Fréttablaðið - 15.05.2010, Page 47

Fréttablaðið - 15.05.2010, Page 47
LAUGARDAGUR 15. maí 2010 5 Sumarstörf hjá UNIFEM UNIFEM á Íslandi leitar að jákvæðu og dugmiklu fólki (18 ára og eldri) til að sinna fjáröfl un og kynningarstörfum fyrir samtökin í júní og júlí. Starfi ð felst í því að kynna starf UNIFEM með götukynningu og úthringingum og bjóða fólki að gerast styrktaraðilar. Um er að ræða hálft starf sem fer að mestu leiti fram seinni part dags. Viðkomandi þarf að vera opinn, framfærinn, áreiðanlegur og vera sjálfstæður í vinnubrögðum. Áhugi og þekking á þróunarmálum, kven- réttindum og málstað UNIFEM er kostur. Umsóknarfrestur til 20. maí 2010. Áhugasamir umsækjendur sendi ferilskrá og umsókn á eva@unifem.is. Nánari upplýsingar í síma 552 6200. UNIFEM á Íslandi – Laugavegi 42 – 101 Reykjavík Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Vesturlandi auglýsir eftir Forstöðumanni í búsetuþjónustu / frekari liðveislu á Akranesi Svæðisskrifstofa Vesturlands óskar eftir þroskaþjálfa, í 50% starf forstöðumanns í búsetuþjónustu / frekari liðsveislu á Akranesi Forstöðumaðurinn er þátttakandi í þverfaglegri þjónustu svæðisskrifstofunnar. Lögð er stérstök áhersla á gott samstarf við neytendur þjónustunnar og starfsfólk við uppbyggingu og framkvæmd þjónustunnar. Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi góða samstarfshæfi leika og virði aðra á jafnréttisgrundvelli. Umsóknarfrestur er til 31. maí n.k. Nánari upplýsingar veitir Magnús Þorgrímsson framkvæmdastjóri í síma 4331700 netfang: magnus@sfvesturland.is. og Jórunn Guðmundsdóttir í síma 4331714. Laun skv. gildandi kjarasamning- um. Skrifl egar umsóknir sendist til Svæðisskrifstofu Vesturlands Bjarnarbraut 8 - 310 Borgarnes Frekari upplýsingar um starfið veitir Ragnheiður Valdimarsdóttir starfs- þróunarstjóri í síma 585 4300. Áhugasamir sendi umsóknir á rafrænu formi á netfangið ragnheidurv@icelandtravel.is fyrir 31. maí nk. Öllum umsóknum svarað og fullum trúnaði heitið. Umsóknir skal senda á ragnheidurv@icelandtravel.is Iceland Travel er leiðandi fyrirtæki í ferðaþjónustu á Íslandi. Fyrirtækið er hluti af Icelandair Group og hefur í rúm 30 ár sérhæft sig í móttöku erlendra ferðamanna frá öllum heimshornum sem og skipulagningu ráðstefna á Íslandi. Ferðaskrifstofan VITA var stofnuð í júní 2008 og er rekin af Iceland Travel. Helsta markmið ferðaskrifstofunnar er að bjóða upp á fjölbreytt úrval ferða í leiguflugi með góðri þjónustu og tryggum flugkosti á samkeppnishæfu verði.. Hjá Iceland Travel og VITA starfa um 75 manns sem þjóna rúmlega 40 þúsund viðskiptavinum á ári hverju. Starfssvið Samningagerð og samvinna við birgja Þátttaka í birgða- og tekjustýringu Þátttaka í verðlagningu Upplýsingamiðlun Menntunar- og hæfniskröfur Háskólapróf sem nýtist í starfi Mjög góðir samskiptahæfileikar Góð greiningarhæfni Geta til að starfa sjálfstætt og í hóp Metnaður til að ná árangri í starfi Reynsla af íslenskri ferðaþjónustu er kostur Skútuvogi 13 a 104 Reykjavík 585 4300 icelandtravel.is Verkefnastjóri á innkaupasviði Við leitum að drífandi aðila til að starfa í innkaupateymi félagsins. Ábyrgð innkaupateymis er að tryggja samkeppnis- hæfni félagsins á markaði hverju sinni. Viðkomandi starfar sem helsti tengiliður birgja og starfsmanna Iceland Travel. Um kefjandi starf í alþjóðlegu umhverfi er að ræða. Iceland Travel Verkefnastjóri Nánari upplýsingar veitir: Þórir Þorvarðarson, thorir@hagvangur.is Umsóknarfrestur er til og með 24. maí nk. Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700 www.hagvangur.is Markaðsstjóri Útflutningsráð, í samvinnu við Fiskifélag Íslands, óskar eftir að ráða markaðsstjóra íslenskra sjávarafurða. Meginverkefni: • Kynning á ábyrgum fiskveiðum Íslendinga • Kynning á vottun ábyrgra veiða (Iceland Responsible Fisheries) • Önnur sameiginleg markaðsverkefni íslenskra fiskútflytjenda • Gerð kynningarefnis, rekstur vefsíðu, þátttaka í sýningum og ráðstefnum, sem og kynningarfundir innanlands og utan • Náin samvinna við innlenda og erlenda hagsmunaaðila Hæfnis- og menntunarkröfur: • Menntun á sviði markaðsmála eða skyldra greina • Þekking og reynsla tengd sjávarútvegi • Góð tungumálakunnátta, mjög góð enska nauðsynleg, önnur mál æskileg • Góðir samskiptahæfileikar • Góðir tjáningarhæfileikar í ræðu og riti Meginhlutverk Útflutningsráðs er að auðvelda íslenskum fyrirtækjum að selja vörur sínar, þjónustu og þekkingu erlendis. Þjónustu Útflutningsráðs er skipt í fimm fagsvið: Upplýsingar, Ráðgjöf og fræðslu, Sýningar, Nýja markaði og Fjárfestingarstofuna.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.