Fréttablaðið - 07.05.2010, Blaðsíða 54
34 7. maí 2010 FÖSTUDAGUR
SÍMI 564 0000
L
12
12
12
L
10
10
SÍMI 462 3500
12
16
L
16
16
SHE´S OUT OF MY LEAGUE kl. 6 - 8
THE CRAZIES kl. 8
THE SPY NEXT DOOR kl. 6
LEGION kl. 10
DAYBRAKERS kl. 10
SÍMI 530 1919
L
12
12
16
L
10
L
12
18
L
THE LIVING MATRIX kl. 6 íslenskur texti
IMAGINARIUM OF DR. P... kl. 8 - 10.15 íslenskur texti
ONDINE kl. 10 íslenskur texti
UN PROPHÉTE kl. 9 enskur texti
FOOD INC. kl. 6 íslenskur texti
MOON kl. 8 íslenskur texti
NOWHERE BOY kl. 6 íslenskur texti
THE YOUNG VICTORIA kl. 8 íslenskur texti
TRASH HUMPERS kl. 10 íslenskur texti
FANTASTIC MR. FOX kl. 6 íslenskur texti
SÍMI 551 9000
L
L
14
14
THE BACKUP PLAN kl. 5.40 - 8 - 10.20
IRON MAN 2 kl. 5.20 - 8 - 10.40
IRON MAN 2 LÚXUS kl. 5.20 - 8 - 10.40
SHE´S OUT OF MY LEAGUE kl. 8 - 10.20
THE SPY NEXT DOOR kl. 3.40 - 5.50
DATE NIGHT kl. 4 - 6 - 8 - 10
NANNY MCPHEE kl.3.40
NÝTT Í BÍÓ!
CRAZY HEART kl. 5.30 - 8 - 10.30
THE BACKUP PLAN kl. 5.40 - 8 - 10.20
I LOVE YOU PHILLIP MORRIS kl. 5.40 - 8 - 10.20
LOFTKASTALINN SEM HRUNDI kl. 6 - 9
CRAZY HEART ER Á BÍÓDÖGUM GRÆNA LJÓSSINS
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
Fullt af stórleikurum í fyrstu
STÓRMYND SUMARSINS!
FYRRI MYNDIN GERÐI ALLT VITLAUST OG ÞESSI ER ENN BETRI
Robert Downey Jr., Samuel L. Jackson, Gwyneth Paltrow, Scarlett Johansson,
Don Cheadle og Mickey Rourke eru mætt í fyrstu STÓRMYND SUMARSINS
ÁLFABAKKA KRINGLUNNI
AKUREYRI
SELFOSSI
12
12
12
12
12
12
14
14
14
14
14
14
L L
L
L
L
L
L
L
SPARBÍÓ KR 600 Á SÝNINGAR
MERKTAR MEÐ APPELSÍNUGULU OG
KR. 950 Á 3D MERKT GRÆNU
IRON MAN 2 kl. 3D - 5:20D - 8D - 10:40D
IRON MAN 2 kl. 3 - 5:20 - 8 - 10:40
COPS OUT kl. 3 - 5:40 - 8 - 10:20
OFURSTRÁKURINN M/ ísl. Tali kl. 3:40 - 5:50
KICK ASS kl. 5:50 - 8 - 10:40
CLASH OF THE TITANS kl. 8:10 - 10:40
TEMJA DREKANN SINN M/ ísl. Tali Sýnd á morgun kl. 1(3D)
AÐ TEMJA DREKANN SINN M/ ísl. Tali kl. 3:40 - 5:50
HOT TUB TIME MACHINE kl. 8 - 10:20
ALICE IN WONDERLAND kl. 3:40
COPS OUT kl. 5:50 - 8:10 - 10:30
IRON MAN 2 kl. 3:20 - 5:40D - 8:10D - 10:45D
KICK ASS kl. 5:50 - 8:10 - 10:40
OFURSTRÁKURINN M/ ísl. Tali kl. 3:40
AÐ TEMJA DREKANN SINN 3D M/ ísl. Tali kl. 3:40(3D)
IRON MAN 2 kl. 5:30 - 8 - 10:30
KICK ASS kl. 8 - 10:30
OFURSTRÁKURINN M/ ísl. Tali kl. 6
IRON MAN 2 kl 5:30 - 8 - 10:30
OFURSTRÁKURINN M/ ísl. Tali kl. 6
KICK ASS kl 8 - 10:10
Hörku hasargrínmynd með Bruce Willis, Tracy Morgan(30
Rock) og Sean William Scott sem kemur öllum í gott skap.
- bara lúxus
Sími: 553 2075
IRON MAN 2 5, 7.30, 10(POWER) 12
THE BACK-UP PLAN 5.50, 8 og 10.10 L
SHE´S OUT OF MY LEAGUE 5.50, 8 og 10.10 12
AÐ TEMJA DREKANN SINN 4 - 3D L
NANNY MCPHEE & BIG BANG 3.40 L
POWERSÝNING
KL. 10
Popparinn Robbie Williams hefur
beðið lögfræðinga sína um að
útbúa hjúskaparsáttmála áður
en hann kvænist unnustu sinni,
Ayda Field. „Þau eru yfir sig ást-
fangin en gera sér grein fyrir
þeim þrýstingi sem er á hjóna-
böndum frægs fólks,“ sagði heim-
ildarmaður. „Foreldrar þeirra
beggja hafa skilið og þau vilja
ekki eyða tíma og pening í ein-
hver vandræði og
því telja þau að
hjúskaparsáttmáli
sé nauðsynlegur.“
Talið er að Robbie
og Ayda gangi upp
að altarinu í
lok þessa
árs. Athöfn-
in verður
haldin í
kyrrþey,
fjarri
ágangi
fjölmiðla-
fólks.
Robbie vill
sáttmála
ROBBIE WILLI-
AMS Robbie vill
hjúskaparsátt-
mála áður en
hann kvænist
Ayda Field.
Tónlist ★★★
Congratulations
MGMT
Þjónn! Meira salt, takk.
New York-töffararnir í MGMT slógu
hressilega í gegn árið 2008 með plöt-
unni Oracular Spectacular. Kæruleysis-
legir smellir á borð við Kids og Time to
Pretend urðu eftirlæti dansandi gesta
á skemmtistöðum víða um heim og
textarnir, sem fjölluðu flestir um dóp og
kynlíf, klístruðust við heila ótrúlegasta
fólks.
Á Congratulations hefur hljómsveitin
ekki aðeins skipt um gír, drif og jahh,
bíl – heldur er hún farin að keyra aftur
á bak, en ekki áfram og beygja til
vinstri en ekki hægri. Með þessu flókna
myndmáli er ég að reyna að segja að
MGMT er hætt að semja grípandi lög. Ákvörðunin (ef hún var nokkurn tíma
tekin) var vafalaust í óþökk útgáfufyrirtækis félaganna, sem er tæpast að
fara að selja lög eins og Flash Delirium, Brian Eno og It‘s Working í næsta
FIFA-tölvuleik – þó að þau séu afar frambærileg.
Við erum semsagt komin að kjarna málsins: Miðað við Congratulations
virðist MGMT hafa fengið nóg af ofurvinsældunum og því sem þeim fylgja. Í
staðinn sendir hljómsveitin frá sér fremur bragðdaufa plötu í anda áttunda
áratugarins, stútfulla af tilvísunum í liðna tíma – bæði í textum og tónlist.
Útkoman er fín, en ekki frábær – pínlega óeftirminnileg þó að hún haldi
meðan á hlustun stendur. Ef Congratulations væri veitingahús hefði matur-
inn smakkast vel, en saltlaus og þar af leiðandi bragðdaufur.
Titillag Congratulations og jafnframt það síðasta endar á daufu klappi,
sem virðist vera af skyldurækni. Það er vel við hæfi því standandi fagnaðar-
læti hefðu ekki verið viðeigandi. Atli Fannar Bjarkason
Niðurstaða: Góð plata, en bragðdauf. Heldur á meðan hún er í gangi, en
óeftirminnileg þegar henni lýkur.
Fjölmargir aðilar hafa lýst
yfir áhuga á verslunarhús-
næði Skífunnar á Lauga-
veginum. Plötubúðin hættir
starfsemi þar í sumar og
verður eingöngu starfrækt í
Kringlunni.
„Ég hef engar áhyggjur af því að
þetta húsnæði standi laust lengi,“
segir Jakob Frímann Magnússon
miðborgarstjóri. „Það hafa mjög
margir sýnt áhuga á að fara þarna
inn með hönnun, tískuvöru og
þess konar sérvöru. Það er sleg-
ist um þessi góðu verslunarpláss
á Laugaveginum.“
Að sögn Jakobs Frímanns hefur
brotthvarf Skífunnar úr húsnæð-
inu legið lengi í loftinu. „Þetta er
auðvitað eitthvað sem er búið að
stefna í um nokkurt skeið hér sem
annars staðar. Stórar hljómplötu-
verslanir hafa verið að skella í lás
hver af annarri,“ segir hann og
á þar við Virgin Megastore sem
lokaði í New York í desember auk
þess sem stórum plötuverslunum
á Oxford Street í London hefur
fækkað að undanförnu.
Jakob kennir ólöglegu niðurhali
á tónlist um lokun búðarinnar og
vill ekki meina að Skífan hafi verið
illa rekin. „Þetta er besti staður til
að hafa verslun í miðborginni en
miðað við hvað stór hluti tónlistar-
neytenda er kominn í netheiminn
þá var þetta ekki raunhæft leng-
ur,“ segir hann og bætir þessu við
um niðurhalið: „Ég hef áhyggjur
af því hversu illa og seint gengur
að fá hina nýju tækni til að skila
hagnaði inn í kerfið og núna þolir
þetta ekki lengri bið. Þetta er
stærsta verkefni tónlistar-
bransans í dag og það þarf
að taka á því áður en það
brestur á með atgervis-
flótta úr greininni. En
ég er bjartsýnn á að við
stöndum núna við þrösk-
uld þar sem við horfum
inn í nýjan heim.“
Jakob er fullviss
um að ný og öflug
verslun komi í
staðinn fyrir
Skífuna. „Við
kveðjum Skíf-
una auðvitað
með söknuði.
Ég var við-
staddur opn-
unina á sínum
tíma og þetta
var glæsilegasta tónlistarversl-
un sem hafði litið dagsins ljós á
Íslandi. En það brustu forsendur
fyrir þessari tilteknu vöru.“
Hann tekur fram að smærri
plötuverslanir á borð við 12
Tóna og Havarí muni í stað-
inn annast plötusöluna í
miðborginni.
Húsnæði Skífunnar er í
eigu fasteignafélagsins Reit-
ir. Í samtali við Fréttablaðið
staðfesti Inga Rut Jóns-
dóttir, forstöðu-
maður hjá Reit-
um, að nokkrir
aðilar hefðu
haft samband
út af húsnæðinu. Sumir vilji reka
þar tískuverslun en aðrir hafi ann-
ars konar rekstur í huga. Hún vildi
ekki greina frá því hvað kosti að
leigja húsnæðið og gat heldur ekki
sagt til um hvenær samið yrði við
nýjan rekstraraðila.
Stutt er síðan Fréttablaðið
greindi frá brotthvarfi Regnbog-
ans úr miðborginni og núna fylgir
Skífan í kjölfarið. Þrátt fyrir það
örvæntir Jakob Frímann ekki.
„Því má ekki gleyma að það er
verið að leggja lokahönd á „cin-
ematheque“ í Tjarnarbíói og því
ber líka að fagna að Austurbæjar-
bíó er að verða að öflugu sýning-
arhúsi á ný. Eitt hverfur á braut og
annað kemur í staðinn,“ segir hann
um leið og hann kveður Regnbog-
ann og Skífuna. „Við þökkum því
góða fólki fyrir samferðina. Síðan
kemur eitthvað skemmtilegt og
ferskt vonandi í staðinn.“
freyr@frettabladid.is
Fjölmargir vilja Skífuhúsið
SKÍFAN HÆTTIR Verslunin Skífan á Laugaveginum hættir starfsemi í sumar. Óvíst er
hvaða verslun kemur í hennar stað. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
JAKOB FRÍMANN
Miðborgarstjór-
inn hefur engar
áhyggjur af
húsnæðinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA