Fréttablaðið - 06.05.2010, Qupperneq 66
54 6. maí 2010 FIMMTUDAGUR
Lið: Grindavík
Spá Fréttablaðsins: 9. sæti.
Árangur í fyrra: 9. sæti.
Þjálfari: Lúkas Kostic.
Lykilmaður: Scott Ramsay.
Styrkleikar: Frábærir sóknar-
menn, ágætur heimavöllur.
Veikleikar: Mistækur markvörður
og óstöðugt lið.
Helstu breytingar: Liðið missti
Óla Stefán Flóventsson, Eystein
Húna Hauksson og þrjá erlenda
miðlungsmenn. Fengu Auðun
Helgason í vörnina og Loic Ondo
sem er spurningarmerki.
Lið: Valur
Spá Fréttablaðsins: 7. sæti.
Árangur í fyrra: 8. sæti.
Þjálfari: Gunnlaugur Jónsson.
Lykilmaður: Atli Sveinn Þórar-
insson.
Styrkleikar: Sterkir miðjumenn,
reyndir varnarmenn.
Veikleikar: Lítt reyndur þjálfari,
mistækur markvörður, leikmenn
sem gefast upp.
Helstu breytingar: Misstu marga
leikmenn eins og Baldur Bett,
Guðmund Mete, Helga Sigurðsson
og Marel Baldvinsson. Fengu tvo
Dani, Hauk Pál Sigurðsson og Jón
Vilhelm Ákason.
Lið: Fylkir
Spá Fréttablaðsins: 6. sæti.
Árangur í fyrra: 3. sæti.
Þjálfari: Ólafur Þórðarson.
Lykilmaður: Valur Fannar Gísla-
son.
Styrkleikar: Samheldinn hópur,
hraðir sóknarmenn, baráttuglatt
lið, sterkur markvörður.
Veikleikar: Lítil breidd, óstöðugir
framherjar.
Helstu breytingar: Liðið missti
Halldór Hilmisson en fékk Baldur
Bett, Odd Inga Guðmundsson og
Andrew Bazi frá Svíþjóð.
Lið: Stjarnan
Spá Fréttablaðsins: 8. sæti.
Árangur í fyrra: 7. sæti.
Þjálfari: Bjarni Jóhannsson.
Lykilmaður: Steinþór Freyr Þor-
steinsson.
Styrkleikar: Gervigrasið sem þeir
þekkja manna best, góð stemning.
Veikleikar: Enginn stöðugleiki,
lítil breidd.
Helstu breytingar: Liðið saknar
helst Guðna Rúnars Helgasonar
en hefur fengið Atla Jóhannsson,
Dennis Danry, Marel Baldvinsson
og Ólaf Karl Finsen.
FÓTBOLTI Pepsi-deild karla hefst
næstkomandi mánudag og að þessu
sinni skoðum við liðin sem Frétta-
blaðið spáir að verði í sætum níu
til sex í sumar.
9. sæti – Grindavík
Grindvíkingar hafa alla burði til
þess að gera betur í ár en í fyrra
en Fréttablaðið hefur þó ekki trú
á því að þeir nái hærra en síð-
asta sumar. Það verður örugglega
gaman að horfa á Grindavíkurliðið
spila í sumar enda hefur það innan
sinna raða frábæra sóknarmenn.
Grindvíkingar vilja örugglega
sækja í sumar og lykilmaðurinn í
þeirra sóknarleik verður án vafa
Scott Ramsay. Hann er maðurinn
sem á að búa til færin fyrir liðið
og hefur eiginleika til þess að
sprengja upp hvaða vörn sem er.
Gilles Ondo sló í gegn í fyrra en
hann ætti að mæta enn sterkari til
leiks næsta sumar þar sem hann
hefur verið lengur hjá liðinu og
þekkir íslenska boltann betur.
Spurningarmerkið er þó Grétar
Ólafur Hjartarson sem snýr aftur
eftir löng og erfið meiðsli. Áður en
Grétar meiddist var hann óumdeil-
anlega einn besti framherji lands-
ins. Stóra spurningin er aftur á
móti sú hvort sömu töfrar séu enn
í tánum á stráknum. Ef svo er þá
eru Grindvíkingar í toppmálum.
Tilkoma Auðuns Helgasonar
mun styrkja varnarleik liðsins til
mikilla muna en áhyggjuefnin eru
miðjan og markvörðurinn. Óskar
Pétursson var afar óstöðugur í
fyrra og gerði nokkuð af klaufa-
mistökum. Slík mistök kosta stig
og verða því að vera í lágmarki.
8. sæti – Stjarnan
Stjarnan var spútniklið síðasta
sumars, framan af móti það er að
segja. Leikur liðsins hrundi svo til
algjörra grunna og það er mikið
áhyggjuefni. Rétt eins og hversu
lélegt liðið er á útivelli. Liðið sýndi
aftur á móti síðasta sumar að það
getur spilað frábæran sóknar-
bolta. Léttleikandi og baráttuglað-
ir strákar sem vilja spila fótbolta.
Miðjan var ekki nógu sterk í
fyrra en tilkoma Atla Jóhanns-
sonar og Dennis Danry ætti að
styrkja miðjuspil liðsins til mik-
illa muna. Varnarleikurinn er
einnig traustur og liðið hefur
fínan markvörð.
Það er klassísk tugga að annað
ár liða í efstu deild geti reynst
liðum erfið. Það er talsvert til
í þeirri tuggu og Stjörnumenn
munu ekki njóta þess í ár að eitt-
hvert lið vanmeti þá. Ef liðið ætlar
sér einhverja hluti þá þarf það að
vinna einhverja útileiki en liðið
vann aðeins einn útileik í fyrra,
það var gegn Þrótti í 2. umferð.
7. sæti – Valur
Vonbrigði síðasta sumars. Allt sem
gat gengið á afturfótunum gerði
það. Félagið tók þá skynsamlegu
ákvörðun að moka út leikmönn-
um sem annaðhvort voru komnir
fram yfir síðasta söludag eða voru
eingöngu í félaginu að því er virt-
ist til þess að ná í launatékka.
Á móti kemur að liðið hefur
ekki fengið nógu sterka íslenska
leikmenn í staðinn og þjálfari liðs-
ins hefur litla reynslu. Helstu við-
brigðin verða þó þau að Valsmenn
spila ekki undir pressu í sumar
enda er ekki búist við miklu af
liðinu.
Gunnlaugur Jónsson þarf því
væntanlega ekki að fara á taugum
þó svo að illa ári í sumar. Stjórn
Vals hefur haft það orð á sér að
vera fullafskiptasöm en beri
henni gæfa til að gefa Gunnlaugi
vinnufrið gæti það borið ávöxt
næsta sumar. Danirnir tveir eru
síðan spurningarmerki en standi
þeir undir væntingum gætu Vals-
menn bitið frá sér.
6. sæti – Fylkir
Fylkir kom allra liða mest á óvart
í fyrra og líklega má segja að
Ólafur Þórðarson hafi náð öllu út
úr þessu liði og rúmlega það. Það
verður ekki auðvelt að endurtaka
þann leik og það er pressa á mörg-
um leikmönnum að sýna sömu
frammistöðu og í fyrra. Ekki
hjálpar til að lítið gekk að styrkja
hópinn og endurkoma Ólafs Stígs-
sonar ber vott um örvæntingu í
Árbænum.
Valur Fannar var límið í liðinu
í fyrra og hann verður að spila
álíka vel í sumar ef Fylkir ætlar
að halda dampi. Vörnin var líka
frábær og hún þarf að vera í topp-
formi. Framherjar liðsins eru ekki
nógu stöðugir og Fylkir gæti lent
í vandræðum með að skora. Nái
strákar eins og Ingimundur Níels
og Kjartan Breiðdal að spila jafn
vel og í fyrra þá verða Fylkismenn
í fínum málum. Algjör bónus yrði
síðan fyrir liðið ef Pape Faye
hefur fundið markaskóna en hann
gat ekki keypt mark í fyrra.
Við spáum því aftur á móti að
Fylkir nái ekki að endurtaka leik-
inn í sumar. Liðið vantar breidd
og stöðugri markaskorara.
henry@frettabladid.is
Miðjumoðið í Pepsi-deild karla
Fréttablaðið hefur ekki trú á því að Fylkir endurtaki leikinn og verði í toppbaráttunni í sumar. Stjarnan
mun einnig vera í neðarlega rétt eins og mikið breytt lið Vals. Grindavík verður rétt fyrir ofan fallliðin.
VERÐUGT VERKEFNI Ólafur Þórðarson stýrði Fylki óvænt í þriðja sætið í fyrra. Hann
fær það verðuga verkefni að reyna að endurtaka þann leik í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Útsendari enska félags-
ins Newcastle á Norðurlöndun-
um, Ole Nielsen, segir að félagið
hafi ekki áhuga á að fá Sölva Geir
Ottesen, leikmann SönderjyskE, í
sínar raðir.
Þetta sagði Nielsen í samtali
við danska fjölmiðla í dag en
Sölvi hefur lengi verið orðaður
við Newcastle.
