Fréttablaðið - 07.05.2010, Blaðsíða 30
4 föstudagur 7. maí
núna
✽ tíska og hönnun
S
nillingarnir hjá Mac hafa nú skapað dásamlega vor-
lega línu ásamt breska merkinu Liberty of Lond-
on. Liberty er fyrirtæki sem var opnað um miðbik
nítjándu aldar í Bretlandi og sérhæfði sig í efnum sem
skörtuðu fögrum blóma- og fuglamyndum, mynstrum
sem eru löngu orðin að tímalausri klassík. Meðal þeirra
listamanna sem gerðu mynstur fyir Liberty voru með-
limir listaklíkunnar „The Pre-Raphaelite movement“.
Liberty-tískuhúsið framleiðir fatnað, aukahluti og
jafnvel gúmmístígvél með Liberty-mynstrunum en
nú eru sumsé fáanlegar snyrtivörur skreyttar þess-
um „art nouveau“-mynstrum. Litirnir í snyrtivöru-
línunni sem Mac skapaði fyrir Liberty eru ein-
mitt innblásnir af myndunum og eru í mjúk-
um bláum, grænum og bleikum tónum.
Snyrtivörurnar eru svo fagrar að það ætti
að verða hrein unun fyrir allar skvísur að
eiga slíkt góss í veskinu í vor. Rómant-
ískt, hippalegt og gamaldags.
- amb
LIBERTY OG MAC FARA Í SAMSTARF:
Sykursætt
„Art Nouveau“
fyrir stelpurnar
Fallegar umbúðir Mjúk-
ir bleikir, gráir, bláir og grænir
tónar einkenna litapallettuna
MENNTASKÓLINN Í KÓPAVOGI
Upplýsingar veitir Inga Karlsdóttir fagstjóri hagnýtra viðskipta- og fjármálagreina
í síma 594 4000/8244114 eða í inga.karlsdottir@mk.is
Innritun er hafi n á:
Nám sem nýtist þér!
Skrifstofubraut I
Er tveggja anna hagnýt braut þar sem höfuðáhersla er lögð á viðskipta- og samskiptagreinar.
Kennslutími: Kl. 8:20 – 13:00. Kennsla hefst 24. ágúst. Brautin er einnig kennd í fjarnámi – sjá mk.is
Skrifstofubraut II - rekstrarfulltrúi
Sjálfstætt tveggja anna framhaldsnám á skrifstofubraut II. Mikil áhersla er lögð á tölvunám, viðskipta-
og samskiptagreinar.
Inntökuskilyrði: Krafi st er þekkingar í ensku, bókfærslu og tölvunotkun.
Þeir nemendur sem lokið hafa námi af skrifstofubraut Menntaskólans í Kópavogi ganga fyrir um skólavist.
Kennslutími: Kl. 8:20 – 13:00. Kennsla hefst 24. ágúst.
Offi ce Skills Programme for Foreign Students
Offi ce Skills Programme for students, over the age of 20, not having Icelandic as their mother tongue.
The courses are taught both in basic Icelandic and English.
Time: Mondays, Tuesdays and Wednesdays from 17:30 to 20:30. See mk.is
F atahönnuðurinn og tískuteiknarinn Hildur Yeoman hefur í vetur kennt kúrs
við Listaháskóla Íslands í tískuteiknun. Tíu
nemendur hafa lært að tileinka sér tækni í
kúrsinum sem þeir þurfa svo að yfirfæra frá
þrívíðum efnisskissum yfir í tískuteikningar
og munu bæði vinna bókverk og litla fata-
línu út frá skissunum. Í dag verður opnuð
sýning í Hugmyndahúsi háskólanna titluð
„Endurreisn-Renaissance-Resurrection,“
sem var einmitt titill kúrsins en þar gefur
að líta þá spennandi hluti sem nemendur
hafa verið að fást við undanfarna mánuði.
„Ég skoðaði vefnað og vefstóla,“ segir Stein-
unn Björg Hrólfsdóttir, einn nemandanna.
„Út frá því kom hugmyndin að nota orðið
„vefur“ og merkingu þess orðs í nútíma-
samfélagi. Aðferðin mín og hugmyndafræði
samtvinnast orðinu.“ Hera Guðmundsdóttir
segist hafa heillast af vísindum endurreisn-
artímans og þá aðallega fræðum alkemista.
„Hugmyndafræði þeirra var bæði efnafræði-
leg og andleg, breytingar á ástandi og efni
og ástandi á sjálfinu. Hugmyndafræði-
lega pælingin í verkinu er sumsé breyt-
ing ástands. Ég vann mikið með málm og
studdist við hugmyndina um koparristur
sem endaði í því að ég risti með hníf á
plexigler. Mér fannst hugmyndin um þann
leyndardóm sem alkemían var skemmtileg
og studdist við hana í gerð nærfatalínu, eins
konar leyndardóm kvenna í svefnherberg-
isskúffunni.“ Endurreisn sjálfsmyndarinn-
ar var viðfangsefni Sunnu Örlygsdóttur en
hún segist hafa sökkt sér í portrettmyndir
endurreisnartímabilsins. „Ég skoða hvern-
ig fólk miðlaði ímynd sinni þá og nú. Í dag
notar fólk til dæmis Facebook og MySpace
til að búa til ímynd af sjálfu sér fyrir aðra
til að skoða. Verkið mitt er af fimm stúlk-
um í fatnaði með tækni sem ég hef verið
að vinna með.“
Meðal fleiri verka voru teikningar gerðar
úr nammi og meira að segja úr brauðdeigi
og óhætt er að segja að sýningin verði fjöl-
breytt og spennandi fyrir alla með áhuga á
list og tísku. - amb
Endurreisn-Renaissance-Resurrection verð-
ur opnuð í dag klukkan fimm í Hugmyndahúsi
háskólanna og verður einnig opin laugardag og
sunnudag frá 12-18.
Nemendur í tískuteikningu í LHÍ opna sýningu í dag
ENDURREISN
ENDURVAKIN
Sökktu sér ofan í endurreisnartímabilið Hera Guðmundsdóttir, Steinunn Hrólfsdóttir og Sunna Örlygs-
dóttir unnu allar með mismunandi hugmyndir og miðla í verkum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Verk úr brauði Verk eftir Mai Shirato þar sem hún
notar brauðfléttur með tískuteikningum.
Myndir úr nammi Tanja Huld Guðmundsdóttir gerði skemmtileg verk úr sælgæti.
ALLT SEM ÞÚ ÞARFT Úr smiðju Bobbi Brown kemur þetta nýja
litabox sem nefnist „antigua“. þar er að finna allt sem þú þarft í einu
handtaki: náttúrulegan augnskugga, rósrauðan kinnalit og þrjá tóna
af varaglossi. fallegt og sniðugt.