Fréttablaðið - 22.06.2010, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 22.06.2010, Blaðsíða 36
20 22. júní 2010 ÞRIÐJUDAGUR BAKÞANKAR Hólmfríður Helga Sigurðardóttir ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Þótt ég sé af rómantískara kyninu hef ég aldrei borið þann draum í brjósti að ganga tárvot inn kirkjugólf. Ég fæ dálitla gæsahúð og mér liggur við yfirliði, bara við tilhugsunina. HJÓNABÖND finnst mér hins vegar fal- leg og brúðkaup þykja mér nær undan- tekningalaust dásamleg upplifun. Ég er einn af þessum undarlegu gestum sem gráta með ekkasogum í gegnum fávita- legt bros, þegar brúðurin kemur gangandi í öllu sínu hvíta veldi. Ég kemst í annar- legt ástand, sem veldur því að ég geri mig oftar en ekki að fífli. Ég fékk til dæmis hóstakast í miðjum eftir-já-kossi einnar af mínum kærustu vinkonum og nýlega sagði ég eftirminnilega óviðeigandi brandara, sem enginn hló að, í brúðkaupi frænku minnar. FYRIR marga skiptir giftingin öllu máli. Án hennar þykir þeim lífið ekki fullkomnað. Enn öðrum finnst kirkj- an leika þar lykilhlutverk. Ég er á hvorugri skoðuninni. Mér finnst mitt óblessaða samband alveg jafn alvöru og þeirra sem velja að gifta sig. Mér er sama þótt ég verði bara kærasta til dauðadags en ekki eiginkona. Ég hlakka til að verða áttræð á föstu. MARGIR samkynhneigðir eru á meðal þeirra sem þrá að gifta sig í kirkju. Það er í raun dálítið merkilegt, í ljósi þess hvað þeir hafa lengi fengið þau skilaboð frá þjóðkirkjunni að trú þeirra og ást sé minna virði en þeirra sem elska hitt kynið. Af hverju þráir fólk blessun þeirra sem fyrir- líta þá og hafa ofsótt í gegnum tíðina? Á meðan þessu trúaða fólki hefur verið meinað að gifta sig innan kirkjunnar hafa gagnkynhneigðir trúleysingjar traðkað í röðum inn kirkjugólf landsins, oft hálf- nauðugir, til að þóknast maka sínum, fjöl- skyldu eða hefðinni. Er þetta ekki undar- legt? Hvorum hópnum ætti kirkjan að taka fagnandi? Báðum, finnst mér. ÞAÐ finnst helmingnum af prestum þjóð- kirkjunnar ekki. Þeir vilja heldur gifta trúlausa en samkynhneigða. Í síðustu viku steig Alþingi flottasta skref sitt lengi og gerði hjónaband samkynhneigðra jafnhátt annarra. Nú í vikunni taka lögin gildi og þá mega hommar og lesbíur gifta sig í kirkju. ÓTRÚLEGUR fjöldi þjóðkirkjupresta segist hins vegar, með yfirvegað kærleiksbros á vör, ekki ætla að gifta samkynhneigð pör. Þeirra vegna nenni ég ekki að taka þátt í að styrkja þjóðkirkjuna lengur með skatt- peningunum mínum. Ég segi mig úr henni, strax í dag. Og hálfskammast mín fyrir að vera ekki löngu búin að því. Blessuð vertu þjóðkirkja Hvað krufðirðu í skólanum í dag?! Yfir? Þú stendur 5 metrum frá mark- inu og skýtur yfir! 5 metrum! Ertu þroska- heftur? Hvernig líður þér? Ef ég hefði verið með spjald hefð- ir þú fengið það. (snökt) Bless mamma. Bless bless! Uppblásinn bakpoki. Fullt af samúð án erfiðis. ...Og þau lifðu ham- ingjusöm til æviloka. Hvað mein- arðu með því? Eigum við að trúa því að þetta fólk var fullkomlega hamingjusamt til æviloka? Ha? Engin fýla? Engir slæmir dagar? Engar býflugustungur? Engin rispuð hné? Komm- on! En þetta er ævintýri... Ég vil að ævintýrin mín séu trúverðug! SÝNDU ÞÍNAR BESTU HLIÐAR Ljósmyndasamkeppni Panasonic og Vísis Taktu þátt í ljósmyndasamkeppni. Deildu þínum bestu myndum með okkur og þú átt möguleika á glæsilegum verðlaunum. Að auki er þráðlaus Panasonic KXTG1311 sími dreginn út í hverri viku. Skilafrestur til 21. ágúst 2010. Allar nánari upplýsingar á visir.is. 1. VERÐLAUN 2. VERÐLAUN 3. VERÐLAUN PANASONIC BD65 Vandaður Blu-ray spilari með minniskortarauf til að skoða ljósmyndirnar úr myndavélinni. PANASONIC G2 Glæný og byltingarkennd myndavél með útskiptanlegum linsum og snertiskjá. PANASONIC TZ10 Hágæða myndavél með 12x aðdrætti, GPS og fjölmörgum möguleikum.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.