Fréttablaðið - 20.08.2010, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI20. ágúst 2010 — 194. tölublað — 10. árgangur
FÖSTUDAGUR
skoðun 20
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
600 g beinlaust kjöt, kjúklingur, lamba- eða svínakjöt2 msk. matarolía3 gulrætur
1-2 laukar
4 dl hrísgrjón
75 g þurrkaðar apríkósur50 g rúsínur
2 appelsínur, um 2 dl safi og börkur af einni appelsínu2 grænmetisteningar4 dl vatn
Grófsaxið apríkósur og blandið þeim saman við ásamt rúsínum og rifnum appelsínuberki og hellið safanum yfir. Leysið súputening-ana upp í vatni og hellið yfir. Setjið álpappír yfir og bakið í þrjátíu mínútur. Takið álpappírinn af og hrærið í. Látið standa í ofninum í tíu mínútur.
Jógúrtsósa
2 d
FLJÓTLEGUR KJÖTRÉTTUR AUÐAR INGUmeð jógúrtsósu og bollum fyrir 4-6
„Þetta er kjötréttur sem ég nota
mikið þegar ég fæ börnin mín í
mat,“ segir Auður Inga Ingvars-dóttir listakona. „Og hann er svo
fljótlegur. Ég skutla þessu bara
inn í ofn og hann er tilbúinn.“Auður Inga lýsir gerð réttarins
þannig: „Ég geri kjötrétt sem í er
hægt að nota kjúkling, svínakjöt
eða lambakjöt,“ segir Auður Inga
og heldur áfram: „Ég steiki kjötið
á pönnu og set í eldfast mót. Svo
set ég lauk og gulrætur á pönnuna
og bæti hrísgrjónum við. Þetta er
látið hitna vel þar til hrísgrjónin
eru orðin glær og þá set ég apr-íkósur, rúsínur, appelsínubörk ogappelsínusafa “
Skutla kjötrétti í ofninn
Listakonan Auður Inga Ingvarsdóttir er mikið fyrir heilsusamlegan mat. Hún gefur lesendum uppskrift
að kjötrétti með gulrótum og lauk, hrísgrjónum, apríkósum og appelsínuberki sem vinsæll er á heimilinu.
Auður Inga Ingvarsdóttir segist vera mikið fyrir heilsusamlegan mat og finnst sérstaklega gaman að baka brauð og bollur.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VETRAROPNUNARTÍMI hófst í Fjöl-skyldu- og húsdýragarðinum 18. ágúst. Frá og með þeim tíma er opið frá klukkan 10 til 17. Tækin verða opin út þessa viku en fara svo í vetrarfrí.
Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200Netf
frábært flugeldaútsýni til Reykjavíkurhafnar og næg bílastæðiPerlan býður ykkur velkomin á menningarnótt. Hefjið
menningarröltið á belgískum vöfflum á 4. hæð Perlunnar
eða njótið flugeldanna frá höfninni yfir 4ra rétta kvöldverði á
veitingastaðnum á 5. hæð. Hjá Perlunni eru næg bílastæði!
Góð tækifærisgjöf!
4ra rétta tilboð
· Lystauki — Hvala carpaccio ·· Humarsúpa rjómalöguð með grilluðum humarhölum ·
· Kryddlegin bleikja með rússneskri pönnuköku ·
· Fiskur dagsins útfærður af matreiðslumönnum Perlunnar ·· Lambatvenna með steinseljurótarmauki og basil-myntu gljáa ·
· Kókoshnetu–tapioca með steiktu mangói og lychée sorbet ·7.290 kr.
föstudagurFYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS 20. ágúst 2010
H
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Föstudagur
veðrið í dag
Hálfgerð sálfræði
Jökull Jörgensen hefur
rekið hárgreiðslustofuna
Amadeus í 25 ár.
tímamót 26
Brúðkaupið í dag
Anita Briem gengur í það
heilaga á grískri eyju.
fólk 46
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
9
-1
6
0
8
Uppskriftin að föstudags-
pizzunni er á gottimatinn.is
Mundu eftir
Afsláttarhefti
Smáralindar
Glæsilegt Borgarleikhúsblað
fylgir með Fréttablaðinu í dag.
Sala áskriftarkorta
hefst kl. 9:00!
Útilokar ekki Kasakstan
Alfreð Finnbogason er
opinn fyrir tilboðum frá
öllum heimshornum.
íþróttir 38
BJART MEÐ KÖFLUM sunnan- og
vestanlands en skýjað að mestu og
lítilsháttar væta norðan- og austan-
lands. Hiti verður á bilinu 8 til 18
stig, hlýjast suðvestanlands.
VEÐUR 4
13
9
11
9
9
LÖGREGLUMÁL „Ég skil einfaldlega
ekki hver getur gert svona. Ég bara
sit og bíð eftir því að þessi mann-
eskja finnist,“ segir unnusta Hann-
esar Þórs Helgasonar í samtali við
Fréttablaðið. Hún vildi ekki koma
fram undir nafni.
Það var unnusta Hannesar sem
kom að honum látnum á heimili
hans um hádegi á sunnudag. Hún
segir erfitt að útskýra líðan sína
við aðstæður sem þessar og hún
hafi hvorki náð að hvílast né sofa
mikið síðan atvikið varð.
Hannesi var ráðinn bani með
hníf og var hann stunginn marg-
sinnis og skorinn. Mikið blóð var
á vettvangi og aðkoman skelfileg,
samkvæmt upplýsingum Frétta-
blaðsins. Áverkar á líkinu benda
til að um mikla heift hafi verið
að ræða og eindreginn tilgangur
ódæðismannsins að myrða hann.
Morðvopnið er ófundið. Rannsókn
lögreglu er enn í fullum gangi og
er hún ein sú viðamesta sem hefur
átt sér stað hér á landi. Í frétt-
um Stöðvar 2 í gær bað fjölskylda
Hannesar almenning um aðstoð við
lausn málsins og þakkaði þann hlý-
hug sem henni hefur verið sýndur
við fráfall hans.
„Ég bið þjóðina um allt það sem
hún kann að vita til þess að leysa
þetta hörmulega mál,“ sagði Krist-
ín Helgadóttir, systir Hannesar, í
gærkvöldi.
Séra Þórhallur Heimisson, sókn-
arprestur í Hafnarfjarðarkirkju,
segir málið afar sorglegt og hafa
áhrif á alla.
„Það eru allir að fylgjast með
þessu og það er erfitt fyrir fólk að
hafa þetta hangandi yfir sér. Menn
eru mikið að velta vöngum.“ Þór-
hallur segist hafa hvatt fólk til þess
að gefa lögreglunni tíma og frið til
að vinna sína vinnu og reynt að
blása á þær sögusagnir sem hafa
komið upp eftir atvikið. „Menn eru
að eltast við þær hér í bænum eins
og annars staðar. Við erum lítið
samfélag.“ Hann segir fermingar-
börn mikið velta sér upp úr málinu.
„Við finnum á þeim að það er mikið
verið að tala um þetta heima við,“
segir hann. „Svona harmleikur
hefur ekki átt sér stað hér á landi
í langan tíma og fólk ætti að fara
varlega í að blása upp glæður með
hræðslu og flökkusögum. Það er
ekki neinum til góðs.“
Tveir menn hafa verið hand-
teknir í tengslum við morðið en
ekki var farið fram á gæsluvarð-
hald yfir þeim og þeir látnir lausir.
- sv, jss
Skil einfaldlega ekki
hver getur gert svona
Unnusta Hannesar Þórs Helgasonar segist lítið hafa hvílst eða sofið síðan
morðið var framið. Fjölskylda Hannesar biðlar til þjóðarinnar um hjálp. Sóknar-
prestur segir málið gríðarlega sorglegt. Glæpurinn framinn í mikilli heift.
ÞJÓÐKIRKJAN Kristnar kirkjur á
Íslandi munu á næstunni lýsa
því sameiginlega yfir að þær
taki afstöðu gegn misnotkun og
ofbeldi í hvaða mynd sem er.
Þetta kemur fram í grein
Karls Sigurbjörnssonar, biskups
Íslands, sem birtist í Fréttablað-
inu í dag. Yfirlýsingin er verk-
efni kirkna og safnaða sem eiga
aðild að samstarfsnefnd kristinna
trúfélaga. Biskup segir mark-
visst hafa verið unnið að bættum
vinnubrögðum í kynferðismál-
efnum innan þjóðkirkjunnar. Þá
þakkar hann þeim sem láta sér
ekki standa á sama um málin.
- þeb/ sjá síðu 22
Biskup boðar yfirlýsingu:
Gegn ofbeldi
og misnotkun
SAKAMÁL Sigurður Einarsson,
fyrrverandi stjórnarformaður
Kaupþings, mætti til skýrslu-
töku hjá sérstökum saksóknara
um níu leytið í gærmorgun. Stóð
skýrslutakan
yfir til hádegis
þegar tekin var
tveggja tíma
pása og svo
haldið áfram til
klukkan sex.
„Þetta gekk
bærilega í dag,“
segir Ólafur Þór
Hauksson, sér-
stakur saksókn-
ari, sem vildi
lítið annað segja um hvað átti sér
stað. Ólafur segir að skýrslutak-
an muni halda áfram á morgun en
óvíst væri hve lengi hún stæði, það
réðist af framvindunni.
Sigurður var upphaflega kvadd-
ur til skýrslutöku í maí en þegar
hann varð ekki við þeirri kvaðn-
ingu var gefin út handtökuskipun.
Nú hefur handtökuskipunin verið
felld niður og er Sigurður frjáls
ferða sinna. - mþl
Saksóknari gefur ekkert upp:
Sigurður í sjö
tíma yfirheyrslu
SIGURÐUR
EINARSSON
HEIMILI HANNESAR ÞÓRS Í HAFNARFIRÐI Fjöldi fólks hefur komið að heimili Hannesar Þórs Helgasonar að Háabergi og vottað
hinum látna virðingu sína með því að leggja blóm á tröppurnar. Í gærkvöldi loguðu þar líka friðarljós. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Fólk ætti að fara
varlega í að blása
upp glæður með hræðslu og
flökkusögum.
ÞÓRHALLUR HEIMISSON
SÓKNARPRESTUR Í
HAFNARFJARÐARKIRKJU