Fréttablaðið - 15.05.2010, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 15. maí 2010 13
Efla verður til muna eftirlit með
fjármálamarkaði að mati starfs-
hópsins. Tekur hann þar undir
með rannsóknarnefnd Alþingis.
Athugasemdir hennar voru í fjór-
um meginþáttum:
■ við reglur um eftirlit á fjármála-
markaði.
■ við starfsemi Fjármálaeftirlitsins.
■ við starfsemi Seðlabanka
Íslands.
■ við stefnumótun stjórnvalda á
sviði fjármálamarkaðar.
Starfshópurinn bendir á að
í frumvarpi efnahags- og við-
skiptaráðherra um breytingar
á lögum um fjármálastarfsemi,
sé að nokkru komið til móts við
tillögur rannsóknarnefndarinnar.
Fylgja þurfi þó eftir tillögum um
starfsemi Fjármálaeftirlitsins og að
starfsskilyrði þess séu tryggð. Þá
vill hópurinn endurskoða lög um
Seðlabanka Íslands. Þá þurfi að
taka pólitíska afstöðu til þróunar
fjármálamarkaðar.
Efla verður eftirlit
með fjármála-
markaði
Hópurinn skoðaði einnig lög um
réttindi og skyldur starfsmanna
ríkisins og starfsmannastefnu rík-
isins almennt. Hann vill skerpa á
ýmsum atriðum í því skyni að efla
fagþekkingu. Huga verður þó „að
hinu víða samhengi starfskjara,
fjölda starfsmanna, uppbyggingu
þeirra skipulagsheilda sem um er
að ræða, stjórntækja yfirmanna
gagnvart starfsmönnum og svo
því hvaða mælitæki og hvata
hægt er að nýta til að viðhalda
nauðsynlegri færni og aðhaldi að
opinberum starfsmönnum.“ Tillög-
ur hópsins snúa að ýmsu.
■ Frammistaða æðstu stjórn-
anda verði metin reglulega af
hlutlausum aðila.
■ Mannaflsþörf Stjórnarráðsins
verði metin.
■ Ráðuneyti sameinuð og
fækkað. Úr verði öflugri einingar.
■ Dregið verði úr afskiptum
ráðherra við ráðningar æðstu
embættismanna.
■ Leiðsögn verði skipulögð
fyrir starfsmenn Stjórnarráðsins
sem snertir pólitísk viðfangsefni,
án þess að það bitni á kröfu um
óhlutdrægni.
Fagþekking efld
og eftirlit einnig
Í skýrslu hópsins segir að stefnu-
mótun sé mikilvægur þáttur af
starfi Stjórnarráðsins. Hún tengist
stefnumörkun sem fer fram af
hálfu stjórnmálaflokka. Nokkur
atriði verði að skoða í þessum
málum.
■ Ríkisendurskoðun hafi
eftirlit með fjárstuðningi við
stjórnmálaflokka og honum verði
hagað með markvissari hætti.
Hann styðji við stefnumótun og
félagsstarf.
■ Meginhagsmunir þeir sem
lögum er ætlað að tryggja verði
tíundaðir í aðdraganda lagasetn-
ingar.
■ Stutt verði við það starf sem
skrifstofa löggjafarmála í forsætis-
ráðuneytinu vinnur og vinnubrögð
við undirbúning stjórnarfrumvarpa
þannig bætt.
■ Komið verði á fót ytra eftirliti,
með formlegu ferli, eða miðstöð,
svo þingmenn geti fengið álit á
hvort löggjöf standist stjórnarskrá
og helstu alþjóðasáttmála sem
Ísland á aðild að.
Stefnumótun og löggjöf
Starfshópurinn vill breyta að
minnsta kosti fyrstu tveimur
köflum stjórnarskrárinnar. Hann
vill að tekið verði á fjölmörgum
atriðum.
■ þingræðisreglu
■ stöðu forsetans
■ ábyrgð ráðherra á stjórnar-
athöfnum.
■ verkaskiptingu milli ráðherra
■ hlutverki forsætisráðherra í
Stjórnarráði Íslands.
■ þýðingu ríkisstjórnarfunda
■ ákvæði um embættismenn
Stjórnarskráin
ENDURSKOÐA ÞARF LÖG Starfshóp-
urinn telur að endurskoða verði lög
um Seðlabanka Íslands til að skerpa
eftirlit með fjármálamarkaði. Þá þurfi
að taka pólitíska afstöðu til þróunar
fjármálamarkaðar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
RÉTTUR ÞINGMANNA Starfshópurinn vill efla eftirlits-
hlutverk alþingismanna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FRELSISSKRÁ ÚR FÖÐURHENDI Hópur-
inn vill breyta stjórnarskránni.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Kynntu þér aðgerðaráætlun
okkar á xsreykjavik.is
Vekjum
Reykjavík!
KOMUM VINNUFÚSUM HÖNDUM TIL STARFA.
KJÓSUM SAMFYLKINGUNA!
Atvinnulausir Reykvíkingar hafa aldrei verið fl eiri. Samfylkingin
sættir sig ekki við það. Borgin þarf að vakna, taka forystu og beita
öllu afl i til að minnka atvinnuleysið og fl ýta endurreisninni.
Samfylkingin vill binda enda á aðgerðaleysið og hrinda
markvissum og mikilvægum aðgerðum í framkvæmd.
1. Átak í nýsköpun og nýtingu á tómu húsnæði
2. Endurnýjun í eldri hverfum og efl ing innviða
3. Samstillt vaxtarátak á öllu höfuðborgarsvæðinu
4. Tvöföldun viðhalds og auknar verklegar framkvæmdir
5. Vaxtarátak í græna geiranum
Við verðum líka að liðsinna fólki meðan á atvinnuleit stendur,
veita því öryggi og hlúa að félagslegri virkni. Annars getur
atvinnuleysið valdið miklu andlegu tjóni!
KJÓSUM MEIRI KRAFT OG ÖRUGGA ATVINNU