Fréttablaðið - 20.08.2010, Blaðsíða 41

Fréttablaðið - 20.08.2010, Blaðsíða 41
FÖSTUDAGUR 20. ágúst 2010 25 SEND IÐ OKK UR LÍNU Fréttablaðið og Vísir hvetja lesendur til að senda línu og leggja orð í belg um málefni líðandi stundar. Greinar og bréf skulu vera stutt og gagnorð. Tekið er á móti efni á netfanginu greinar@frettabladid.is eða á vefsíðu Vísis, þar sem finna má nánari leiðbeiningar. Ritstjórn ákveður hvort efni birtist í Fréttablaðinu eða Vísi eða í báðum miðlunum að hluta eða í heild. Áskilinn er réttur til leiðréttinga og til að stytta efni. Á síðustu árum hafa skotið upp kollinum gömul mál þar sem ásakanir á hendur fyrrverandi biskupi Íslands um kynferðisof- beldi koma við sögu. Þegar ásakanirnar á hendur biskupi komu fram var ég í guð- fræðinámi, sótti safnaðarstarf í Langholtskirkju og sinnti barna- starfi í afleysingum. Ég átti barn hjá dagmömmu í hverfinu. Við urðum góðir kunningjar og einn daginn trúði hún mér fyrir því að biskup Íslands, sem hefði m.a. gift þau hjónin hefði leitað á hana kyn- ferðislega með nokkuð alvarleg- um hætti. Hún sagði mér að þetta hefði legið á henni lengi og nú þegar hún ætti að ferma drenginn sinn í kirkjunni þar sem hann væri biskup liði henni enn þá verr með þetta mál. Nokkru síðar sagði hún mér að hún hefði ákveðið að reyna að gera eitthvað í málinu, stuttu seinna varð málið að blaðamáli. Þessi kona kom ekki fram í fjöl- miðlum. Hún var ekki að leita að athygli heldur frekar að viður- kenningu á því að á henni hefði verið brotið. Konan leitaði til sóknarprests og varð þannig hluti af öðru deilumáli á þessum tíma, eftir það voru orð hennar enn frek- ar dregin í efa. Ég vildi eins og lík- lega aðrir innan kirkjunnar halda mér til hlés og ræddi þetta ekki mikið við hana. Í háskólanum og í kirkjunni hlustaði ég á umræður um málið. Ég heyrði mæta menn segja hluti eins og „þær mega nú bara vera upp með sér að biskup- inn sýni þeim áhuga“ og „ég hef sjálfur borðað með biskupinum og talað við konuna hans og þau eru bæði yndislegt fólk, þess vegna getur þetta ekki verið satt“. Fyrst hélt ég að kirkja myndi standa með konunum. Eftir að hafa hlustað á samræður í nokkurn tíma grun- aði mig að hún gæti ekki tekist á við málið. Eftir því sem ég hlust- aði meira varð ég sannfærðari um að lítið yrði gert. Undir það síðasta þegar konan var orðin mjög þreytt á fjölmiðla- umfjöllun og grófu umtali stoppaði hún mig úti á götu. Hún sagði mér frá baráttu sinni og því álagi sem því hefði fylgt. Að síðustu sagð- ist hún vera í góðu sambandi við presta og taldi víst að kirkjan ætl- aði að standa með henni og finna leið út úr málinu. „Vertu bara ekki of viss um það,“ sagði ég að lokum. Það var einkennileg stund þegar við kvöddumst. Kannski vissum við þá báðar að lítið yrði gert, það er erfitt að eiga við kunningjasam- félagið. Ég er ekki viss um að kirkjan geti bætt upp þann trúverðugleika sem hún hefur misst á síðustu árum. Til kirkjunnar leita margir í neyð og allur hálfsannleikur rýrir það traust sem nauðsynlegt er við slíkar aðstæður. Opin umræða, öflug barátta, afdráttarlausar yfir- lýsingar og skýrar verklagsreglur verða að vera í forgangi. Ef kirkj- an notar ekki alla sína krafta til að leita sannleikans í hverju máli er málið tapað. Þó ég sé guðfræðing- ur hef ég ekki starfað sem slík og ekki hef ég heldur kynnt mér verk- ferla innan kirkjunnar, en þegar málin horfa svona fyrir áhugasöm- um leikmanni, þá hlýtur eitthvað að vera að. Skila verkferlar gegn kynferðisofbeldi árangri? Núna eru nokkur uppsjávar-vinnsluskip að búa til mikil verðmæti úr makríl sem leitað hefur inn í íslenska landhelgi. Þetta er fisktegund sem íslensk- ir útgerðarmenn hafa engan nytjarétt á, því það eru sjómenn í nágrannaríkjum okkar sem hafa nýtt þennan stofn fram að þessu. Íslensk stjórnvöld ákváðu að gefa einhliða út 130.000 tonna kvóta til þessara veiða og bundu veiðarnar að þessu sinni við að makríllinn yrði unninn til manneldis sem er mikil fram- för frá seinustu tveimur árum þar sem honum var mokað upp í bræðslu til þess að skapa við- komandi útgerðum veiðireynslu. Þetta er mikil búbót fyrir þær útvöldu útgerðir og sjómenn sem njóta þeirra forréttinda að fá að nýta þennan kvóta. Háseta- hluturinn á bestu skipunum er líklega 100 til 200 þúsund á dag og skipstjórarnir eru líklega að taka inn eina milljón á dag. Þó sjómenn séu allra góðra gjalda verðir þá eru þessi laun úr öllu samhengi við laun flestra ann- arra í þessu landi. Hvers vegna var þessi kvóti ekki seldur til útgerðanna og þannig fengið endurgjald sem runnið hefði í sameiginlega sjóði þjóðarinnar í stað þess að láta fáa útvalda útgerðarmenn og sjómenn sitja eina að þessum nýfengnu verðmætum? Nokkur orð um skiptingu auðlinda þjóðarinnar Sjávarútvegur Hanna Lára Steinsson félagsráðgjafi Kirkjan Inga Sigrún Atladóttir sóknarnefndarmaður í Kálfatjarnarkirkju ... verk- og tæknifræðingum til starfa. Í boði eru spennandi störf í alþjóðlegu umhverfi. Mikil erlend samskipti. Mjög góð laun. Háskóli Íslands og Háskólinn í Reykjavík bjóða nám sem veitir ungu fólki aðgang að þessum störfum. Íslenskt atvinnulíf árið 2015 óskar eftir...
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.