Fréttablaðið - 07.05.2010, Blaðsíða 58
38 7. maí 2010 FÖSTUDAGUR
FÓTBOLTI Pepsi-deild karla hefst
næstkomandi mánudag og í dag
fjallar Fréttablaðið um liðin sem
við spáum að endi í sætum þrjú til
fimm í sumar.
5. sæti – Fram
Þorvaldur Örlygsson hefur náð
mögnuðum árangri með þetta lið á
síðustu tveimur árum. Fram-liðið
undir hans stjórn hefur verið ótrú-
lega vel skipulagt og baráttuglatt.
Fyrsta árið spilaði liðið hrútleið-
inlegan fótbolta en tók framför-
um í fyrra og spilaði þá nokkuð
skemmtilegan bolta. Síðari hlut-
inn hefur verið sterkur hjá liðinu
en það þarf að hala inn fleiri stig í
fyrri hlutanum ef það ætlar sér af
alvöru í toppbaráttuna.
Fram gæti fundið fyrir því í
sumar að hafa misst þrjá reynsl-
ubolta sem hafa reynst liðinu afar
mikilvægir á síðustu árum. Meðal-
aldurinn er því minni en getan til
þess að ná árangri er svo sannar-
lega til staðar. Liðið hefur sterkan
markvörð, góða miðverði, duglega
miðjumenn og spræka framherja
sem þó skortir meiri stöðugleika.
Hjálmar Þórarinsson þarf að
vera í sínu allra besta formi og
skora reglulega.
4. sæti – Keflavík
Það er til mikils ætlast af Kefla-
vík í sumar og ekki að ástæðu-
lausu. Liðið er afar vel mannað,
með sterka og reynda leikmenn.
Þess utan er kominn við stjórn-
völinn einn sigursælasti þjálfari
íslenskrar knattspyrnu, Willum
Þór Þórsson.
Lið Willums hafa ítrekað blómstr-
að á fyrsta ári undir hans stjórn.
Keflavík þurfti ferska vinda og með
þjálfara eins og Willum gæti þetta
lið hæglega blandað sér í alvarlega
titilbaráttu.
Það eru ekki miklar breytingar
á leikmannahópi liðsins en það á
örugglega eftir að sakna Simuns
Samuelsen. Það mun mikið mæða á
Hólmari Erni að keyra liðið áfram
en Hólmar í toppformi er einn af
bestu mönnum deildarinnar. Guð-
mundur Steinarsson þarf að skila
sínum mörkum og ef Willum tekst
að koma Herði Sveinssyni í gang
eru Keflvíkingar í góðum málum.
Ómar Jóhannsson er kominn aftur
í markið og varnarlínan er sterk.
Alen Sutej gæti endað í bakverðin-
um sem er áhyggjuefni enda spil-
aði hann ekki vel í þeirri stöðu síð-
asta sumar.
Það mun líklega há liðinu eitt-
hvað að geta ekki spilað á sínum
eigin heimavelli framan af sumri.
3. sæti – Breiðablik
Breiðablik braut mikinn múr síð-
asta sumar með því að vinna sinn
fyrsta stóra bikar. Að sama skapi
eru nú gerðar meiri kröfur til liðs-
ins en síðustu ár. Það er pressa á
Blikum að gera eitthvað í sumar.
Frábærir knattspyrnumenn eru í
liðinu en það mun örugglega sakna
Arnars Grétarssonar mikið en hann
var þessu unga liði ómetanlegur á
síðustu árum. Það er því pressa á
Guðmundi Kristjánssyni að stíga úr
skugga Arnars og taka við leiðtoga-
hlutverkinu.
Það verður einnig pressa á efni-
legasta leikmanni síðasta sum-
ars, Alfreð Finnbogasyni, að halda
áfram að skora. Guðmundur Péturs-
son þarf einnig að sanna að tímabil-
ið í fyrra hafi ekki verið einstakt
tilfelli.
Þetta lið er pakkað af hæfileik-
um, getur spilað magnaðan fót-
bolta en liðið er ungt og brothætt.
Ef Blikar ætla sér alla leið þurfa
þessir ungu drengir að verða að
mönnum í sumar.
henry@frettabladid.is
Lið: Fram
Spá Fréttablaðsins: 5. sæti.
Árangur í fyrra: 4. sæti.
Þjálfari: Þorvaldur Örlygsson.
Lykilmaður: Hjálmar Þórarinsson.
Styrkleikar: Öflugur og skipu-
lagður þjálfari sem nær miklu út
úr liðinu, baráttuglatt lið og vel
samstillt. Sterkur markvörður og
fínir miðverðir.
Veikleikar: Vantar reynslubolta í
liðið, framherjar ekki nógu stöðug-
ir, lélegur heimavöllur, lítil breidd
í liðinu.
Helstu breytingar: Liðið missti
Auðun Helgason, Paul McShane,
Heiðar Geir Júlíusson og Ingvar
Ólason en fékk á móti Jón Gunnar
Eysteinsson, Tómas Leifsson og
Alexander Veigar Þórarinsson.
Lið: Keflavík.
Spá Fréttablaðsins: 4. sæti.
Árangur í fyrra: 6. sæti.
Þjálfari: Willum Þór Þórsson.
Lykilmaður: Hólmar Örn Rúnars-
son.
Styrkleikar: Reynslumikið lið,
öflugur þjálfari sem kann að vinna
titla, sterkir miðjumenn og skæðir
framherjar.
Veikleikar: Án heimavallar fram-
an af móti, ekki nógu stöðugur
markvörður.
Helstu breytingar: Liðið missti
Jón Gunnar Eysteinsson, Lasse
og Nicolai Jörgensen og Simun
Samuelsen. Til liðsins komu Paul
McShane, Andri Steinn Birgisson
og Ómar Karl Sigurðsson.
Lið: Breiðablik.
Spá Fréttablaðsins: 3. sæti.
Árangur í fyrra: 5. sæti.
Þjálfari: Ólafur Helgi Kristjánsson.
Lykilmaður: Guðmundur Kristj-
ánsson.
Styrkleikar: Vel spilandi lið, bar-
áttuglatt, sprækir framherjar.
Veikleikar: Lítil reynsla, liðið er
brothætt.
Helstu breytingar: Liðið hefur
misst Arnar Grétarsson og Guð-
mann Þórisson. Í staðinn hafa
komið Guðmundur Pétursson og
Jökull Elísabetarson.
Stóru spurningarmerkin í sumar
Liðin þrjú í Pepsi-deild karla sem Fréttablaðið fjallar um í dag hafa öll burði til þess að blanda sér í barátt-
una á toppnum. Við köllum þau spurningarmerkin en spurning hvort þau geta veitt FH og KR samkeppni.
SIGURVEGARI Willum Þór er með uppskriftina að meistaraformúlunni. Lið hans
blómstra á fyrsta ári undir hans stjórn og verður áhugavert að sjá hvað hann gerir
með Keflavíkurliðið. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Við látum það berast
Fyrirtækjaþjónusta Pósthússins býður upp á hagstæðar dreifingarlausnir
á almennum bréfum, blöðum, tímaritum og vörum.
Kynntu þér póstmiðlun Pósthússins og við hjálpum þér að ná fram
sparnaði hjá þínu fyrirtæki.
Hafðu samband við sölufulltrúa Pósthússins í síma 585 8300 eða sendu
tölvupóst á netfangið posthusid@posthusid.is
Pósthúsið ehf. Suðurhrauni 1 | 210 Garðabær | S: 585 8300 | www.posthusid.is
Viltu lækka rekstrarkostnaðinn?
HANDBOLTI Atli Hilmarsson verð-
ur næsti þjálfari Akureyrar í N1-
deild karla í handbolta en hann
skrifaði undir tveggja ára samn-
ing á Akureyri í gær.
„Þetta er skemmtilegt verkefni
og mér líst bara vel á þetta. Ég er
mjög ánægður með samsetninguna
á liðinu því þetta eru ungir og efni-
legir strákar með reynsluboltum,“
sagði Atli Hilmarsson, sem mun
taka við stöðunni af Rúnari Sig-
tryggssyni sem hefur þjálfað Akur-
eyrarliðið síðan Þór og KA voru
sameinuð. Atli þjálfaði kvennalið
Stjörnunnar undanfarin tvö tíma-
bil og gerði Garðabæjarliðið að
Íslandsmeisturum í fyrra.
„Ég kom alveg óvart inn í þetta
hjá Stjörnunni og þessi tvö ár með
Stjörnunni voru alveg frábær.
Það kveikti í mér að halda áfram
í þessari þjálfun og það var strax
mjög spennandi fyrir mig þegar
þetta bauðst,“ segir Atli Hilmars-
son sem er þó ekki að rífa upp fjöl-
skylduna þótt hann fari norður.
„Ég flyt norður en ekki með fjöl-
skylduna því ég fer bara einn. Það
má segja að ég fari á handboltaver-
tíð í einhvern tíma og það verður
bara að koma í ljós hvort ég haldi
þetta út,“ segir Atli.
Það er ljóst að Jónatan Þór
Magnússon, Árni Þór Sigrryggs-
son og Hörður Flóki Ólafsson fara
frá liðinu en Atli býst við að halda
öðrum leikmönnum og reyna að
bæta við liðið líka.
„Við þurfum einhvern veginn að
reyna að styrkja þetta með í það
minnsta tveimur leikmönnum og
það verður bara farið í það núna.
Ég er búinn að setja upp óskalista
en það er ekki víst að það gangi,“
segir Atli.
Atli þekkir vel til á Akureyri en
hann þjálfaði karlalið KA á árun-
um 1997 til 2002 og gerði liðið að
Íslandsmeisturum á síðasta tíma-
bilinu. Þrír leikmenn Akureyrar
í dag, Heimir Örn Árnason, Haf-
þór Einarsson og Hreinn Hauks-
son, léku með KA-liðinu fyrir átta
árum.
„Það er aðeins öðruvísi að taka
við liðinu núna en þegar ég tók við
KA 1997. Þá tók ég við af Alfreð
Gíslasyni sem var búinn að gera
KA að Íslandsmeisturum í fyrsta
sinn. Það töldu margir að það væri
óðs manns æði hjá mér að fara
norður en það gekk mjög vel. Við
misstum fullt af leikmönnum en
það komu þessir ungu strákar upp
og þeir voru bara tilbúnir. Þar á
meðal voru menn eins og Heimir
sem eru enn þá í þessu. Það verður
bara gaman að koma aftur,“ segir
Atli. - óój
Atli Hilmarsson tók við Akureyrarliðinu í gær:
Fer á handbolta-
vertíð fyrir norðan
ATLI HILMARSSON Þjálfaði KA-menn frá
1997 til 2002 og gerði þá að Íslands-
meisturum 2002. FRÉTTABLAÐIÐ/HILMAR ÞÓR