Fréttablaðið - 01.07.2010, Side 54
38 1. júlí 2010 FIMMTUDAGUR
BAKÞANKAR
Charlotte
Böving
Ég hef oft velt fyrir mér orðtakinu að falla í stafi. Merkingin rekur
rætur sínar til þess þegar tunna dettur
í sundur. Stafirnir (viðurinn) losna frá
járngjörðinni og tunnan fellur í parta.
BÖRN falla gjarnan í stafi; augun
verða stór og þau líta út fyrir að stara
á eitthvað í fjarska eða jafnvel djúpt
innan í sér. Eða kannski sjá þau ekki
neitt? Heldur upplifa andartak þar
sem tíminn stendur í stað. Þau taka
sér pásu frá lífinu.
AÐ FYLGJAST MEÐ barni sem
fellur í stafi er dásamlegt. Að
því gefnu að þú sért ekki kenn-
ari þess, óþolinmótt foreldri eða
eldra systkini sem reynir að slíta
barnið laust úr þessum augna-
bliks dvala. Stundum af pirr-
ingi, stundum í stríðni.
SEINNA Á LÍFSLEIÐ-
INNI, þegar við höfum
orðið þörf fyrir litlar
pásur frá lífinu, kunnum
við ekki lengur að taka
þær. Við förum í jóga og
hugleiðslu, skokkum og
stundum garðyrkju, allt
í leit að bara augnabliks
friði frá vandamálum
heimsins. Við höfum gleymt að falla
í stafi, þess í stað stafar af okkur
stressi yfir öllu sem við ætlum að
komast yfir.
ÞEGAR ÉG FYLGIST MEÐ litlu
tveggja ára stelpunum mínum tveim-
ur falla í stafi (sérstaklega er önnur
þeirra lunkin í þeirri list) hef ég fund-
ið mér möguleika á að „falla“ með.
Ég reyni að fylgja henni þangað sem
hún virðist horfin. Það er erfitt, því
heilabúið æpir eftir aðgerðum: „Þetta
er tímasóun – þú þarft að ná að gera
svo margt – þú getur ekki bara setið
og glápt út í loftið – þú lítur út eins
og asni með opinn munn og starandi
augu – hugsaðu þér nú ef einhver er að
fylgjast með þér“ – og svo framvegis.
EN MEÐ DAGLEGUM æfingum er ég
orðin betri.
TILFINNINGIN er ekki ósvipuð lýs-
ingunni af tunnunni í upphafi: Það er
líkt og maður falli í sundur, eða aðeins
burt frá sjálfum sér. Maður fær pásu
frá eigin hugsunum. Þetta verður lík-
ast heilagri stund. Eftir þessa innsýn
finnst mér að það ætti að banna með
lögum að trufla börn sem falla í stafi.
Þannig fengjum við hugsanlega öll
mikið betri hvíld.
Að falla í stafi
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Vúhhhh!
Slæmu
stelpur!
Palli, ég er frekar pirruð yfir því
að þú sért að kaupa afmælisgjöf
handa Söru á afmælisdaginn
hennar!
Hvað er málið með
fólk sem bíður fram á
síðustu stundu með að
kaupa gjafir??
En ef þurrkarinn er ekki
bilaður, hvers vegna þurf-
um við nýjan?
Vegna þess að
það gerir lífið
auðveldara!
Hvernig í veröldinni gera sam-
stæð þvottavél og þurrkari lífið
auðveldara?
Ekki lífið mitt … þitt.
Ó, ég skil.
Meira
kaffi?
Kaffi-
maður
GLYÐRA KLÁMSTJARNA
HJÚKKA
KENNARI
SÝNDU
ÞÍNAR
BESTU
HLIÐAR
Ljósmyndasamkeppni
Panasonic og Vísis
Taktu þátt í ljósmyndasamkeppni. Deildu þínum
bestu myndum með okkur og þú átt möguleika
á glæsilegum verðlaunum. Að auki er þráðlaus
Panasonic KXTG1311 sími dreginn út í hverri viku.
Skilafrestur til 21. ágúst 2010.
Allar nánari upplýsingar á visir.is.
1. VERÐLAUN
2. VERÐLAUN
3. VERÐLAUN
PANASONIC BD65
Vandaður Blu-ray spilari með minniskortarauf
til að skoða ljósmyndirnar úr myndavélinni.
PANASONIC G2
Glæný og byltingarkennd myndavél með
útskiptanlegum linsum og snertiskjá.
PANASONIC TZ10
Hágæða myndavél með 12x aðdrætti,
GPS og fjölmörgum möguleikum.
...ég sá það á Vísi