Fréttablaðið - 15.05.2010, Side 86
50 15. maí 2010 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
27 DAGAR Í HM
FH-ingurinn og landsliðsmaðurinn Ólafur Andrés Guðmundsson
hefur gengið frá þriggja ára samningi við danska liðið AG Köben-
havn. Er um að ræða eitt mest spennandi félag Evrópu en það er
styrkt af skartgripajöfrinum Jesper Nielsen sem hefur keypt
stórstjörnur í allar stöður. Er það jafnvel kallað Real Madrid
handboltans þar sem Jesper er til í að greiða háar upphæð-
ir fyrir leikmenn.
„Það er alveg rífandi hamingja hjá mér með þetta og
ég er afar ánægður. Það er líka bara mikill léttir að vera
kominn með þessa hluti á hreint. Þetta er eitt mest
spennandi félag í Evrópu og frábært að komast að
hjá þessu félagi,“ sagði Ólafur Andrés kátur en hann
skrifaði undir samninginn á fimmtudag og fór svo í
ítarlega læknisskoðun í gær.
„Þetta mál kom upp fyrir nokkru síðan. Það hefur
tekið smá tíma að þróa þetta en þegar málið komst
á skrið tók það fljótt af,“ sagði Ólafur Andrés en hann var
eftirsóttur af fjölda félaga út um alla Evrópu.
„Ég skoðaði í kringum mig og hafði úr fínum hlutum að
velja. Það voru lið í Þýskalandi, Spáni og Norðurlöndunum
sem sýndu mér áhuga. Þetta heillaði mig þó mest og það
var allt spennandi sem þeir höfðu fram að færa. Þetta
var því ekki erfið ákvörðun á endanum.“
Ólafur gengur ekki strax í raðir danska liðsins heldur
verður hann lánaður til FH út næsta vetur. Hann er
ánægður með þá niðurstöðu. „AG er með 2-3 topp-
menn í hverri stöðu og það er því betra fyrir mig
að spila með FH næsta vetur en sitja á bekknum í
Danmörku. Hér get ég haldið áfram að bæta mig sem
leikmaður. Svo fæ ég líka tækifæri til þess að bæta fyrir
vonbrigðatímabilið í vetur og er staðráðinn í að hjálpa FH að
komast þangað sem það á heima. Það er á toppnum.”
ÓLAFUR ANDRÉS GUÐMUNDSSON: SAMDI TIL ÞRIGGJA ÁRA VIÐ DANSKA OFURLIÐIÐ AG KÖBENHAVN
Það er frábært að komast að hjá þessu félagi
Þjóðverjinn Lothar Matthaus er sá leikmaður sem hefur
spilað flesta leiki í úrslitakeppni HM eða 25
en hann tók þátt í fimm keppnum frá 1982
til 1998, varð heimsmeistari 1990 og vann
silfur 1986. Ítalinn Paolo Maldini er hins
vegar sá leikmaður sem hefur spilað flestar
mínútur í úrslitakeppni HM. Maldini spil-
aði í 2217 mínútur í úrslitakeppni HM frá
1990 til 2002 eða 142 mínútum lengur
en Matthaus.
RALLYCROSS
Önnur umferð Íslandsmótsins í Rallycrossi
er sunnudaginn 16.maí kl. 13:00 á
Rallycross-brautinni í Kapelluhrauni.
Miðaverð kr. 1000. Frítt fyrir 12 ára og yngri.
Nánari upplýsingar á www.aihsport.is
Mætum öll
512 5100 | STOD2SPORT.IS | VERSLANIR VODAFONE | VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000
úrslitaleikurinn í enska bikarnum í dag kl. 13:00
verður það tvöfalt hjá chelsea eða nær
portsmouth að klára með sæmd?
FÓTBOLTI Það er mikil spenna í
Hafnarfirði fyrir leik nýliða
Hauka og Íslandsmeistara FH
í Pepsi-deild karla á Voda-
fone-vellinum á sunnudags-
kvöldið. Þetta verður fyrsti
deildarleikur Hafnarfjarð-
arliðanna í fótbolta síðan
sumarið 1974 þar sem þau
hafa ekki mæst á síðustu 35
Íslandsmótum. Það er búist
við frábærri mætingu og
aðsóknarmetið á Voda-
fone-vellinum (1796) gæti
verið í hættu þó að þarna
séu tvö Hafnarfjarðarlið að
mætast í Reykjavík.
Haukar náðu ekki að
vinna FH b-deildinni
sumurin 1971 til 1974
þannig að það eru liðin 40
ár síðan Haukar unnu síð-
ast deildarleik á móti FH sem
hefur ekki tapað í átta deildar-
leikjum í röð á móti nágrönn-
um sínum.
Aðrir leikir helgarinnar
eru: ÍBV-Valur (í dag klukkan
16.00), KR-Selfoss, Breiða-
blik-Fram, Fylkir-Stjarnna
(allir klukkan 19.15 á morg-
un). - óój
Haukar og FH mætast á Hlíðarenda á morgun:
Fyrsti deildarleikur
félaganna í 36 ár
DAÐI LÁRUSSON Varði mark
FH 1996-2009 en ver nú
mark Hauka. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Chelsea og Portsmouth
mætast í dag í úrslitaleik elstu
bikarkeppni í heimi og sjaldan
hafa möguleikar annars liðsins
vera taldir minni í 129 ára sögu
enska bikarsins en hjá félögum
Hermanns Hreiðarssonar í Port-
smouth þegar þeir ganga út á
Wembley í dag á móti ensku meist-
urunum í Chelsea.
Chelsea er eitt ríkasta félag
heims en Portsmouth er gjald-
þrota. Chelsea-menn eru nýkrýnd-
ir enskir meistarar og voru fyrsta
liðið til að skora yfir 100 mörk í
ensku úrvalsdeildinni en Port-
smouth endaði langneðst í deild-
inni og vann 20 færri leiki en Chel-
sea.
Það mun enginn spá öðru en að
Chelsea-menn tryggi sér tvöfald-
an sigur í fyrsta sinn í sögu félags-
ins en á sama tíma hafa leikmenn
Portsmouth allt að vinna og engu
að tapa. Leikurinn hefst klukkan
14.00 og er í beinni útsendingu á
Stöð 2 Sport.
„Við eigum ekki að geta unnið
þennan leik en þetta er enski bik-
arinn og þar geta ótrúlegstu hlutir
gerst,“ sagði Avram Grant, stjóri
Portsmouth. „Þetta er eini staður-
inn í heiminum sem svona getur
gerst. Enska úrvalsdeildin ætti
að vera stolt af okkur. Þeir ættu
að fara til allra stuðningsmanna
okkar og segja við þá: Þú hélst
andanum í ensku úrvalsdeildinni
á lífi,“ sagði Grant.
Carlo Ancelotti hefur tækifæri
til að endurskrifa sögubækur
félagsins með því að vinna tvöfalt
á sínu fyrsta ári með liðið.
„Ég hef lært það af undarnúr-
slitaleik þeirra við Tottenham að
ef þú undirbýrð þig ekki vel þá
getur þú lent í vandræðum á móti
þeim,“ sagði Carlo Ancelotti, stjóri
Chelsea. „Þetta hefur verið erfitt
ár fyrir Portsmouth en við megum
ekki sýna þeim neina miskunn
heldur mæta þeim af fullum krafti
og með fullri einbeitingu,“ sagði
Ancelotti. - óój
Bara formsatriði?
Chelsea getur unnið fyrstu tvennuna en Portsmouth
hefur engu að tapa í bikaúrslitaleiknum á Wembley.
MEISTARANIR FRÁ 2008 OG 2099 Hermann Hreiðarsson vann bikarinn með Port-
smouth fyrir tveimur árum en John Terry tók við honum í fyrra. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
FRJÁLSAR Ásdís Hjálmsdóttir úr
Ármanni endaði í 6. sæti af átta
keppendum í spjótkasti á fyrsta
móti Demanta-mótaraðarinnar
sem fram fór í Katar í gær.
Ásdís kastaði lengst 54,74
metra sem er aðeins frá henn-
ar besta sem er 61,37 metrar.
Rússinn Mariya Abakumova
vann spjótkatið þegar hún kast-
aði 68,89 metra en í öðru sæti var
heimsmethafinn Barbora Sport-
kova með 67,33 metra kast. - óój
Demanta-mótaröðin í gær:
Ásdís í 6. sæti
ÁSDÍS HJÁLMSDÓTTIR Var rúmum sex
metrum frá sínu besta. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI