Fréttablaðið - 12.08.2010, Blaðsíða 2
2 12. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR
FÓLK „Ég ákvað að sækja um stöð-
una þegar hún var auglýst,“ segir
Tómas Sturlaugsson búfræðing-
ur sem undanfarið hefur leyst af
bændur á áhrifasvæði eldgossins
í Eyjafjallajökli þegar þeir hafa
farið í frí.
„Ég er með aðsetur á Seljavöll-
um, þar sem bændur hafa brugðið
búi um skeið. Þaðan fer ég á þann
bæ sem ég er að hugsa um hverju
sinni,“ sagði Tómas sem í gær var
staddur á bænum Drangshlíðar-
dal við Skógaá. „Hingað til hef
ég verið á kúabúum og þá snýst
starfið fyrst og fremst um mjaltir
kvölds og morgna. Inn á milli geri
ég það sem fellur til, mála eða þríf
útihúsin svo dæmi séu nefnd.“
Tómas segist hafa kviðið því
töluvert að hitta fyrir bændur í
sveitinni sem svo illa varð fyrir
barðinu á eldgosinu í Eyjafjalla-
jökli. „Ég óttaðist að andrúms-
loftið yrði þungt, að fólk væri
illa stemmt eftir hörmungarnar.
En fólk er að jafna sig, það horf-
ir fram á veginn, er að fram-
kvæma og fjárfesta og ætlar að
halda áfram.“
Tómas segir að vel hafi verið
tekið á móti sér. „Það er alltaf eitt-
hvað í ísskápnum handa manni,“
segir hann og hlær. „Þetta er
alveg voðalega skemmtileg lífs-
reynsla og gefandi að hitta allt
þetta fólk sem hefur mikla sögu
að segja.“
Tómas er borgarbarn, alinn
upp í Reykjavík en var á sumr-
um í sveit undir Eyjafjöllum.
„Þannig að ég þekki mig aðeins
hér. Svo lærði ég í Bændaskólan-
um á Hvanneyri og það má segja
að draumurinn hafi alltaf verið
að verða bóndi.“
„Pálmi, ætlið þið að læsa
strákana okkar inni?“
„Það er enn þá allt opið í þeim efnum
en fólk mun allavega fá að velja.“
Pálmi Guðmundsson er framkvæmda-
stjóri dagskrársviðs 365 miðla. 365 hefur
tryggt sér sýningarrétt á næstu tveimur
heimsmeistarakeppnum í handbolta. Í
kjölfarið hafa ýmsir lýst yfir áhyggjum af
því að leikir íslenska handboltalandsliðs-
ins verði ekki í opinni dagkrá.
INDÓNESÍA, AP Abu Bakar Bashir,
róttækur íslamskur klerkur í
Indónesíu, hefur verið ákærður
fyrir skipulagn-
ingu hryðju-
verka.
Bashir er
ákærður fyrir
að hafa komið
upp hryðju-
verkasellu sem
hafði að mark-
miði launmorð
og árásir á
erlenda ferða-
menn í landinu. Verði Bashir
fundinn sekur verður hann senni-
lega dæmdur til dauða.
Bashir hefur lengi verið tal-
inn höfuðpaur hryðjuverkahóps
í Indónesíu sem hefur tengsl við
al-Kaída en hingað til hefur yfir-
völdum ekki tekist að bendla
hann við glæpi.
Hann er talinn bera ábyrgð á
árás á ferðamenn á Balí árið 2002
sem varð 202 einstaklingum að
bana. - mþl
Múslimaklerkur ákærður:
Skipuleggjandi
ódæðis á Balí
ABU BAKAR
BASHIR
SAMGÖNGUMÁL Farþegar sem ferð-
uðust með Icelandair voru tólf
prósentum fleiri í júlí en í sama
mánuði í fyrra. Þetta kemur fram
í flutningatölum fyrirtækisins.
Rúmlega 215 þúsund flugu með
Icelandair í júlí. Fyrstu sjö mán-
uði ársins voru farþegarnir rúm-
lega 808 þúsund talsins, ellefu
prósentum fleiri en í fyrra.
Farþegum Flugfélags Íslands
fækkaði hins vegar um þrjú pró-
sent. - þeb
Fjölgar um 12% milli ára:
Fleiri farþegar
með Icelandair
SEÚL Fyrrum kynlífsþrælar voru
á meðal mótmælenda við jap-
anska sendiráðið í Seúl í Suður-
Kóreu í fyrradag. Tilefnið var
afsökunarbeiðni japanska for-
sætisráðherrans, Naoto Kan,
vegna hernáms Japana á Suður-
Kóreu sem hófst 29. ágúst fyrir
100 árum.
