Fréttablaðið - 01.07.2010, Síða 72
56 1. júlí 2010 FIMMTUDAGUR
FÓTBOLTI Móti sem átti að halda
viku eftir að HM lýkur hefur
verið frestað þar sem Wayne
Rooney og Steven Gerrard fannst
báðum óviðeigandi að taka þátt á
þessum tímapunkti.
Mótið heitir A:3K og þar áttu
sex þekktir knattspyrnumenn að
koma saman og keppa sín á milli í
hinum ýmsu þrautum.
„Við höfum fullan skilning á
ákvörðun leikmannanna,“ sagði
einn forráðamanna mótsins.
Aðrir sem áttu að taka þátt voru
David Villa, Didier Drogba, Cesc
Fabregas og Cristiano Ronaldo.
„Við hefðum getað skipt þeim út
fyrir aðra leikmenn en ákváðum
að gera það ekki þar sem við telj-
um þetta vera sex bestu leikmenn
heimsins.“
Áætlað er að mótið fari fram í
júní á næsta ári. - esá
Rooney og Gerrard:
Drógu þátttöku
í móti til baka
TVEIR GÓÐIR Wayne Rooney og Steven
Gerrard gekk illa á HM í Suður-Afríku
eins og öðrum leikmönnum enska
landsliðsins. NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Hollendingurinn
Johan Cruyff, einn besti
knattspyrnumaður sögunnar,
segist ekki tíma að borga sig
inn á leiki með Brasilíu á HM í
Suður-Afríku.
„Ég myndi ekki borga til að
sjá Brasilíu spila. Hvar er það
brasilíska landslið sem við
þekkjum allir? Það er horfið,“
sagði hann.
„Ég man eftir leikmönnum
eins og Gerson, Tostao, Falcao,
Zico og Socrates. Nú sé ég bara
menn eins og Gilberto, Melo,
Bastos og Julio Baptista. Hvar
eru brasilísku töfrarnir? Ég skil
af hverju [landsliðsþjálfarinn]
Dunga valdi suma leikmenn en
það vantar skapandi leikmenn á
miðjuna. Ég á ekki von á því að
nokkur maður tími að borga sig
inn á leiki Brasilíu,“ sagði Cruyff.
Holland og Brasilíu mætast í
fyrsta leik fjórðungsúrslitanna á
HM á morgun. - esá
Johan Cruyff um Brasilíu:
Ekki pening-
anna virði
JOHAN CRUYFF Saknar töfranna í brasil-
íska landsliðinu. NORDIC PHOTOS/AFP
HANDBOLTI Markahæsti leikmaður
N1-deildarinnar á síðustu leik-
tíð, Bjarni Fritzson, mun flytja
búferlum til Akureyrar í sumar.
Hann mun á morgun skrifa undir
eins árs samning við Akureyri
handboltafélag sem hafði sam-
band við hann strax eftir síðasta
tímabil þegar Bjarni lék með FH.
Hann hefur spilað 39 landsleiki.
„Ég hef verið í sambandi við
stjórnina alveg síðan þá og gamli
þjálfarinn minn í fjórða flokki
er einn þeirra sem höfðu hönd í
bagga,“ sagði Bjarni við Frétta-
blaðið í gær.
Bjarni var einnig valinn í lið
mótsins í N-1 deildinni og er kær-
komin viðbót fyrir lið Akureyr-
ar. Nokkrir leikmenn hafa horf-
ið á braut, Jónatan Magnússon,
Árni Þór Sigtryggsson og Andri
Snær Stefánsson þar á meðal.
Liðið spilaði oftar en ekki með
rétthentan mann í hægra horn-
inu á síðasta tímabili og er hinn
örvhenti Bjarni því hvalreki á
fjörur liðsins.
„Ég flyt norður með alla fjöl-
skylduna, það verður að taka
þetta alla leið. Það heillar mig
mjög mikið og ég hef alltaf haft
áhuga á að búa utan höfuðborg-
arsvæðisins. Þetta gerðist ekki
á einum degi en var á endanum
ekki erfið ákvörðun. Það er fínt
að prófa þetta áður en strákur-
inn minn byrjar í grunnskóla og
svona,“ sagði Bjarni sem hafði úr
fleiri tilboðum að velja.
Nokkur lið úr N1-deildinni vildu
fá Bjarna til sín sem og lið í Dan-
mörku. „Á endanum var þetta
bara val á milli FH og Akureyrar.
Það eru fjölmargar ástæður fyrir
því að ég valdi Akureyri og þetta
verður skemmtileg tilbreyting.
Það er gaman að prófa eitthvað
nýtt, maður þroskast við að breyta
um aðstæður,“ segir Bjarni.
