Fréttablaðið - 15.05.2010, Page 85
LAUGARDAGUR 15. maí 2010 49
Börn popparans sáluga Michaels
Jackson hafa slegið í gegn á síð-
unni Youtube. Myndband með
hinum átta ára Blanket að herma
eftir atriði úr kvikmyndinni Star
Wars hefur sogað til sín hundr-
uð þúsunda áhorfenda. Á sama
tíma hefur annað myndband með
systur hans Paris að rappa vakið
gríðarlega athygli. Ekki er vitað
hver lak myndböndunum á Netið.
Þegar Jackson var á lífi reyndi
hann ávallt að vernda börnin sín
frá ágangi fjölmiðla en núna eru
þau loksins komin í sviðsljósið,
hvort sem þeim líkar betur eða
verr.
Börn Jackson
slá í gegn
BLANKET OG PARIS Blanket og Paris
hafa slegið í gegn á síðunni Youtube.
Russell Crowe, sem leikur í ævin-
týramyndinni Robin Hood, hefur
mikinn áhuga á að breyta til og
leika í Bollywood-mynd. „Ég
er ekki að meina týpíska Holly-
wood-mynd sem gerist á Ind-
landi, heldur Bollywood-mynd,“
segir Crowe. „Handritið yrði
að vera gott og ég yrði að skilja
algjörlega hvað ég ætti að gera.
En ég hef áhuga á þessu. Ég gæti
sungið sjálfur og ég kann líka
að dansa smávegis.“
Crowe spilaði með
hljómsveitinni
30 Odd Foot of
Grunts áður en
hann ákvað að
hefja sólófer-
il og hefur hann
því ágæta
reynslu úr
tónlistar-
bransan-
um.
Vill prófa
Bollywood
Leikarinn Steve Carell segist
ekki hafa hótað að hætta í gam-
anþáttunum í von um að
fá launahækkun. Carell
lýsti því yfir á dögunum
að hann ætlaði að hætta
eftir að næstu þáttaröð
lýkur. Ástæðan er sú að
hann vill eyða meiri tíma
með fjölskyldunni.
Carell hefur leik-
ið hinn aumkun-
arverða forstjóra
Michael Scott
síðan þættirn-
ir hófu göngu
sína árið 2005. Þá tók hann við
keflinu af Ricky Gervais sem lék
sama hlutverk í hinum uppruna-
legu bresku þáttum. „Þetta er
engin samningabrella. Mig
langar bara að eyða meiri tíma
með börnunum mínum,“ sagði
Carell. Hann á tvö börn, hinn
fimm ára John og hina níu ára
Elisabeth með eiginkonu
sinni Nancy.
Vill ekki hærri laun
STEVE CARELL Ætlar að
hætta eftir að næstu
þáttaröð af The Office
lýkur.
Warner Bros tilkynnti nýverið
að ráðist yrði í gerð kvikmyndar
um Skytturnar þrjár eftir sam-
nefndri bók Alexandre Dumas.
Leikstjórinn Doug Liman, þekk-
astur fyrir Bourne Identity, mun
líklega stýra hlutunum á töku-
stað. Fyrir tæpum sautján árum
var gerð kvikmynd um Skytturn-
ar þrjár með þeim Charlie Sheen,
Donald Sutherland, Chris O‘Donn-
ell og Oliver Platt í helstu hlut-
verkum og sagan um skytturnar
kom einnig við sögu í Man with
the Iron Mask þar sem Gabri-
el Byrne, Jeremy Irons, Gérard
Depardieu og John Malkovich
léku hinar fræknu hetjur.
Warner verður hins vegar ekki
eitt um hituna því Paul Anderson,
maðurinn á bak við Resident Evil,
hefur tilkynnt að hann ætli sér að
gera þrívíddarútgáfu um Skytt-
urnar þrjár.
Það sem vekur kannski mestu
athyglina er að Óskarsverðlauna-
hafinn Christoph Waltz hefur
tekið að sér hlutverk hins illa
kardínála og Mads Mikkelsen
verður senditíkin hans, Rochef-
ort. Auk þeirra tveggja munu
Logan Lerman, Ray Stevenson,
Luke Evans og Matthew Macfa-
dyen leika í myndinni. - fgg
Slegist um Skytturnar þrjár
VONDUR OG VERRI Christoph Waltz og
Mads Mikkelsen leika þrjótana í nýrri
kvikmynd um skytturnar þrjár. Tvær
myndir eru í burðarliðunum um þessa
frægu kappa Alexandre Dumas.
RUSSELL
CROWE
Leikarinn
snjalli
hefur
áhuga á
að leika í ind-
verskri Bollywood-
söngvamynd.
Náðu utan
um verkefnin!
Kynntu þér MPM, meistaranám í verkefnastjórnun
Spennandi kostur fyrir þá sem hafa áhuga á mjög
hagnýtu stjórnunarnámi.
Alþjóðleg vottun í verkefnastjórnun í umboði
alþjóðasamtaka verkefnastjórnunarfélaga (IPMA).
Skemmtilegir nemendur og heimsþekktir kennarar.
Opnar starfsvettvang víða í íslensku samfélagi og
um allan heim.
Tveggja ára nám samhliða starfi.
Umsóknarfrestur er til 17. maí
Inntökuskilyrði:
B.A./B.S./B.Ed. eða sambærilegt.
Minnst þriggja ára reynsla úr atvinnulífinu.
Reynsla við verkefnavinnu æskileg.
Vor í íslenskri verkefnastjórnun
Við vekjum einnig athygli á ráðstefnu um verkefna-
stjórnun sem fram fer á Hótel Sögu föstudaginn
21. maí kl. 13–17.
Nánari upplýsingar um MPM-námið færðu á mpm.is
www.mpm.is
PI
PA
R\
TB
W
A
\
SÍ
A
1
01
27
7