. Það geti skaðað aðra hagsmuni í öðrum viðræðum. Florence segir að þótt styrk- ur samningsaðila geti verið mis- jafn, til dæmis Breta og Íslend- inga, séu menn jafnir þegar kemur að samningaborðinu. Samninga- viðræður snúist um að fá eitthvað frá einhverjum sem vill eitthvað frá okkur. Bretar og Hollendingar verði að vekja áhuga Íslendinga á því að samþykkja samninga og til þess þurfi nógu góðan samning. Hagsmunir allra séu að ná samn- ingi sem stendur. „Annað er að við þurfum að losna undan þeim tilfinningum sem tengj- ast vandamálunum. Hvað Icesave varðar eru augljóslega heitar tilfinn- ingar því tengdar hjá báðum aðilum. Þetta snýst um orðstír Íslands og þá upphæð sem landið þarf að borga og er því persónulegt. Það á einnig við um Breta. Fólk sem tapaði pening- um lítur til stjórnvalda og spyr hví ekkert sé gert fyrir það. Það eru til- Staðreyndir þvælast fyrir Florence Kennedy er sérfræðingur í samningatækni. Hún segir góð samskipti, upplýsingar og hvatann að baki viðræðum mikilvægasta þátt þeirra. Í öllum viðræðum, þar með talið um Icesave, verði að ríkja traust. SÉRFRÆÐINGURINN Florence Kennedy segir að samningaviðræður snúist um að fá eitthvað frá einhverjum sem vill fá eitthvað frá okkur. Allir verði að ganga sáttir frá samningaborðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Florence Kennedy er framkvæmdastjóri fyrirtækisins Negotiate Ltd., sem er breskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í ráðgjöf við samninga. Hún hefur unnið fyrir fjölmarga aðila, bæði ríkisstjórnir og einkaaðila, í Bretlandi og á meginlandinu. Florence er talskona fyrirtækisins, en stofnandi þess er faðir hennar, Gavin. Hann hefur verið í þessum geira í um 40 ár og skrifað fjórtán bækur um málefnið. Florence hefur komið hingað til lands síðastliðin fimm ár og kennt samn- ingatækni í meistaranámi í verkefnastjórnun við verkfræði- og náttúruvís- indasvið HÍ og Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands. Sérfræðingur í samningatækni finningar í málinu og menn kenna hver öðrum um hvernig fór. Menn þurfa að losna undan svona hugsun, sem er mjög algeng. Fólk eyðir of miklum tíma í að rífast um hverjum sé um að kenna.“ Staðreyndir til óþurfta Samningaviðræður snúast ekki um að skýra staðreyndir málsins sem best, raunar þvert á móti segir Flor- ence. „Staðreyndir eru til truflunar í samningaviðræðum því allir hafa sína útgáfu af þeim. Ég gæti sagt þér að eitthvað sé svart og þú mér að það sé hvítt. Þá er hægt að láta tölur og tölfræði þýða hvað sem er. Menn þurfa ekki að vera sammála um staðreyndir til að semja. Horfum til stórra, hörmulegra málefna eins og á Norður-Írlandi. Þar komu menn sér ekki saman um staðreyndir, en unnu saman að því að leysa málið. Við getum verið sammála um að þú hafir staðreynd- ir og að ég hafi staðreyndir og sest niður og leyst málið, án þess að hafa áhyggjur af því hverjar þær stað- reyndir eru.“ Traust og upplýsingar Upplýsingar eru mikilvægasta tækið til að ná samningum að mati Flor- ence. Hún segist því ekki trúa á þá aðferð að halda öllu leyndu, eða að reyna að blekkja. Í samningum verði menn að gefa upplýsingar smátt og smátt eftir því sem þeir fá þær. Þá verði menn að geta lesið í þær upp- lýsingar sem mótaðilinn gefur þeim og lesa í blæbrigðamun. „Til dæmis ef þú segir: „það er mjög erfitt fyrir mig að fallast á það“ í stað „það er ómögulegt fyrir mig að fallast á það“. Á þessu er munur og þú mátt ekki hundsa hann heldur skoða af hverju þetta er erf- itt og hvort hægt sé að breyta því svo þú fallist á þetta.“ Þá segir Florence að það sé gríð- arlega mikilvægt að bregðast ekki trausti. Ef menn hafi lofað einhverju verði að standa við það, annars glat- ist það traust sem náðst hafi manna á millum. kolbeinn@frettabladid.is Á HVOLFI Fyrir utan Gyðingasafnið í Berlín hefur listamaðurinn Marcus Wittmers stillt upp þessari styttu af sjálfum Superman. NORDICPHOTOS/AFP BÁTAR Sjómenn geta nú kynnt sér möguleika til náms samhliða starfi á nýjum DVD-diski sem dreift verður í báta. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM MENNTUN Út er kominn DVD- diskur sem kynnir námsmögu- leika fyrir sjómenn. Diskurinn er gefinn út af Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Sólrún Bergþórsdóttir hjá miðstöðinni kynnti diskinn fyrir hagsmunasamtökum fyrir skemmstu. Hún hefur í starfi sínu sem náms- og starfsráðgjafi í Eyjum lent í vandræðum með að ná til sjómanna til að kynna þeim námsmöguleika. Hún ákvað því að vinna diskinn og koma honum síðan í bátana til sjómannanna sjálfra. Á honum er að finna almennar upplýsingar um náms- og starfsráðgjöf og viðtöl við ráð- gjafa og fjóra sjómenn sem hafa farið í nám samhliða sínum störf- um. - kóp Fræðsludiskur gefinn út: Kynning á námi fyrir sjómenn Bensínþjófar gómaðir Tveir karlmenn á þrítugsaldri voru handteknir í Kópavogi í fyrrinótt. Þeir höfðu stolið bensíni af einum bíl og reynt að gera það sama við annan. Mennirnir játuðu sök. LÖGREGLAN MIKIÐ ÚRVAL GOTT VERÐ Allar gerðir d ekkja á frábærum kjörum! fyrir þá fjölmörgu sem þurfa að kaupa ný dekk fyrir sumarið. GOTT VERÐ & FRÁBÆR GREIÐSLUKJÖR Rauðhellu 11, Hfj. ( 568 2035 Hjallahrauni 4, Hfj. ( 565 2121 Dugguvogi 10 ( 568 2020 VAXT ALAU ST VISA & MAS TE RC A R DGildir til 3 1. m aí 20 10 VA X TA LA US T Í AL LT AÐ 6 MÁNUÐI www.pitstop.is ÞRJÁR FULLKOMNAR ÞJÓNUSTUSTÖÐVAR ÍRAK, AP Tveir stærstu hópar sjíamúslima á þinginu í Írak hafa gert með sér samkomulag um að leggja allar pólitískar deilur sín á milli í hendur virtra sjíaklerka. Annar hópurinn er fylking Nours al-Maliki forsætisráðherra, sem missti fylgi í kosning- um í vetur, en hinn er bandalag íhaldssam- ari sjíamúslima sem inniheldur meðal annars hreyfingu herskáa klerksins Muktada al-Sadr, sem hefur lengi haft horn í síðu al-Maliki. Takist þeim að mynda ríkisstjórn, eins og flest bendir til, þá þýðir þetta samkomulag að völd sjíaklerka aukast mjög. Jafnframt yrði það til þess að súnnímúslimum þætti enn meir að sér þrengt en hingað til. Íransstjórn hefur töluverð ítök í báðum fylkingunum, en í Íran hafa klerkarnir veru- leg völd samkvæmt stjórnarskrá. Þótt súnnímúslimar séu í minnihluta í landinu hafa þeir lengi átt því að venjast að fara með öll völd í reynd, því Saddam Huss- ein kom úr þeirra röðum og gerði þeim hærra undir höfði en öðrum hópum. Súnníar eru meira en þriðjungur lands- manna og sætta sig ekki við að vera áhrifa- lausir. Herskáir hópar súnnímúslima hafa árum saman barist gegn núverandi stjórn al-Maliki og stríðsrekstri Vesturlanda í land- inu. - gb Stærstu fylkingar sjíamúslima undirbúa stjórnarmyndun í Írak: Samkomulag tryggir aukin völd sjíaklerka ENDURTALNING ATKVÆÐA Úrslit þingkosninganna í vetur voru umdeild og hófst endurtalning atkvæða nú í vikunni. NORDICPHOTOS/AFP

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.