Afsökunarbeiðni er hins vegar
ekki nóg að mati margra, ódæðis-
verkin hafi verið slík. Meðal þess
sem rifjað hefur verið upp eru
sögur af þrælabúðum og vændis-
húsum fyrir fyrir japanska her-
menn sem suður-kóreskar konur
voru neyddar til að vinna í.
Japönsk stjórnvöld hafa
sagst munu skila á næstunni
menningarverðmætum frá
S-Kóreu. Hernáminu lauk við lok
seinni heimsstyrjaldarinnar. - sbt
Vilja bætur vegna hernáms:
Nægir ekki af-
sökunarbeiðni
VILJA BÆTUR Á meðal mótmælenda var
þessi kona sem var í kynlífsþrælkun í
valdatíð Japana í Suður-Kóreu.
NORDICPHOTOS/AFP
SNJÓFLÓÐ Bæjarbúum í Neskaup-
stað er bent á að vera ekki á ferð-
inni nálægt eða undir svæði þar
sem unnið er að snjóflóðavörnum
í Tröllagili fyrir ofan bæinn.
Næstu daga getur verið hætt við
grjóthruni á svæðinu.
Á vef sveitarfélagsins kemur
fram að verktakafyrirtækið Köf-
unarþjónustan annist gerð snjó-
flóðavarnanna. „Fyrri hluti sum-
arsins fór í að útbúa aðstöðu fyrir
menn og búnað í fjallinu ásamt
því að setja upp kláf sem flytur
menn upp og niður fjallið,“ segir
á vefnum, en núna er unnið að því
að hreinsa grjót af svæðinu.
- óká
Unnið að snjóflóðavörnum:
Íbúar varaðir
við grjóthruni
Jákvæðni íbúa kom
ánægjulega á óvart
Tómas Sturlaugsson búfræðingur hefur leyst bændur undir Eyjafjöllum af síð-
an í júlíbyrjun. Hann segir starfið skemmtilega lífsreynslu og ánægjulegt hvað
íbúarnir séu bjartsýnir þrátt fyrir að hafa orðið illa fyrir barðinu á öskufalli.
Norska bændahreyfingin og fyrirtæki sem tengjast landbúnaði ákváðu í
vor að styrkja íslenska bændur sem orðið höfðu fyrir barðinu á eldgosinu í
Eyjafjallajökli. Tilkynnt var um styrk að andvirði sjö milljóna íslenskra króna
sem Bændasamtökunum var falið að ráðstafa. Að sögn Eiríks Blöndals,
framkvæmdastjóra þeirra, var afráðið að leggja áherslu á afleysingaþjónust-
una og bæta þannig við orlofsstyrk sem þegar var búið að ákveða að veita
bændum á áhrifasvæði gossins. Auglýst var eftir tveimur afleysingamönnum
og hófu þeir störf í upphafi júlí.
Að sögn Sveins Sigurmundssonar, framkvæmdastjóra Búnaðarsambands
Suðurlands, hafa ellefu nýtt sér þjónustuna og er mikil ánægja með fram-
takið. Bændunum gefst kostur á þjónustunni fram að áramótum, tvo til sjö
daga í senn. Auk Norðmannanna styðja íslensk bændasamtök við bakið á
bændunum.
Norðmenn styrkja íslenska bændur
SJÁVARÚTVEGUR Breska stórblaðið
The Independent telur glímuna um
makrílveiðar Íslendinga og Færey-
inga komna á það alvarlegt stig að
deila við Breta á borð við þorska-
stríðin sé í uppsiglingu.
Blaðamaðurinn Martin Hickman
segir að Evrópusambandið gæti sett
viðskiptabann á Ísland eða lokað
höfnum sínum fyrir íslenskum skip-
um í því sem hann kallað yfirvof-
andi „makrílstríð“. Þar vitnar hann
í orð Mariu Damanaki, sjávarút-
vegsstjóra ESB, sem hefur sagt að
Íslendingar og Færeyingar verði að
átta sig á að framkvæmdastjórnin
íhugi „allar nauðsynlegar aðgerðir“
til að vernda hagsmuni sína.
