Fréttablaðið - 15.05.2010, Page 8
8 15. maí 2010 LAUGARDAGUR
Vakningarfundur
Nýju frambjóðendur Samfylkingarinnar í Reykjavík,
Hjálmar Sveinsson útvarpsmaður og Bjarni Karlsson
sóknarprestur, bjóða til vakningarfundar
ásamt tónlistarmanninum KK.
Hittumst í Kolaportinu
á morgun, sunnudag, kl. 16.
Fegurð Reykjavíkur og gildi umhyggjunnar
Opnum hugann.
Breytum stjórnmálunum.
Sláum nýjan tón!
Auður hefur frá upphafi lagt áherslu á ábyrga hegðun í allri sinni starfsemi.
Við trúum því að við getum öll lagt okkar af mörkum til að byggja upp heilbrigt samfélag.
Þess vegna vill Auður leggja þeim lið sem stuðla að jákvæðri uppbyggingu og framförum.
DAGSVERK AUÐAR
er samfélagsverkefni starfsmanna Auðar.
Dagsverkið felst í því að starfsmenn gefa and-
virði dagslauna á hverju ári í verðugt málefni.
Ennfremur vinna allir starfsmenn Auðar
sem nemur einum vinnudegi á ári í þágu góðs
málefnis. Starfsmenn Auðar velja verkefni
sem hljóta fjár- eða vinnuframlag.
ALHEIMSAUÐUR
er samfélagssjóður ætlaður til að hvetja konur
til frumkvæðis og athafna, einkum í þróunar-
löndum. Auður leggur 1% af hagnaði sínum
í sjóðinn og býður viðskiptavinum að gera slíkt
hið sama. Stjórn AlheimsAuðar tekur ákvörðun
um úthlutun styrkja.
Ábyrg arðsemi – Mannleg nálgun
ÞÚ GETUR
BREYTT HEIMINUM
VIÐ AUGLÝSUM EFTIR
STYRKUMSÓKNUM
Umsækjendur eru hvattir til að skilgreina
verkefnið vel, sýna fram á hvernig það
fellur að markmiði viðkomandi sjóðs
og tilgreina hversu háa fjárhæð sótt er
um og/eða hverskonar vinnuframlag.
Umsóknarfrestur er til
26. maí 2010.
Styrkjum verður úthlutað þann
19. júní 2010.
Umsóknum má skila á audur@audur.is
Nánari upplýsingar á www.audur.is
SAMAN BÆTUM VIÐ SAMFÉLAGIÐ
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
01
19
9
Starfsmenn Auðar við sjálfboða-
störf í verslun Rauða krossins
Fræðslumiðstöð Enza í S-Afríku
hlaut styrk árið 2009.
Auður getur lagt þér lið
Auður Capital | Borgartúni 29 | 105 Reykjavík | S. 585 6500
TAÍLAND, AP Mótmælendum laust
saman við hermenn í miðborg
Bangkok, höfuðborgar Taílands í
gær. Hermenn skutu af hríðskota-
rifflum á mannfjöldann. Átta lét-
ust í átökunum í gær og í það
minnsta 101 slasaðist.
Þegar kvölda tók í Bangkok í
gær mátti heyra sprengingar og
byssuhvelli frá viðskiptahverfi
borgarinnar, þar sem um það bil
tíu þúsund stjórnarandstæðingar
hafa hreiðrað um sig. Reykur frá
götuvígjum með brennandi dekkj-
um lagðist yfir borgina.
„ Hermen ni r n i r er u að
umkringja okkur, það er verið að
kremja okkur. Þetta er ekki borg-
arastyrjöld, en þetta er hrikalega
grimmilegt,“ sagði Weng Tojirak-
arn, einn leiðtoga mótmælenda í
gær.
Eftir því sem ofbeldið eykst
minnka líkurnar á því að mótmæl-
endur og stjórnvöld nái friðsam-
legri lendingu í langvinnri deilu
sinni. Óvissan og ofbeldið hafa
dregið verulega úr komu ferða-
manna til Taílands, en ferðamenn
eru ein aðaltekjulind landsins.
Ofbeldið færðist enn í aukana
eftir að hershöfðingi hliðhollur
hinum rauðklæddum uppreisn-
armönnum var skotinn í höfuðið
í miðju viðtali við fjölmiðlamenn
á fimmtudag. Hann liggur nú
milli heims og helju á sjúkrahúsi.
Mótmælendur halda því fram að
leyniskytta á vegum stjórnvalda
hafi reynt að myrða hershöfðingj-
ann.
Hermenn skrúfuðu í gær fyrir
vatn og rafmagn í viðskiptahverf-
inu þar sem mótmælendur hafa
haldið til undanfarnar vikur. Yfir-
menn hersins segja mótmælendur
hafa ráðist gegn hermönnunum og
reynt að ögra þeim, en mótmæl-
endur segja hermenn hafa þrengt
að sér.
Vitni lýsa götubardögum þar
sem mótmælendur hentu steinum
og bensínsprengjum og hermenn
svöruðu með hríðskotarifflum,
haglabyssum og táragasi.
Frá því mótmælendurnir komu
sér fyrir í miðborginni um miðjan
mars hafa 37 látið lífið og hundr-
uð særst í átökum við lögreglu og
hermenn.
Mótmælendur krefjast þess
að forseti landsins víki og boðað
verði til kosninga. Þeir styðja
Thaksin Shinawatra, fyrrverandi
forsætisráðherra landsins, sem
velt var úr embætti með valdar-
áni hersins árið 2006. Talið er
að hann fjármagni mótmælin að
hluta úr útlegð sinni.
brjann@frettabladid.is
Átta fallnir í
mótmælum
Hermenn skutu á mótmælendur í viðskiptahverfi
Bangkok í Taílandi í gær og beittu táragasi. Átta lét-
ust og yfir eitt hundrað særðust í hörðum átökum.
Ekkert bendir til þess að samkomulag sé í augsýn.
GÖTUBARDAGAR Á annað hundrað stjórnarandstæðingar særðist í mótmælunum í
miðborg Bangkok í gær. Mótmælin hafa nú staðið í tvo mánuði, og hafa alls 37 látið
lífið í átökum mótmælenda og hermanna. NORDICPHOTOS/AFP
KOSNINGAR Kjósandi í Kópavogi sem
hugðist greiða Næstbesta flokknum
atkvæði furðaði sig á því að aðeins
voru stimplar með listabókstöfum
fjórflokkanna í kjörklefa Sýslu-
mannsins í Kópavogi. Þurfti hann
að spyrjast fyrir hverju þetta sætti.
Sjö flokkar bjóða fram í kosningun-
um 29. maí.
„Atvikið vekur fyrst og fremst
spurningar um framkvæmd
atkvæðagreiðslunnar,“ segir Hjálm-
ar Hjálmarsson, oddviti Næstbesta
flokksins, og bendir á að stimplar
með listabókstöfum sendi kjósend-
um viss skilaboð, vitað mál sé að
þeir séu misvel upplýstir. „Það er
líka umhugsunarefni að utankjör-
fundaratkvæðagreiðslan hefst svo
löngu áður en öll framboðin liggja
fyrir,“ segir hann.
Þær upplýsingar fengust hjá
Sýslumanninum í Kópavogi að
málið hafi leyst farsællega, en
framboð Næstbesta flokksins, sem
fékk listabókstafinn X, hafi komið
svo seint fram að ekki hafi unnist
tími til að útbúa stimpil.
Jón Atli Kristjánsson, formaður
kjörstjórnar í Kópavogi, telur frá-
leitt að það hafi áhrif á kosning-
una þótt stimpill sé ekki til staðar.
„Kjósandi skrifar einfaldlega niður
hvað hann ætlar að kjósa með eigin
hendi.“ - shá
Kjósandi í Kópavogi saknaði stimpils með listabókstaf Næstbesta flokksins:
Listabókstaf vantaði í klefann
FRAMBJÓÐENDUR Þrír af frambjóðendum
Næstbesta flokksins, Erla Karlsdóttir,
Hjálmar Hjálmarsson og Benedikt Nikulás
Anes Ketilsson. MYND/ARNAR HALLDÓRSSON
VIÐSKIPTI Arion banki leysir ekki
frá störfum fjóra grunaða sem
enn starfa hjá bankanum nema
ákæra verði gefin út á hendur
þeim. Komi til þess verða þeir
umsvifalaust sendir í leyfi, segir
Berghildur Erla Bernharðsdóttir,
upplýsingafulltrúi bankans.
Starfsmennirnir, sem áður
störfuðu hjá Kaupþingi, hafa rétt-
arstöðu sakbornings í rannsókn
sérstaks saksóknara á málefnum
Kaupþings. Samkvæmt heimild-
um Fréttablaðsins er ekki um
háttsetta stjórnendur að ræða. - sh
Grunaðir enn við störf í Arion:
Hætta ef ákæra
verður gefin út
Office 2010 komið út
Fyrsta kastið fá bara fyrirtæki með
leyfissamninga við Microsoft aðgang
að nýjustu útgáfu skrifstofuhugbúnað-
arvöndulsins Office 2010. Vöndullinn
fer í almenna sölu í næsta mánuði.
UPPLÝSINGATÆKNI
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
Allt sem þú þarft…