Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.06.2010, Qupperneq 17

Fréttablaðið - 22.06.2010, Qupperneq 17
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447 „Ég er bara allt annar maður, finn ekki lengur fyrir þessu,“ segir Garðar Cortes, óperusöngvari og skólastjóri Söngskólans í Reykja- vík, sem greindist fyrir meira en áratug með svokallaða Dupuytren’s veiki, sem veldur því meðal ann- ars að fingurnir kreppast. Síðan þá hefur Garðar náð góðum bata með aðstoð þekkts læknis í Frakk- landi. Að sögn Garðars þjást margir af Dupuytren’s veiki, einkum á norð- urhveli jarðar og er talið að um arf- gengan sjúkdóm sé að ræða. „Hún er af þeim sökum oft kölluð „vik- ing syndrome“ eða víkingaveiki. Ég geri mér reyndar í hugarlund að það sé vegna þess að vísinda- menn hafi séð þessi einkenni við uppgröft og rannsóknir á líkams- leifum frá tímum víkinga. Sjálfur erfði ég þetta frá móður minni, en bróðir minn og börn hafa hingað til alveg sloppið við þetta.“ Garðar segir að þeir sem þjást af Dupuytren’s veiki fari yfirleitt í skurðaðgerð á höndum og að svo búnu taki við margra vikna endur- hæfing. Fyrir nokkrum árum las hann hins vegar í tímaritinu Time Magazine um lækni að nafni Henry Lellouche í París sem lækn- aði sjúklinga sína án þess að beita hefðbundnum skurðaðgerðum. Garðar var þá illa haldinn í hægri hendinni og ákvað því að hafa sam- band við lækninn þegar hann var staddur í París í fræðsluferð ásamt kennaraliði úr Söngskólanum. „Hann var svo vinsamlegur að hitta mig og eftir að hafa skoðað á mér höndina, deyfði hann mig og liðkaði puttana með því að toga í þá. Þetta tók í það heila innan við sjö mínútur og að því loknu fann ég ekki fyrir þessu,“ segir Garð- ar og bætir við að einkennin hafi ekki látið á sér kræla í tíu ár. „Reyndar var vinstri höndin farin að kreppast fyrir skemmstu en þá fór ég aftur út og læknirinn lagaði hana.“ Garðar segist hafa sett sig í samband við lækna hérlendis eftir fyrstu heimsókn sína til Lellouche og lýst fyrir þeim aðferðinni og árangrinum. „Einhverjir sýndu því áhuga að fá lækninn hingað til að flytja erindi, en svo varð ekkert af því eftir sem ég kemst næst. Ætli það hafi bara nokkuð náðst sam- staða meðal lækna um málið þar sem þetta er nokkuð óhefðbundin aðferð, þótt hún skili tvímælalaust árangri.“ roald@frettabladid.is Vann bug á víkingaveiki Garðar Cortes óperusöngvari greindist fyrir nokkrum árum með Dupuytren’s veiki. Hann fann bót sinna meina hjá þekktum lækni í Frakklandi sem hefur getið sér góðan orðstír fyrir óhefðbundnar aðferðir. Garðar Cortes greindist með Dupuytren’s veiki fyrir meira en áratug sem veldur meðal annars því að fingurnir kreppast. Hann leitaði sér hjálpar í Frakklandi og hefur náð góðum bata. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI PLANKAR sem raða má upp á til dæmis steyptar svalir og mynda þannig þægilegt gólfborð til að ganga á fást yfirleitt í viðarlitum í byggingarvöruverslunum. Það getur komið ljómandi vel út að mála plankana hvern í sínum litnum og útbúa þannig til glaðlegt mynstur á svalirnar. Tímapantanir 534 9600Hlíðasmári 11, 201 Kópavogur -www.heyrn.is HEYRNARÞJÓNUSTA Nýju ReSound heyrnartækin endurvekja tilfinningu fyrir hljóðum sem berast úr hvaða átt sem er á svipaðan hátt og þegar skipt er úr einföldum steríótækjum með tveimur hátölurum í kringóma (surround) heimabíó með hátalara til allra átta. Ný tækni . Betra verð . Fagleg þjónusta Frí ráðgjöf í maí ReSound heyrnartækin setja mann í miðpunkt hljóðheimsins sem maður hrærist í. Þegar maður getur fylgst betur með hljóðum sem berast úr öllum áttum nýtur maður góðs hljóms mun betur. Auðveldara er að átta sig á hvaðan hljóðið berst og maður getur notið þess að tala við fólk þó hávaði sé í umhverfinu. SURROUND KRINGÓMA Frí ráðgjöf Patti.is Landsins mesta úrval af sófasettum Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is Opið : Mánud. - Föstud. frá 9 til 18 og Laugard. frá 11 til 16 Láttu þér líða vel í sófa frá Patta 289.9 00 kr Base l 2H2 Verð frá 2.900 krPúða r í úr vali verð frá

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.