Fréttablaðið - 15.05.2010, Page 12
12 15. maí 2010 LAUGARDAGUR
FRÉTTASKÝRING: Hvernig er lagt til að stjórnkerfinu verði breytt?
Kolbeinn
Óttarsson Proppé
kolbeinn@frettabladid.is
Starfshópur forsætisráðu-
neytisins leggur til um-
fangsmiklar breytingar á
stjórnsýslunni og stjórn-
arskránni í kjölfar skýrslu
rannsóknarnefndar Alþing-
is. Áhersla er lögð á færri
og stærri ráðuneyti, söfnun
upplýsinga og að ráðherrar
beri aukna ábyrgð.
Starfshópurinn tekur í meginatrið-
um undir aðfinnslur rannsóknar-
nefndarinnar. Hans var að útfæra
hugmyndir um hvernig brugðist
yrði við þeim og útfæra nánar þær
breytingar sem ráðast ætti í og
beina sjónum sínum að stjórnsýsl-
unni og stjórnarráðinu.
Niðurstaða starfshópsins er að
mjög mikilvægt sé að tillögum í
skýrslunni sé fylgt. Ýmis atriði
eru komin á rekspöl, til að mynda
er starfandi nefnd um endurskoðun
á lögum um Stjórnarráð Íslands og
tengdri löggjöf.
Starfshópur-
inn leggur til að
ýmsum atriðum
verði vísað til
þeirrar nefndar.
Auk þeirra til-
lagna rannsókn-
arnefndarinnar
sem starfshóp-
urinn mælist til
að farið sé eftir,
leggur hann til
beinar aðgerðir í níu liðum.
Þegar þeir eru skoðaðir sést að
efling ráðuneyta er ofarlega í huga
hópsins. Hann leggur mikla áherslu
á að þau verði stærri og öflugri
stjórnsýslueiningar og embættis-
mönnum verði betur gert kleift að
sinna skyldum sínum. Það á einn-
ig við um ráðherra, en því er velt
upp hvort ekki eigi að rýmka heim-
ildir þeirra til að ráða sér pólitíska
aðstoðarmenn.
Þá er einnig lögð rík áhersla á
að ábyrgð sé skýrð; bæði ráðherra
og embættismanna. Ljóst verði að
vera hverju sinni hvar hún liggi.
Efla upplýsingar og eftirlit
Í því skyni er lagt til að komið
verði upp óháðu eftirliti með ráðu-
neytum. Lagt verði mat á frammi-
stöðu æðstu stjórnenda. Þá þurfi
að lögfesta skyldur og ábyrgð
embættismanna betur, ekki síður
en ráðherranna sjálfra.
Meðal þess sem starfshópur-
inn leggur til að gert verði er að
stuðla að svokölluðum samstöðu-
skapandi stjórnmálum. Með því
er átt við að sá hópur sem kemur
að ákvörðunum verði víkkaður
út. Þar er horft til þess að stjórn-
arandstaðan sé höfð með í ráðum.
Í því skyni leggur hópurinn til að
hlutverk Alþingis verði eflt.
Þá er mikið lagt upp úr því að
upplýsingasöfnun sé ábótavant.
Gera verði gangskör að því að
bæta hana, bæði hvað varðar
formlega og óformlega fundi. Það
nái einnig til munnlegra upplýs-
ingar. Hópurinn varar þó við því
að upplýsingalög megi ekki koma
í veg fyrir samráð, eða samstarf,
á milli stjórnvalda.
Starfshópinn skipuðu þau
Gunnar Helgi Kristinsson, próf-
essor í stjórnmálafræði við
Háskóla Íslands, sem gegndi
formennsku, Oddný Mjöll Arn-
ardóttir, prófessor við lagadeild
Háskólans í Reykjavík, Ómar H.
Kristmundsson, prófessor í opin-
berri stjórnsýslu við Háskóla
Íslands, Kristín Benedikts-
dóttir hæstaréttarlögmaður og
Trausti Fannar Valsson, lektor
við lagadeild Háskóla Íslands.
Með hópnum starfaði Ágúst Geir
Ágústsson, skrifstofustjóri í for-
sætisráðuneytinu.
Aukin ábyrgð og stærri
og færri ráðuneyti
Smæð stjórnsýslunnar hér á landi
er vandamál að mati starfshópsins.
Þeim grundvallarstaðreyndum verði
ekki breytt, heldur verði að takast
á við þau verkefni sem þær skapa.
Þau lúti að innra skipulagi og starfs-
háttum stjórnkerfisins annars vegar
og hins vegar að áhersluþáttum
þess í samskiptum út á við. Mörg
atriði verði að hafa í huga.
■ Stuðlað verði að samstöðu-
skapandi stjórnmálum og meirihlut-
aræði minnkað. Það verði gert með
því að efla eftirlits- og umræðuhlut-
verk þingsins. Þá er hugsanlegt að
veita skilgreindum minnihluta rétt til
að beina málum í ákveðinn farveg,
til dæmis þjóðaratkvæðagreiðslu.
■ Ráðuneyti sameinuð og efld.
Þær skipulagsheildir sem stjórn-
kerfið er byggt upp af verði styrktar,
vegna veiks stoðkerfis.
■ Samþætting utanríkisráðuneyt-
isins við aðra stjórnsýslu. Þannig
nýtist þekking þar öllu stjórnkerfinu,
þegar kemur að samskiptum út á
við.
■ Hugmyndir og þekking verði
flutt inn að utan. Stjórnkerfið læri
af reynslu erlendis frá, til dæmis í
Evrópuráðinu, hjá Sameinuðu þjóð-
unum og af norrænu samstarfi.
Samstöðuskapandi stjórnmál
Starfshópurinn leggur á það áherslu
að gagnrýni rannsóknarnefndarinn-
ar á málaskráningu og skjalavörslu
hjá Fjármálaeftirlitinu sé heimfærð
á alla stjórnsýsluna. Efla þurfi
innleiðingu á notendavænni upp-
lýsingatækni í opinberri stjórnsýslu
og auka möguleika á að nýta hana
sem stjórntæki í daglegri starfsemi.
Skráning bætt
Umfangsmestu breytingarnar sem
starfshópurinn leggur til eru á starf-
semi Stjórnarráðs Íslands. Hópurinn
vildi vísa tillögunum til nefndar sem
vinnur að endurskoðun laga um
Stjórnarráðið. Nú hefur ríkisstjórnin
samþykkt frumvarp sem lagt verður
fram á yfirstandandi þingi. Breyting-
arnar eru í átta liðum.
■ Ábyrgð ráðherra - skerpt á
stjórnunar- og eftirlitsskyldum.
■ Skyldur ráðherra - útfæra nánar
hvað varðar upplýsingaskyldu, sann-
leiksskyldu og frumkvæðisskyldu.
■ Verkstjórn - hlutverk forsætis-
ráðherra sem verkstjóra ríkisstjórnar
tryggt í sessi. Honum ber að upplýsa
alla ráðherra um málefni þeirra
ráðuneyta. Sú framkvæmd sem
skapast hefur með ráðslagi oddvita
ríkisstjórnarflokkanna ýtir undir
þörfina.
■ Ríkisstjórnarfundir - reglur
verði skýrari, skilgreind hvað teljast
mikilvæg stjórnarmál og þurfi fyrir
ríkisstjórn.
■ Ráðherranefndir - lagarammi
skýrður og hver munur er á slíkum
nefndum og fundum einstakra ráð-
herra um stjórnsýsluleg efni.
■ Pólitískir starfsmenn - kannað
hvort og með hvaða hætti möguleiki
ráðherra til að ráða sér pólitíska
starfsmenn verði efldur.
■ Ráðuneytum fækkað - einfaldar
samstarf í ríkisstjórn.
■ Embættismenn - sérstakar
skyldur æðstu embættismanna
gagnvart ráðherrum lögfestar.
Ítarlegar breytingar lagðar til á Stjórnarráðinu
Hópurinn vill breyta stjórnsýslu-
lögum til að tryggja skýrari laga-
setningu. Sú óskráða regla um að
athafnir og ákvarðanir stjórnvalda
þurfi að vera efnislega ákveðnar
og skýrar, verði lögfest. Með því
er tryggt að einstaklingar, sem
eiga samskipti við stjórnvöld, á
hverjum tíma skilið lögin og metið
réttarstöðu sína.
Lög verði skýr
Hópurinn vill að tekið sé tillit til
athugasemda í skýrslu rannsóknar-
nefndarinnar varðandi söfnun upp-
lýsinga. Endurskoða verði ákvæði
um skráningu munnlegra upplýs-
inga. Víkka þurfi gildissvið þeirrar
reglu svo hún taki einnig til annarra
mikilvægra upplýsinga en þeirra
sem varða úrlausn stjórnsýslumál.
Hópurinn áréttar hins vegar
að tryggja verð að upplýsingalög
standi ekki í vegi fyrir því að stjórn-
völd geti haft samráð og samstarf
sín á milli, til dæmis með nefndum
og hópum.
Upplýsingalög
STJÓRNARRÁÐ ÍSLANDS Starfshópurinn, sem Gunnar Helgi Kristinsson veitti for-
mennsku, leggur til ýmsar breytingar á starfsemi Stjórnarráðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
LÍTIÐ SKRÁÐ Rannsóknarnefndin gagn-
rýndi að lítið hefði verið skráð niður af
mikilvægum fundum, til dæmis á mili
forsætisráðherra og seðlabankastjóra.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
GUNNAR HELGI
KRISTINSSON
ODDVITARNIR Skýrari reglur þarf um
verkstjórn forsætisráðherra.
SAMRÁÐ Starfshópurinn leggur til
að komið verði á samstöðuskapandi
stjórnmálum og dregið úr meirihluta-
ræði.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
!
"#$%&'' ()(*++,
- !