„Síðasti vetur í Reykjavík var
mjög erfiður hjá mér, það var
mikið að gera á öllum vígstöð-
um. Ég var í krefjandi námi en
ég tel að með þessum flutningi
geti ég einfaldað lífsmunstrið og
því sinnt þeim hlutum sem skipta
mestu máli enn betur. Lífið verð-
ur einfaldara og þægilegra og ég
kem kannski frekar suður í frí,“
sagði Bjarni.
Honum líst vel á liðið hjá Akur-
eyri og ekki síst umgjörðina.
„Hún er almennt talin best þarna
ásamt umgjörðinni hjá FH. Það
er svo gaman að spila fyrir fullu
húsi í hverri umferð. Það eru
ungir og sprækir strákar í lið-
inu í bland við einhverja jaxla,“
sagði Bjarni. Atli Hilmarsson
mun þjálfa liðið.
Bjarna var einnig boðið að fara
til Danmerkur. „Landslagið úti er
ansi erfitt og samningarnir léleg-
ir og óspennandi, í það minnsta
fyrir mig. Ég er ekki að rífa mig
frá því sem ég hef hérna heima
fyrir einhverja hálf atvinnu-
mennsku,“ sagði Bjarni.
hjalti@frettabladid.is
Var ekki erfið ákvörðun
Bjarni Fritzson mun spila með Akureyri á næsta tímabili. Bjarni segir að hann
muni geta einbeitt sér enn betur að handboltanum og náminu fyrir norðan.
Hann valdi Akureyri fram yfir FH og óspennandi tilboð frá Danmörku.
EINFALDARA OG ÞÆGILEGRA Bjarni hlakkar til að spila fyrir norðan þar sem hann
segir að lífið verði bæði einfaldara og þægilegra en í Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Cristiano Ronaldo tók
tapinu ekki vel þegar portúgalska
landsliðið féll úr leik á HM í Suður-
Afríku eftir 1-0 tap fyrir Spáni í 16
liða úrslitunum í fyrrakvöld.
Eins og svo oft áður kom mynda-
tökumaður upp að Ronaldo eftir
leik og fylgdi honum eftir. Í þetta
sinn kærði sá portúgalski sig ekk-
ert um athyglina og skipaði honum
að fara. Þegar myndatökumaður-
inn hunsaði þessi fyrirmæli hans
gerði Ronaldo sér lítið fyrir og
hrækti í átt til hans. Myndir af því
fóru út um alla heimsbyggð.
Eftir leikinn neitaði Ronaldo
að ræða við fréttamenn og benti
einungis á þjálfarann Carlos
Queiroz.
„Ég er niðurbrotinn og algerlega
óhuggandi,“ var haft eftir honum á
heimasíðu hans síðar um kvöldið.
„Ég finn fyrir óendanlegri sorg.“
Hann neitaði því að hann
hefði verið að gagnrýna Queir-
oz með því að beina spurning-
um fréttamanna til hans. „Ég
var ekki í neinu ástandi til að
svara spurningum en Carlos
Queiroz var á blaðamanna-
fundi. Því benti ég á hann. Ég
veit að ég er fyrirliði landsliðs-
ins og hef alltaf gegnt þeim
skyldum sem því fylgja og
mun gera það áfram.“
Portúgal fékk aðeins
eitt mark á sig í
keppninni en skor-
aði að sama skapi
aðeins í einum leik
– í 7-0 sigri á Norð-
ur-Kóreu.
Liðið gerði markalaus jafn-
tefli við Fílabeinsströndina og
Brasilíu í riðlakeppninni og tap-
aði svo fyrir Spáni 1-0.
„Við þurfum að fá meira út
úr sókninni,“ sagði varnarmað-
urinn Ricardo Carvalho. „Við
beittum bara skyndisóknum og
það þurfti meira til að vinna
leik eins og þennan. Við
vörðumst vel en náðum
ekki að skapa okkur
nægilega mörg færi þó
svo að við værum með
marga frábæra leik-
menn til þess.“
Ronaldo var einn
aðalmaðurinn í sóknar-
leik Portúgals og skor-
aði eitt mark á mótinu.
- esá
Cristiano Ronaldo hrækti í átt að myndatökumanni eftir tapið gegn Spáni:
Niðurbrotinn og óhuggandi
RONALDO Þótti ekki standa
undir væntingum í Suður-
Afríku. NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Forseti Nígeríu,
Goodluck Jonathan, hefur ákveð-
ið að setja knattspyrnulandslið
landsins í tveggja ára keppn-
isbann eftir afleitt gengi á HM
í Suður-Afríku. Nígería varð
í neðsta sæti B-riðils og hlaut
aðeins eitt stig í keppninni.
„Goodluck Jonathan forseti
hefur ákveðið að draga landslið-
ið úr öllum alþjóðlegum keppn-
um næstu tvö árin svo hægt verði
að koma hlutunum í skikkanlegt
lag,“ sagði einn ráðgjafi forset-
ans við fjölmiðla þar í landi.
Knattspyrnusamband lands-
ins mun hafa verið leyst upp og
ný bráðabirgðastjórn skipuð. Víst
þykir að Alþjóða knattspyrnu-
sambandið, FIFA, muni eitthvað
hafa að athuga við þetta enda
ríkja strangar reglur sem banna
afskipti stjórnvalda af knatt-
spyrnumálum í aðildarlöndum
sambandsins. - esá
Forseti Nígeríu hundfúll:
Setti landsliðið
í bann í tvö ár
FÓTBOLTI Klukkan 18 í kvöld fer
leikur FH og KA í 8 liða úrslitum
VISA-bikars karla fram. Leikur-
inn var færður vegna þátttöku
FH í Evrópukeppninni. FH vann
Keflavík í síðustu umferð en KA,
sem er í áttunda sæti 1. deildar-
innar, vann Grindavík eftir víta-
spyrnukeppni. - hþh
VISA-bikar karla:
FH tekur á
móti KA í kvöld
FÓTBOLTI Þór/KA vann KR 4-0 í leik liðanna í
Pepsi-deild kvenna í gærkvöldi. Mörkin komu
öll í fyrri hálfleik, tvö frá Vesnu Smiljkovic,
eitt frá Mateju Zver og eitt frá Elvu Friðjóns-
dóttur.
„Það er aldrei auðvelt að spila á móti KR,“
sagði Dragan Stojanovic, þjálfari Þórs/KA,
léttur á því spurður hvort leikurinn hefði ekki
verið neitt mál fyrir stelpurnar hans.
„Við byrjuðum mjög vel og skoruðum strax
eftir nokkrar mínútur. Svo skoruðum við þrjú
í röð og afgreiddum leikinn eiginlega,“ sagði
Dragan sem var sérstaklega ánægður með
sóknarleikinn en ekki alveg jafn ánægður með
varnarleikinn.
„Við gerðum nánast allt rétt í sókninni í
fyrri hálfleiknum. Ég er ánægðastur með hvað
við náðum að nýta styrkleika okkar vel. Við
erum með fljóta framherja og við gáfum rétt-
ar og góðar sendingar á þá í leiknum,“ sagði
Dragan.
„Við féllum svo aðeins til baka í seinni hálf-
leiknum sem er kannski eðlilegt, það er erf-
itt að sækja allan leikinn,“ sagði Dragan en
liðið er nú einu stigi á eftir Blikum sem unnu
Hauka 4-1 í gær og fjórum stigum á eftir Val
sem vann Grindavík í gær 2-0 með tveimur
mörkum Bjarkar Gunnarsdóttur. Þá vann
Stjarnan 5-1 sigur á FH og Afturelding vann
Fylki 2-1.
„Valur og Breiðablik mætast í næstu umferð,
við bíðum bara eftir okkar tækifæri. Við höld-
um áfram að vinna í okkar leik og bíðum bara
eftir mistökum hinna liðanna,“ sagði Dragan.
Valur er í efsta sætinu með tuttugu stig eftir
átta umferðir. Breiðalik kemur næst með sautj-
án en Þór/KA er með sextán stig. Næst koma
Stjarnan, KR og þá Grindavík. - hþh
Valur og Breiðablik unnu bæði í Pepsi-deild kvenna í gærkvöldi líkt og Þór/KA sem heldur pressunni áfram:
Við bíðum bara eftir mistökum hinna
MARK Breiðablik skorar hér í gærkvöldi en það vann
öruggan sigur á Haukum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Roy Hodgson verður
næsti knattspyrnustjóri Liver-
pool. Að mati Massimo Moratti,
forseta Inter sem Hodgson stýrði
áður, er Hodgson fullkomin ráðn-
ing fyrir Liverpool.
Þegar Hodgson tók við Inter
var allt í rjúkandi rúst hjá félag-
inu, það var á botni deildarinn-
ar og ýmis vandamál utan vallar
spruttu upp. Hodgson stýrði lið-
inu til Evrópusætis eftir að hann
tók við á miðju tímabili og árið
eftir til úrslitaleiksins í UEFA-
keppninni og þriðja sætis í Serie-
A deildinni.
„Roy Hodgson er mikilvægur
maður í sögu Inter. Hann bjarg-
aði okkur á réttum tíma,“ sagði
Moratti við The Mirror. „Þegar
hann kom inn voru vandamál úti
um allt. Þetta leit ekki vel út. Það
kom ekkert fát á hann, hann var
rólegur og hélt okkur rólegum,“
sagði Moratti en einmitt vegna
vandamálanna utan vallar telja
margir að Hodgson sé góð ráðn-
ing fyrir Liverpool.
Moratti hélt áfram. „Hann
forðaði okkur frá stórslysi á mik-
ilvægum tímapunkti. Allir hjá
Inter minnast hans fyrir það.“
- hþh
Massimo Moratti, forseti Inter:
Roy fullkominn
fyrir Liverpool
ROY HODGSON Tekur við Liverpool í
vikunni. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY