Fréttablaðið - 07.05.2010, Blaðsíða 46
26 7. maí 2010 FÖSTUDAGUR
menning@frettabladid.is
ath. á morgun kl. 20
Sýningum Nemendaleikhússins á
lokaverkefninu sínu Stræti eftir Jim
Cartwright lýkur um helgina en síðasta
sýning er annað kvöld. Þessi útskriftar-
árgangur hefur vakið verulega athygli í
vetur en uppselt hefur verið á allar sýn-
ingar þeirra. Stræti eftir Jim Cartwright
kom fram fyrir rúmum tveim áratugum
og sló strax rækilega í gegn og fór á
fjalir leikhúsa víða um heim. Það skýt-
ur alltaf upp kollinum öðru hverju og
virðist alltaf eiga erindi.
> Ekki missa af
Tónleikum Eivarar Pálsdóttur í
Óperunni 28. maí en almenn
miðasala hefst í dag kl. 10. Eivør
Pálsdóttir er að gefa út nýja plötu
en með henni á tónleikunum
spila Benjamin Petersen rafgítar,
Mikael Blak rafbassi og kontra-
bassi og Høgni Lisbert trommur
og slagverk. Miðasala er á Miði.is.
Eingöngu er selt í númeruð sæti.
Nýja breiðskífan, LARVA, er sjö-
unda hljóðversplatan sem Eivør
sendir frá sér. Eivør vann plötuna
með sveitinni sem kemur fram á
tónleikunum og upptökustjóran-
um Jens L. Thomsen. Auk þeirra
koma fram strengjasveit Caput,
færeyski kórinn Mpiri og barnakór
frá Gøta, heimabæ Eivarar.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur
í Grófarhúsi og Listasafn
Reykjavíkur í Hafnarhúsi
standa hlið við hlið við
miðpunkt Reykjavíkur. Um
helgina lýkur í þessum
söfnum merkum sýn-
ingum: Útskriftarsýningu
Listaháskólans sem er
sprúðlandi af fjöri, og
tveimur ljósmyndasýning-
um í Ljósmyndasafninu.
Jóna Þorvaldsdóttir kallar
sýningu sína Skynjanir.
Hún er þekkt fyrir að nota
sígildar ljósmyndunaraðferðir við gerð verka
sinna en þær voru vinsælar á upphafstímum
ljósmyndunar. Jóna tekur ljósmyndir sínar á
gamla blaðfilmuvél og notar
filmur sem eru í 8x10 formati
þ.e. 20x25 cm að stærð.
Filmurnar framkallar hún í
bökkum og kontaktprentar svo
myndirnar á gæða vatnslita-
pappír undir útfjólubláu ljósi
eða sólarljósi. Myndheimur
Jónu er sveipaður dulúð og
mýkt og vinnsla myndanna
með þessum gömlu aðferð-
um eykur enn fremur á þá
eiginleika eins og sjá má á
meðfylgjandi mynd.
Þá er komið að lokum
sýningar Jakobs Jakobssonar en þær eru í senn
mikilvæg heimild um verklegar framkvæmdir og
búa yfir sterkri tilfinningu í myndbyggingu.
Sýningarlok í Grófinni um helgina
LJÓSMYNDIR Jóna Þorvaldsdóttir: Við
tjörnina. Ísland 2009. Palladium prent.
Kópavogsdagar hefjast á
morgun og er margt á dag-
skrá en dagarnir eru að
þessu sinni helgaðir minn-
ingu Sigfúsar Halldórsson-
ar tónskálds. Verður haldin
röð tónleika þar sem flutt
verða hans vinsælustu lög
og í Tónlistarsafni íslands
er komin upp sýning á ýmsu
efni sem tengist ferli hans.
Sigfús Halldórsson fæddist 7. sept-
ember 1920 og ólst upp í Reykja-
vík. Sigfús varð snemma áberandi í
bæjarlífinu. Hann vann sem sendill
frá unga aldri í Útvegsbankanum
sem þá var í miðju samfélagsins í
þorpinu Reykjavík og vann þar allt
til 1944. Einkar ljúf lund hans og
elskulegt fas aflaði honum snemma
vinsælda og svo sú náttúrugáfa sem
fólst í söngrödd hans og hljóðfæra-
leik. Hann varð á unga aldri kunnur
sem skemmtikraftur í samkvæmis-
lífi og tók að koma fram sem slík-
ur fyrir tvítugsaldurinn. Hann lék
í óperettum og revíum í upphafi
stríðsins en hugur hans hneigðist
ekki síður að myndlist: Hann stund-
aði nám í málaraskóla Marteins
Guðmundssonar og Björns Björns-
sonar, en var í hópi þeirra sem leit-
uðu erlendis til náms og lauk brott-
fararprófi með fyrstu verðlaun
í leiktjaldahönnun og málaralist
frá hinum þekkta skóla Slade Fine
Art School 1945. Hann sótti sér
framhaldsmenntun við Stokkhólm-
sóperuna 1947 og 1948 og starfaði á
málarasal Þjóðleikhússins 1950 til
1952, hann vann hjá J. Þorláksson &
Norðmann 1954 til 1955, var starfs-
maður á bókasafni Bandaríkjahers
1955 til 1956, á skattstofu Reykja-
víkur 1957 til 1968. Fastur teikni-
kennari við Langholtsskóla 1968 til
1981, auk þess sem hann hélt fjölda
námskeiða í teiknun á sama tíma.
