Fréttablaðið - 01.07.2010, Side 62
46 1. júlí 2010 FIMMTUDAGUR
bio@frettabladid.is
Rómantíska gamanmyndin
Killers var frumsýnd hér á
landi í gær og eru það leik-
arnir Katherine Heigl og
Asthon Kutcher sem leika
aðalhlutverkin. Myndin
fjallar um Spencer Aimes
sem vinnur sem leynileg-
ur morðingi hjá bandarísk-
um yfirvöldum og lifir góðu
piparsveinalífi. Þegar hann
síðan kynnist Jen Kornfeldt
verður hann yfir sig ást-
fanginn, giftist, breytir um
lífsstíl og flytur í úthverfin.
Þremur árum seinna finnur
hann út að leigumorðingjar
eru búnir að hreiðra um sig í
hverfinu með hann sem skot-
mark. Morðingjarnir geta
verið hver sem er í hverfinu
og nú þurfa hjónin að beita
öllum brögðum til að lifa af
og halda tengdafjölskyldunni
í skefjum.
Katherine Heigl er meðal
annars þekkt úr sjónvarps-
þáttaröðinni Grey’s Anatomy
og rómantísku gamanmynd-
inni Knocked Up. Ashton Kut-
cher hefur leikið í mörgum
rómantískum gamanmynd-
um, nú síðast í myndinni Val-
entine’s Day. Hann er einnig
þekktur fyrir að vera giftur
leikkonunni Demi Moore.
Kutcher og Heigl saman á ný í Killers
Breski leikarinn og sjarmörinn
Jude Law hefur slegist í leik-
arahóp nýjustu myndar Mart-
ins Scorsese, Hugo Cabret.
Law mun leika við hlið frægra
manna á borð við Ben Kingsley,
Ray Winstone og Sacha Baron
Cohen í þessari mynd sem
gerð er eftir samnefndri
metsölubók frá höfund-
inum Brian Zelsnick.
Myndin fjallar í gróf-
um dráttum um mun-
aðarleysingja sem býr
á lestarstöð og reynir
að leysa gátuna um
lát föður síns.
Kvikmyndin er
fyrsta þrívíddar-
mynd Óskarsverð-
launahafans Scor-
sese og hófust tökur
á henni í London í vik-
unni. Áætluð frumsýn-
ing myndarinnar er í
desember 2011.
Law með Scorsese
ÞRÍVÍDDARMYND Í
BÍGERÐ Jude Law
mun leika í nýrri
kvikmynd Óskars-
verðlaunahafans
Martins Scorsese
sem verður frumsýnd á
næsta ári.
N
O
R
D
IC
PH
O
TO
S/
G
ET
TY
KILLERS Rómantísk gamanmynd sem er frumsýnd um helgina.
Þá heldur sagan áfram.
Hin geysivinsæla saga um
ástalíf vampíranna. Þriðja
myndin í seríunni, The
Twilight Saga: Eclipse,
var frumsýnd hér á landi
í gær. Beðið hefur verið
eftir myndinni með eftir-
væntingu og eru íslenskir
Twilight-aðdáendur þeir
fyrstu í heiminum sem
fá að líta þriðju myndina
augum.
Kristen Stewart og Robert Patti-
son bregða sér enn á ný í hlutverk
Bellu Swan og Edward Cullen, en
þau hafa skotist upp á stjörnuhim-
ininn eftir vinsældir fyrri mynd-
anna tveggja. Í þessari mynd er
að venju spilað á ást, rómantík,
drama og spennu á meðan fylgst
er með þríeykinu Bellu, Edward
og varúlfinum Jacob, sem leikinn
er af Taylor Lautner, kljást við
vampírur og aðrar verur. Einn-
ig stendur Bella frammi fyrir því
ap þurfa að taka erfiða ákvörðun.
Hún þarf að velja á milli þess að
verða ódauðleg með vampírunni
Edward eða dauðleg með Jacob.
Önnur myndin í Twilight serí-
unni, New Moon, sló aðsóknar-
met þegar hún var frumsýnd í
nóvember á síðasta ári í Banda-
ríkjunum og er þess að vænta að
þriðja myndin geri slíkt hið sama.