Eins og Fréttablaðið greindi frá á
þriðjudag hefur framkvæmdastjórn
ESB lýst yfir þungum áhyggjum af
veiðum Íslendinga og Færeyja á
makríl. Því er haldið fram að veið-
ar þjóðanna vinni gegn markmið-
um um sjálfbærar veiðar og ógni
stofninum. Í fréttatilkynningu frá
ESB eru makrílveiðarnar kallað-
ar stjórnlausar. Independent segir
að ESB telji víst að „rányrkjan“ sé
drifin af bágu efnahagsástandi á
Íslandi.
Independent hefur það eftir
Richard Lochhead, sjávarútvegs-
ráðherra skosku heimastjórnarinn-
ar, að hótanir ESB séu það sem þarf
og hvetur til þess að makrílveiðarn-
ar verði notaðar sem þvingunartæki
í aðildarviðræðum Íslands og ESB.
- shá
Breskir fjölmiðlar fara mikinn vegna makrílveiða Íslendinga og Færeyinga:
Segja makrílstríð í uppsiglingu
ÞRÆTUEPLIÐ Makríll er mikilvæg tegund í veiðum og vinnslu víða innan Evrópusam-
bandsins. Á Bretlandseyjum er tegundin mikilvægari en þorskur og ýsa. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR
SVEITARSTJÓRNARMÁL Sameiginleg
innkaup á hráefni verða fyrir öll
mötuneyti leik- og grunnskóla í
Vesturbæ Reykjavíkur í haust.
Verkefnið er þriggja mánaða til-
raunaverkefni og hluti af tillögum
starfshóps um rekstrarhagræð-
ingu í mötuneytum sem menntaráð
Reykjavíkur samþykkti í gær.
Oddný Sturludóttir, formaður
menntaráðs, segir Vesturbæinn
valinn vegna þess hversu marga
skóla í mismunandi stærðum sé
þar að finna.
Oddný segir markmiðið með
svokölluðum hráefnismatseðlum
vera að ná niður
kostnaði. Starfs-
fólk mötuneyta
velji þannig ekki
hvað á að vera
meginhráefni
dag hvern en
sé matreiðslan
í sjálfsvald sett.
Gæðakröfur
Lýðheilsustöðv-
ar verði hafðar
að leiðarljósi við
innkaupin. Oddný bendir á að það
geti verið þægilegt fyrir foreldra
barna á mismunandi skólastigum
að börnin fái nokkurn veginn það
sama í hádeginu.
Innkaupaskrifstofa Reykjavíkur
mun sjá um innkaupin en verkefna-
stjóri hefur verið ráðinn til hálfs
árs til að meta árangur starfsins
og hversu mikið er hægt að spara
með því að pantanir í mötuneytin
séu færri og stærri. Framtíðar-
markmiðið er að kaupa sameig-
inlega inn í öll skólamötuneyti
í Reykjavík. Starfshópur hefur
unnið að undirbúningi verkefn-
isins og annar mun vinna tillög-
ur um einföldun á bókhaldi skóla-
mötuneytanna. - sbt
Menntaráð stefnir að hagræðingu í rekstri mötuneyta í leik- og grunnskólum:
Matarinnkaup verða sameiginleg
Þriðjungur leikskólastjóra er
hlynntur hugmyndum um fækkun
mötuneyta með samstarfi leik-
skóla. Þetta kom fram í könnun
sem gerð var þeirra á meðal.
Þrettán prósent grunnskólastjóra
voru fylgjandi samstarfi mötuneyta
grunnskóla í hverfum.
Rúmur fimmtungur stjórnenda
taldi raunhæft að fækka mötu-
neytum með samstarfi leik- og
grunnskóla í sama hverfi og um
helmingur taldi samstarf raunhæft
milli mötuneyta grunnskóla og
frístundaheimila. Flestir töldu væn-
legt að nota sama grunnhráefni.
Vilja fækka
mötuneytunum
ODDNÝ
STURLUDÓTTIR
Í SVEITINNI Tómas Sturlaugsson við störf sín í afleysingum í Drangshlíðardal undir
Eyjafjöllum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Undanfarin ár hefur Tómas
unnið á dönskum kúabúum.
Spurður um muninn á að vinna
á íslensku og dönsku kúabúi
segir hann að hann liggi einkum
í stærðinni, dönsku býlin séu svo
miklu stærri.
sigridur@frettabladid.is
SPURNING DAGSINS