„Þessar sögusagnir eiga sér
rætur hjá SönderjyskE því ekki
höfum við áhuga. Við höfum séð
hann spila margoft en þó svo að
við séum að mæta á leiki Sönder-
jyskE þýðir það ekki að við séum
endilega að fylgjast með Sölva.“
„Okkur þykir það pirrandi að
við séum sífellt sagðir á eftir
Sölva því ég get staðfest að við
höfum ekki áhuga á honum,“ er
haft eftir Nielsen.
Forráðamenn SönderjyskE
eiga þó von á því að Sölvi fari frá
félaginu nú í sumar. - esá
Sölvi Geir Ottesen:
Newcastle hef-
ur ekki áhuga
SÖLVI GEIR Orðaður við félög víða.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Spænski leikmaðurinn
David Silva hjá Valencia er enn
og aftur orðaður við Man. Utd
þessa dagana og leikmaðurinn er
nú farinn að gefa United undir
fótinn.
Sjálfur segist hann vera ham-
ingjusamur hjá Valencia en við-
urkennir þó að það yrði erfitt að
hafna tilboði frá Man. Utd.
„Þegar maður heyrir að félag
eins og Man. Utd hafi áhuga á
manni þá er það mikill heiður. Ég
er mjög meðvitaður um styrk-
leika enska boltans og enska
deildin hefur verið sú besta í
heimi síðustu ár,“ sagði Silva.
„Ef það kæmi kall frá United
þá væri mjög erfitt að segja nei.
Þó svo ég sé hamingjusamur hjá
Valencia þá hafa allir leikmenn
sinn verðmiða og ef Valencia fær
gott tilboð þá gætu bæði félög
gert góð viðskipti.“ - hbg
Silva daðrar við United:
Erfitt að segja
nei við United
DAVID SILVA Gefur Man. Utd undir
fótinn. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
HANDBOLTI Haukamaðurinn Sigur-
bergur Sveinsson hefur verið
atkvæðamikill í fyrstu þremur
leikjunum í úrslitaeinvígi Hauka
og Vals en liðin mætast í fjórða
sinn í Vodafone-höllinni í kvöld.
Sigurbergur er markahæsti leik-
maðurinn í einvíginu og aðeins
tveir leikmenn hafa gefið fleiri
stoðsendingar. Sigurbergur hefur
alls skorað 26 mörk (úr 48 skotum,
54 prósent) þar af hafa 19 þeirra
komið úr aðeins 31 skoti í síðustu
tveimur leikjum.
Sigurbergur hefur einnig gefið
9 stoðsendingar og það eru aðeins
félagi hans Elías Már Halldórs-
son og Valsmaðurinn Sigurður
Eggertsson sem hafa gert betur
en þeir eru báðir búnir að gefa 10
stoðsendingar á félaga sína.
Arnór Þór Gunnarsson er
markahæstur Valsmanna með 22
mörk úr 35 skotum (63 prósenta
skotnýting) en hann hefur þar af
nýtt öll 11 vítin sín. Valsmenn eru
með 92 prósenta vítanýtingu í ein-
víginu (12 af 13) en Haukar hafa
aðeins nýtt 12 af 17 vítum sínum
(71 prósent). Fannar Þór Friðgeirs-
son hefur skorað flest mörk Vals-
manna utan af velli (15) en hann
er einnig sá leikmaður í einvíginu
sem hefur fiskað flesta mótherja
út af eða alls 7.
Pétur Pálsson, línumaður Hauka,
hefur staðið sig vel en hann hefur
nýtt 11 af 12 skotum sínum og eng-
inn hefur fiskað fleiri víti. Pétur
hefur fiskað 7 víti og 4 brottrekstra
í þessum þremur leikjum.
Haukamaðurinn Freyr Brynjars-
son hefur skorað flest hraðaupp-
hlaupsmörk (4) en þau komu öll í
síðasta leik þegar Haukarnir skor-
uðu öll sjö hraðaupphlaupsmörk
leiksins. Félagi Freys, Gunnar
Berg Viktorsson, hefur varið flest
skot í vörn (4) en Haukavörnin
hefur tekið sex fleiri skot en Vals-
vörnin í fyrstu þremur leikjun-
um.
Valsmarkverðirnir eru framar
í tölfræðinni, Hlynur Morthens
hefur varið 51 skot eða 15 fleiri
en Birkir Ívar Guðmundsson og
varamarkvörður Valsmanna, Ingv-
ar Guðmundsson, hefur varið þrjú
víti af þeim 4 sem hafa verið varin
í þessum þremur leikjum. - óój
Tölfræðin úr fyrstu þremur leikjum Hauka og Vals í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í N1 deild karla:
Sigurbergur atkvæðamestur í úrslitunum
SIGURBERGUR SVEINSSON Haukamað-
urinn hefur skorað 8,7 mörk að meðal-
tali í leik í lokaúrslitunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN