Fréttablaðið - 20.08.2010, Blaðsíða 50
34 20. ágúst 2010 FÖSTUDAGUR
Toshiba 32“ LCD HD ready 50hz
BH32AV733F
Upplausn: 1366x768 - Móttakari: DVB-T
Dýnamísk skerpa: 12000:1 - Endurnýjunartíðni: 50Hz
Tengi: 2x HDMI
Vaxtalausar raðgreiðslur
mánaða9
til allt að
LG 42“ LCD full HD 100hz
BHLG-42LD420
Upplausn: 1920x1080 (FULL HD) - Móttakari: DVB-T
Dýnamísk skerpa: High Contrast - Endurnýjunartíðni: 100Hz
Tengi: 2x HDMI
Vaxtalausar raðgreiðslur
aðanmá9
til allt að
159.99999.99999
.999
Vaxtalausar raðgreiðslur
ðaanám9
til allt að il ll 79.999
Vaxtalausar raðgreiðslur
ðaaán
m9
til al lt að
il ll
Vaxtalausar raðgreiðslurða
mána
9
l
i
l
til a llt að
til llt 149.999
Samsung R530
15.6” HD 1366 x 768
Intel Core i3-330M 2.13GHz
Acer S5534-1121
AMD Athlon 64 X2
Dual-Core L310
4GB(2x 2GB) DDR2-667
Acer AS5532-5509
AMD Athlon 64 TF-36
2GB DDR2-667
Tónleikar til heiðurs bandarísku
rokksveitinni Pearl Jam verða
endurteknir á Sódómu Reykjavík
í kvöld. Mikil stemning var á fyrri
tónleikunum sem voru haldnir í
byrjun júlí og munu strákarnir
mæta tvíefldir á þessa aðra heið-
urstónleika Pearl Jam.
Leikin verða lög af nánast öllum
plötum sveitarinnar ásamt lögum
sem hafa ratað í kvikmyndir.
Heiðurshljómsveitina skipa Magni
Ásgeirsson, Franz Gunnarsson,
Haraldur V. Sveinbjörnsson, Stef-
án Ingimar Þórhallsson og Birgir
Kárason. Miðaverð er 1.500 krón-
ur og viðburðurinn hefst á mið-
nætti.
Til heiðurs
Pearl Jam
HEIÐURSBAND Magni Ásgeirsson
og félagar í heiðursbandinu spila á
Sódómu í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Russel Brand og Katy Perry eru
strax farin að sækja tíma í para-
ráðgjöf þrátt fyrir að átta vikur
séu í brúðkaupið. Pararáðgjöfin
er hugmynd söngkonunnar en
hún er hrædd um að missa tengsl-
in við tilvonandi eiginmann sinn
vegna þess hvað þau eyða litlum
tíma saman. Hann er á fullu við
tökur á nýrri mynd og hún þeys-
ist á milli heimshluta að syngja á
tónleikum.
Perry og Brand taka bæði einn
klukkutíma á dag frá og hittast í
síma með ráðgjafa sínum og fara
yfir málin. Skötuhjúin ætla að
gifta sig á eyjunni Maui í lok okt-
óber og herma fregnir vestanhafs
að öllu verði tjaldað til í brúð-
kaupinu.
Fá pararáð-
gjöf í síma
STYRKJA TENGSLIN Katy Perry og Russel
Brand hittast á símafundum einu sinni
á dag með ráðgjafa sínum til að styrkja
tengslin. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Samkvæmt slúðurritum hið
vestra ríkir mikil samkeppni
milli Kardashian-systranna
þriggja og hefur það verið svo
alveg frá því þær voru börn.
„Þær eru alltaf að gagnrýna hver
aðra og Kourtney gerir látlaust
grín að vexti Kim,“ var haft eftir
innanbúðarmanni sem bætir við
að Kim og Kourtney hafi keppt
um athygli karlmanna alveg
frá því þær voru táningar en nú
keppa þær einnig um frægð og
frama.
„Kim var alltaf fræga systirin
en Kourtney hefur fengið aukna
athygli eftir barnsburðinn og
vegna erfiðs sambands. Kim vill
ekki missa stöðu sína sem fræg-
asta systirin og vinnur nú hörð-
um höndum að því að athyglin
haldist fyrst og fremst á henni,“
sagði heimildarmaðurinn.
Berjast
sín á milli
SYSTRASLAGUR Kim, Kourtney og Khloe
Kardashian berjast sín á milli um vin-
sældir sjónvarpsáhorfenda.
Ben Affleck leikstýrir og fer með
eitt aðalhlutverkið í spennumynd-
inni The Town sem frumsýnd
verður bráðum. Blake Lively, sem
hefur gert garðinn frægan í sjón-
varpsþáttunum Gossip Girl, fer
einnig með hlutverk í myndinni.
Tímaritið Interview Mag fékk
Affleck til að taka langt og mikið
viðtal við Lively þar sem hann
spurði hana spjörunum úr. Í lokin
er viðtalið meira eins og spjall
tveggja vina og biður Affleck
stúlkuna meðal annars að hætta
að gagnrýna fataval sitt og kallar
Lively tískudrós. „Þökk sé fólki
eins og þér að ég er tískutákn, því
ef það er ekkert rangt þá er held-
ur ekkert rétt,“ svarar stúlkan um
hæl. „Þú ert orðin miklu tíkar-
legri eftir að við lukum við tökur á
myndinni,“ segir Affleck þá.
Annars staðar spyr Affleck leik-
konuna hvort hún eigi sér fyrir-
myndir innan bransans og segist
hún oftast svara þessari spurningu
með því að nefna nafn einhvers
karlleikara. „Það er fullt af góðum
leikkonum til, en mér finnst karl-
menn almennt fá betri og fleiri
tækifæri heldur en konur.“
Spurð
spjörum úr
TÍSKUDRÓS Blake Lively er spurð spjör-
unum úr af leikaranum Ben Affleck í
viðtali við Interview Mag.
Lið Vilhelms Antons Jóns-
sonar og Sverris Þór Sverr-
issonar etur kappi við tví-
eykið Auðun Blöndal og
Gillz í sérstökum þrauta-
kappakstri yfir endilöng
Bandaríkin. Keppnin verð-
ur sýnd á föstudagskvöld-
um á Stöð 2 en við sögu
koma einkennileg ensku-
kunnátta Sveppa, fellibylur
og afslappaðir Suðurríkja-
menn.
Fyrirkomulag keppninnar er
þannig að liðin keyra hvort úr sinni
áttinni og eiga að hafa upp á leyni-
gesti í Mall of America í Minneap-
olis. Liðin leysa þrautir á leiðinni og
fá stig fyrir að klára þær. Vilhelm
var reyndar á leiðinni út í íslensk-
ar óbyggðir þegar Fréttablaðið náði
tali af honum, með riffil á bakinu
að fara skjóta gæsir. „Þetta var
snilldarferð,“ segir Vihelm, sem
einhverjir kynnu að telja gáfu-
mennið í þessum kvartett. „Þeir
eru nú ekki allir jafn vitlausir þótt
sumir þeirra séu það, þetta var
bara mikil mannfræðistúdía fyrir
mig, að kynnast þessum tegundum
í sínu rétta umhverfi.“
Vilhelm hafði reyndar áður
komið til Ameríku, verið bæði í
New York og Washington. Ferð-
in gekk hins vegar ekki út á hinar
dæmigerðu amerísku stórborgir
heldur þau svæði sem fæstir ferða-
langar komast í kynni við. „Þetta
var mikill akstur, það lágu kannski
sex til sjö hundruð kílómetrar að
baki á hverjum degi enda keyrð-
um við í gegnum sjö eða átta ríki
á aðeins ellefu dögum,“ útskýrir
Vilhelm. Hann og Sveppi héldu sér
uppi á þurrkuðu nautakjöti og suð-
urríkjasnakki og Vilhelm viður-
kennir að hann hafi aðeins bætt á
sig í ferðinni enda hafi fá tækifæri
gefist til að hreyfa sig almennilega.
Suðurríkjamenn komu honum mest
á óvart. „Þeir eru alveg ótrúlega
gestrisnir og ákaflega afslappaðir,
það getur tekið marga klukkutíma
að fara út í búð.“
Að sögn Vilhelms gekk samstarf
hans og Sveppa ákaflega vel þótt
„maskínuliðið“ eins og Villi kallar
framleiðandann og tökumanninn
hafi stundum verið með leiðindi.
„Ég hélt uppi stuðinu með spurn-
ingakeppni og skemmtilegri tón-
list þegar útvarpið ofbauð manni,“
segir Vilhelm og bætir því við að
hann hafi verið guðs lifandi feginn
að þurfa ekki að sitja í bíl með þeim
Audda og Gillz. „Já, tónlistin sem
þeir hlusta á gæti drepið fullvaxta
karlmann úr leiðindum.“
Og þótt ferðin hafi að mestu leyti
gengið vel fyrir sig voru þeir félag-
ar stöðvaðir af lögreglunni í þrí-
gang. Þar kom hins vegar sérkenni-
leg enskukunnátta Sverris Þórs að
góðum notum. „Það er ekki hægt
að sekta krullhærðan og málhalt-
an karlmann,“ segir Villi. Þá hafi
fellibylur sem reið yfir Houston
einnig verið eftirminnilegur og þá
sérstaklega þegar þeir flugu út úr
honum, umkringdir af þrumum og
eldingum. „Við Sveppi erum ákaf-
lega flughræddir menn og þetta
var síður en svo þægileg flugferð.“
Blásið verður til sérstaks frumsýn-
ingarhófs á Players í kvöld klukk-
an sjö en Vilhelm verður ekki við-
staddur vegna gæsaveiðanna.
freyrgigja@frettabladid.is
ÁTU ÞURRKAÐ NAUTAKJÖT
OG SNAKK Í HVERT MÁL
Caleb Folowill, söngvari hljómsveitarinnar Kings
Of Leon, sagði frá því nýlega að meðlimir hljóm-
sveitarinnar hefðu hafnað fjölda tækifæra til að fá
tónlist hljómsveitarinnar í þætti á borð við Glee,
Ugly Betty og í sýnishorn fyrir ýmsar kvikmyndir.
„Fólk hefur hringt í okkur til að athuga hvort við
myndum leyfa þeim að nota Use Somebody í sýnis-
hornum fyrir kvikmyndir sínar og við höfum neitað
þeim öllum. Daginn eftir hringja þeir aftur og gefa
okkur samband við stjörnu myndarinnar – ég nefni
engin nöfn, en hann er mjög frægur leikari – til að
láta hann reyna að sannfæra okkur um að sam-
þykkja þetta. Ég bað hann bara um að vera ekki að
eyða tímanum í þetta,“ var haft eftir söngvaranum.
Hafna kvikmyndum og þáttum
KINGS OF LEON Hafnar ítrekað boði um að tónlist þeirra sé
spiluð í þáttum og sýnishornum fyrir kvikmyndir.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
BÆTTI AÐEINS Á SIG Vilhelm segist hafa bætt nokkrum
kílóum á sig í ferðinni yfir Bandaríkin enda hafi hann og
Sveppi aðallega lifað á þurrkuðu nautakjöti og snakki.