Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.05.2010, Qupperneq 56

Fréttablaðið - 25.05.2010, Qupperneq 56
 25. maí 2010 ÞRIÐJUDAGUR FÓTBOLTI Það er ekki einu sinni búið að reka Manuel Pellegrini en samt sem áður situr José Mourinho með forseta Real Madrid og ræðir leikmenn sem hann vill fá til félagsins. Mourinho verður í vikunni kynntur sem knatt- spyrnustjóri Real Madrid þar sem hann fær 10 millj- ónir punda í laun á ári, eftir skatta. Það gerir hann að hæst launaða knattspyrnustjóra heims. Mourinho stýrði Inter Milan til sigurs í Meist- aradeildinni um síðustu helgi. Sigur hans var taktískur og hann var einfaldlega fremri en Louis van Gaal hjá Bayern Munchen. Leik- urinnn þótti reyndar skemmtilegri en bjartsýnustu menn þorðu að vona en varkár leikstíll Mourin- ho og mikilvægi leiksins gáfu til kynna að leikurinn yrði eins og að horfa á málningu þorna. Mourinho þykir reyndar ekki passa alveg inn í hjá Real Madrid. Hroki hans er vel þekktur og frægt er að hann kallar sjálfan sig „þann sérstaka“. Stjórar Real Madrid hafa lengi vel þurft að beygja sig undir forseta félagsins sem ræður ríkj- um. Florentino Perez keypti Kaká og Cristiano Ronaldo, óumbeðinn af stjóra liðsins síðasta sumar. Perez hefur nú lofað að Mourinho fái öll völd á leikmannamarkaðnum, eitthvað sem enginn annar þjálfari hefur fengið. Leikstíll Mourinho þykir heldur ekki passa alveg inn í hjá „Galactico-liði“ Real Madr- íd. Kröfuharðir stuðningsmenn ætlast ekki bara til að liðið vinni, heldur að það spili fallegan og skemmtilegan fótbolta. Það hefur kannski orðið liðinu að falli, en það hefur ekkert unnið síðan liðið varð meistari á Spáni tíma- bilið 2007/2008. Mourinho er þegar byrjað- ur að tala við leikmenn og er ætl- unin að þétta vörnina, og raunar varn- arleikinn í heild sinni. Fyrstu kaupin verða líklega Maicon frá Inter í hægri bakvarðarstöðuna með Alvaro Arbeloa, sem átti reyndar gott tímabil. Næstu kaup eru talin vera Daniele de Rossi frá Roma. Hann er verð- lagður ansi hátt og félagið vill ekki fyrir nokkra muni selja hann. Ef Mourinho mistekst að fá de Rossi er talið að hann snúi sér að Steven Gerrard. Mourinho vill líka nýjan miðvörð og vinstri bak- vörð, hugsanlega Aleksandar Kolarov, serbneska landsliðsmanninn sem hann reyndi að kaupa til Inter frá Lazio síðasta sumar. Mourinho ku ekki hafa áhuga á Ashley Cole hjá Chelsea. Mourinho ætlar sér stóra hluti hjá Real. „Ég vil verða fyrsti stjórinn til að vinna Meist- aradeildina með þremur félögum,“ sagði Mourinho sem vann með Porto 2004 og Inter í ár. „Ef þú þjálfar ekki Real Madrid þá verður alltaf gloppa í ferlil- skránni þinni. Enginn þjálfari hefur unnið þrjár mikilvægar deildir og ég vil vera sá fyrsti til að vinna á Englandi, Ítalíu og Spáni.“ Perez tók aftur við for- setastólnum síðasta sumar og setti þegar af stað verk- efni með það að markmiði að koma Real Madrid á toppinn, alls staðar. „Þetta er metnaðar- fullt verkefni,“ segir Mourinho. „Forsetinn hefur gert það sem hann getur, að búa til stórkostlegan æfinga- völl, hann hefur fjár- fest í leikmönnum og fleira. En hann er ekki sá sem vinnur titla, hann spilar ekki leikina og hann ákveður heldur ekki hvað gerist á bekknum. Þar er ábyrgðin á þjálfaranum, þjálfurum liðsins og leik- mannanna sjálfra.“ Sá sérstaki mætir til Madr- ídar með stæl, spurningin er hvort hann sé síðasta púslið hjá Perez til að gera liðið að því besta í heimi. hjalti@frettabladid.is Háleit markmið í Madríd hjá hinum sérstaka José Verst geymda leyndarmálið í knattspyrnuheiminum er að José Mourinho sé að taka við Real Madrid. Hann verður hæst launaði knattspyrnustjóri heims og markmiðið í Madríd er einfalt. Hann ætlar að vinna allt sem í boði er. HANDBOLTI Aron Pálmarsson og félagar í Kiel eru komnir með aðra höndina á Þýskalands- meistarabikarinn eftir sigur á Hamburg í stórleik ársins, 33- 31, á laugardaginn. Aron skoraði þrjú mörk í leiknum. Fyrrum leikmaður Kiel, sænska stórstjarnan Stefan Lövgren, segir að Aron hafi alla burði til að ná langt. „Ég var ekki kominn jafn langt og Aron þegar ég var á hans aldri,“ sagði Lövgren. „Hann er líka hæfi- leikaríkari en ég. Hann hefur í raun allt sem þarf til að ná langt.“ Annar Svíi, línumaðurinn Marcus Ahlm hjá Kiel, sparaði heldur ekki hrósið. „Hann getur orðið sá allra besti í heimi. En skilyrði fyrir því er auðvitað að hann haldi áfram að leggja mikla vinnu á sig.“ - esá Stefan Lövgren: Aron hæfileika- ríkari en ég ARON ÖFLUGUR Skoraði þrjú með Kiel um helgina. NORDIC PHOTOS/BONGARTS 10. HVE R VINNUR ! Vinningar afhentir í ELKO Lindum. 149 kr/skeytið. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. VILTU MIÐA? SENDU SMS SKEYTIÐ ESL CBV Á NÚMERIÐ 1900 ÞÚ GÆTIR UNNIÐ MIÐA Á MYNDINA! FRUMSÝND 26. MAÍ FULLT AF GLÆSILEGUM VINNINGUM: BÍÓMIÐAR - TÖLVULEIKIR DVD MYNDIR, GOS OG MARGT FLEIRA *Frí heimsending gildir aðeins ef pantaðir eru 4 eða fleiri bakkar. Pantaðu í síma 565 6000 eða á somi.is * SÁ SÉRSTAKI José Mourinho hefur nú orðið Evrópumeistari bæði með Porto og Inter. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.