Chigago Sun Times gefur þess-
ari mynd helmingi lakari dóm
en mynd númer tvö og gagnrýn-
endur hjá Hollywood Reporter
og Variety eru einnig jákvæðari
gagnvart þessari mynd. Spurning
hvort aðdáendur vampíruseríunn-
ar séu jafn æstir í þetta sinn og
hvort myndin Eclipse slái fleiri
met en sú fyrri.
Tvær myndir eru væntanlegar
í viðbót upp úr fjórðu og síðustu
bókinni og á að frumsýna þær
árin 2011 og 2012.
alfrun@frettabladid.is
Robert Pattison topp-
aði lista tímaritsins
HEAT yfir kynþokka-
fyllstu karla í heimi í ár.
1
Ástarþríhyrningur í þriðju Twilight
Bella þarf að velja á milli ástarsambands við vampíruna Edward og vinskapar við varúlfinn
Jacob í The Twilight Saga: Eclipse, þriðju myndinni í vampíruseríunni. Í raunveruleikanum
hefur verið þrálátur orðrómur um ástarsamband Roberts Pattison, sem leikur Edward og
Kristen Stewart, sem leikur Bellu, utan hvíta tjaldsins og hafa þau hvorki neitað eða staðfest
sögusagnirnar. Þykja þau passa einstaklega vel saman og spekingar telja að svona blossi á
hvíta tjaldinu geti ekki verið leikinn. Nú síðast við kynningar á nýju myndinni þóttu Stewart
og Pattison láta vel hvort að öðru og döðruðu mikið á blaðamannafundi.
ERU KRISTEN OG ROBERT PAR?
Kristen Stewart komst í
6. sæti á lista tímarits-
ins FHM yfir kynþokka-
fyllstu konur árið 2010.
6
Leikarinn Leonardo DiCaprio
mun bregða sér í hlutverk víkings
í næstu mynd sinni sem leikstýrt
er af Mel Gibson. Myndin hefur
ekki enn fengið nafn en leikar-
inn hefur þegar skrifað undir
samning og viðurkennir að sig
hafi ávallt langað að leika víking
í kvikmynd. „Víkingar eru mestu
ofbeldismenn sögunnar og ég held
að þeim hafi aldrei verið gerð
nógu góð skil í kvikmynd áður.“
Leikur víking
LEONARDO DICAPRIO Leikur víking í
næstu mynd Mels Gibson.
Gamanmyndin Get Him to the
Greek með Jonah Hill og Russell
Brand í aðalhlutverkum er aðsókn-
armesta kvikmynd Bretlands
þessa stundina. Myndin halaði inn
1.569.556 pund um síðustu helgi
og skaust þar fram úr Sex and The
City 2 og Killers sem verma nú
annað og þriðja sæti listans.
Hill og Brand
toppa listana
HA? Hill og Brand virðast hissa.
> ROBIN WILLIAMS Í BATMAN?
Leikarinn góðkunni mun vera að sækjast
eftir hlutverki í þriðju Batman-myndinni
sem leikstjórinn Christopher Nolan
er að leggja lokahönd á undir-
búning að. Sækist hann eftir að
leika The Riddler, vonda kallinn
í myndinni, en viðurkennir að
það sé erfitt að toppa frammi-
stöðu Heaths Ledger sem
Jókerinn í síðustu mynd.
Pantaðu allan hringinn á www.hoteledda.is eða í síma 444 4000
13 HÓTEL
ALLAN HRINGINN
1 ML Laugarvatn • 2 ÍKÍ Laugarvatn • 3 Skógar
4 Vík í Mýrdal • 5 Nesjum • 6 Neskaupstaður
7 Egilsstaðir 8 Eiðar • 9 Stórutjarnir • 10 Akureyri
11 Laugarbakki • 12 Ísafjörður • 13 Laugar í Sælingsdal
10
12
9
8
7 6
5
2
3 4
13 11
1
Veitingastaðir á öllum hótelum • Alltaf stutt í sund • Vingjarnleg þjónusta
Gistiverð frá 5.000 kr. á mann • Fimmta hver nótt frí
BROSANDI ALLAN HRINGINN