Þá ferðaðist hann með leikflokkum
um landið frá 1939 og allt til 1955.
Fyrstu hljóðrit Sigfúsar sem
urðu kunn hér á landi voru hans
eigin sönglög. Hann mun hafa
samið um 100 tónsmíðar af ýmsu
tagi og er nú unnið að því að koma
reiðu á safn hans til útgáfu, en
margir listamenn hafa sóst eftir
að syngja hans þekktustu lög sem
eru alþýðueign.
Sigfús byrjaði ungur að mála og
hefur um dagana haldið fjölda mál-
verkasýninga, hérlendis og erlend-
is bæði einn og með öðrum. Hann
var kjörinn heiðursborgari Kópa-
vogs 1994 og var það í þriðja sinn
sem Kópavogsbúar völdu sér heið-
ursborgara en þau Steinunn kona
hans settust að í bænum 1963.
Jafnframt sýningu í Tónlistar-
safni hefur Björn Thoroddsen
sett saman lítið kombó með þeim
Jóhanni Hjörleifssyni, Jóni Rafns-
syni og Pálma Sigurhjartarsyni.
Munu þeir ásamt söngvurunum
Heru Björk Þórhallsdóttur, Stef-
áni Hilmarssyni og Agli Ólafssyni
flytja nær tuttugu lög eftir Sigfús
á sex tónleikum í dag og á morg-
un, og á föstudag og laugardag um
næstu helgi.
Björn segir það hafa komið sér
á óvart þegar hann stóð fyrir nám-
skeiði fyrir ungt tónlistarfólk í Mol-
anum að krakkar um tvítugt þekktu
allir lög Sigfúsar. „Þau standast
tímans tönn,“ segir hann. Tónbygg-
ing þeirra sé af evrópskum meiði,
frekar en bandarískum þótt Björn
og hans félagar leggi á þau djass-
slikju. „þau eru raunar frekar með
ítölskum brag,“ segir Björn. Miða-
sala er á tónleikaröðina í Salnum og
á midi.is og er þegar vel selt á tón-
leikaröðina enda Sigfús uppáhald
margra og því heiðursess hans á
Kópavogsdögum auðskilinn og
sjálfsagður. pbb@frettabladid.is
Fúsi Halldórs er níræður
og lögin hans sígild enn
MENNING Sigfús Halldórsson tónskáld og listmálari 1920-1996.
MYND LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR
Næsta listmunauppboð verður hald-
ið í Galleríi Fold við Rauðarárstíg
á mánudaginn og hefst að vanda kl.
18.15 í húsnæði Foldar við Rauðar-
árstíg.
Boðin verða upp nokkur verk
eftir Jóhannes S. Kjarval og gam-
alt málverk af bátum eftir Svavar
Guðnason. Auk þess verða verk
eftir marga af helstu myndlistar-
mönnum Íslands boðin upp, þar á
meðal Alfreð Flóka, Jón Stefánsson
og Valtý Pétursson.
Á uppboðinu eru enn fremur
verk eftir ýmsa yngri höfunda svo
sem Húbert Nóa, Gunnellu, Georg
Guðna og Tolla. Þá verða verk
eftir Eggert Pétursson, Kristján
Davíðsson, Hafstein Austmann og
Tryggva Ólafsson boðin upp.
Verkin verða sýnd í Galleríi Fold
við Rauðarárstíg en uppboðsskrána
má skoða á vef Foldar: www.mynd-
list.is frá hádegi í dag. - pbb
Uppboð í Fold
MYNDLIST Gamalt verk eftir Svavar er á
uppboðinu, frá þeim tíma sem hann var
að færast úr fígúratífu málverki í afstrakt.
MYND/FRÉTTABLAÐIÐ
Þorsteinn Helgason, myndlistar-
maður og arkitekt, opnar á morg-
un sýningu á nýjum málverkum
í Reykjavik Art Gallerí í gamla
Fróns-húsinu við Skúlagotu. Þar
sýnir hann olíuverk sem hann
hefur unnið á síðustu misserum.
„Í millitíðinni hefur það gerst að
ég verð líka með málverk á Kaffi
Sólon í Bankastæti 7a þannig að
þetta er eiginlega tvöföld opnun
þar sem ég reikna með að sýna
sex til sjö myndir,“ segir Þor-
steinn en sýningin á Kaffi Sólon
mun standa yfir í um það bil
mánuð, en sýningin á Skúlagöt-
unni stendur til 23. maí.
Þorsteinn stundaði nám við
Myndlistaskólann í Reykjavík og
Handíða- og myndlistaskólann.
Hann hefur verið tryggur franska
skólanum frá því um miðja síð-
ustu öld og hafa verk hans notið
mikillar hylli á þeim fjölda sýn-
inga sem hann hefur staðið fyrir
frá því að hann tók að sýna verk
sín opinberlega í Gallerí Borg
1998. Í tilefni af sýningunni hefur
galleríið gefið út veglegan bæk-
ling en Þorsteinn heldur líka úti
vefsíðu www.formnatura.com þar
sem sjá má yfirlit um feril hans á
þessu árabili.
Verkin á sýningunni eru öll til
sölu. - pbb
Afstrakt í Frónarhúsi
MYNDLIST Þorsteinn Helgason listmálari
kannar að sögn Jóns Proppé listfræð-
ings skipulega strangflatarmálverkið og
verður því að teljast í hópi fárra afstrakt-
ista um þessar mundir.
MYND FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
–
Allir hafa hæfileika –
lög frá ýmsum
þjóðlöndum.