Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.09.2010, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 18.09.2010, Qupperneq 22
22 18. september 2010 LAUGARDAGUR F yrir sex árum gerðist það í Litháen að Rolandas Paksas forseti var dæmd- ur til embættismissis, fyrstur evrópskra þjóð- höfðingja. Paksas vann sér það til sakar að hafa veitt rúss- neskum auðkýfingi ríkisborgararétt í Litháen, en sá hafði áður gefið stór- fé í kosningasjóð Paksas. Rannsókn lögreglunnar í Litháen leiddi í ljós að Rússinn, sem heitir Júrí Borisov, hafði vafasöm tengsl við rússnesku mafíuna og var hann síðar sviptur ríkisborgararéttin- um. Misjafnt fyrirkomulag Sjaldgæft er að æðstu embætt- ismenn þjóða séu dregnir fyrir dómstóla fyrir brot í embætti eða önnur alvarleg afbrot. Í stjórnskip- an flestra landa er þó gert ráð fyrir slíkum málaferlum, og þá eru oft sérstakir dómstólar til reiðu þegar slík mál koma upp. Á Norðurlöndunum er fyrirkomu- lagið víðast hvar svipað landsdómi hér á landi. Í Svíþjóð var landsdóm- ur reyndar lagður niður með stjórn- arskrárbreytingu árið 1975, en hin Norðurlöndin eru öll ennþá með landsdóm. Svíar urðu reyndar fyrstir til þess að setja lög um landsdóm, eða strax árið 1772, stuttu eftir að Gústav III. náði völdum. Sænski landsdómurinn varð síðan fyrirmynd slíkra dóm- stóla á hinum Norðurlöndunum. Fyrirkomulag málaferla gegn æðstu embættismönnum er mis- jafnt eftir löndum. Í Svíþjóð var það hæstiréttur sem tók við hlut- verki landsdóms þegar hann var lagður niður. Í Þýskalandi er sér- stakur stjórnlagadómstóll, sem einnig fjallar um mál sem höfðuð eru gegn forseta landsins. Í Banda- ríkjunum, Bretlandi og víðar er það hins vegar efri deild þjóðþingsins sem dæmir í málum af þessu tagi, en neðri deildin fer með ákæru- valdið. Víðast hvar er ekki hægt að áfrýja úrskurði í slíkum málum til annarra dómstóla, og sums staðar er sérstaklega tekið fram í lögum að náðun sé ekki möguleg. Sigur lýðræðis Í Lettlandi var máli Paksas vísað til stjórnlagadómstóls, sem komst að þeirri niðurstöðu að forsetinn hefði gerst sekur um þrenns konar brot gegn stjórnarskránni, sem hann hafði svarið embættiseið að. Í beinu framhaldi af þessum úrskurði sam- þykkti þjóðþingið að víkja honum úr embætti. Stjórnmálamenn í Lettlandi fögn- uðu margir hverjir þessari niður- stöðu, sögðu hana sigur fyrir hið unga lýðræði landsins eftir að það braust undan oki Sovétríkjanna og sönnun þess að lýðræðið stæði ekki á brauðfótum. Paksas var reyndar ekki af baki dottinn og hugðist bjóða sig fram til forseta strax í næstu kosning- um, en þjóðþingið tók þá til bragðs að breyta kosningalögum þannig að forseti, sem dæmdur hefur verið til embættismissis, má ekki bjóða sig fram næstu fimm árin á eftir. Paksas er enn leiðtogi stjórnmála- flokksins Regla og réttlæti, flokks frjálslyndra hægrimanna sem hann stofnaði sjálfur árið 2002, en sá flokkur byggir tilveru sína reyndar að verulegu leyti á vinsældum Paks- as, sem enn á töluvert persónufylgi í landinu. Tamílamálið Eitt þekktasta dæmið um beitingu landsdóms á Norðurlöndunum á seinni árum tengist tamílamálinu svonefnda í Danmörku. Árið 1995 var Erik Ninn-Hansen, dómsmála- ráðherra í hægristjórn Pouls Schlüt- er, dæmdur af landsdómi í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir brot gegn lögum um ráðherra- ábyrgð. Hann hafði sagt af sér embætti strax árið 1989 þegar málið komst í hámæli í fjölmiðlum og ríkis- stjórn Schlüters sagði af sér árið 1993 þegar þingið samþykkti að kalla saman landsdóm vegna þessa máls. Sök Ninn-Hansens var sú að hafa komið í veg fyrir að fjölskyldur tam- íla í Danmörku fengju nána ættingja sína frá Srí Lanka, þar sem harðví- tug borgarstyrjöld stóð yfir. Ninn- Hansen leit svo á að ástandið á Srí Lanka hefði skánað, og því væri réttlætanlegt að meina ættingjun- um að flytjast til Danmerkur. Hins vegar átti þessi ákvörðun hans sér enga stoð í dönskum lögum, og tald- ist því vera ótvírætt lögbrot þegar málið komst til kasta landsdóms. Úrskurður danska landsdómsins var kærður til mannréttindadóm- stóls Evrópu, sem vísaði málinu frá á þeirri forsendu að dómstóll- inn stæðist alþjóðleg mannréttinda- ákvæði. Sjaldgæf mál Áður en tamílamálið kom upp í Danmörku höfðu aðeins fjögur mál komið til kasta landsdóms síðan hann var stofnaður með stjórnar- skrá árið 1849. Í þrjú fyrstu skipt- in voru hinir ákærðu sýknaðir af ákærum en í fjórða skiptið, árið 1910, var Sigurd Berg, fyrrverandi innanríkisráðherra Danmerkur, dæmdur til að greiða þúsund dansk- ar krónur í sekt eða sitja tvo mán- uði í fangelsi ella fyrir vanrækslu í starfi. Vanrækslan tengdist fjár- svikamáli sem dómsmálaráðherra sömu stjórnar átti reyndar stærri hlut í. Dómsmálaráðherrann hlaut hins vegar sinn dóm hjá öðrum dómstólum landsins. Átta mál hafa komist til kasta norska landsdómsins síðan hann var stofnaður árið 1814. Harla langt er þó síðan hann vaknaði til lífsins síðast, en það var árið 1927 þegar Abraham Berge forsætisráð- herra og sex aðrir ráðherrar voru ákærðir fyrir að hafa greitt sænsk- um banka fé úr ríkissjóði án þess að upplýsa norska þjóðþingið. Þeir voru þó sýknaðir af öllum ákæru- atriðum. Í Svíþjóð var landsdómur kallað- ur saman aðeins fimm sinnum þess- ar tvær aldir sem hann var við lýði. Síðast gerðist það árið 1854. Gunn- ar Hedlund innanríkisráðherra var reyndar ákærður til dómstólsins árið 1952 fyrir skattalagabrot, en málið þótti ekki eiga heima þar og fór til hæstaréttar. Nýtt mál í Finnlandi Í Finnlandi var landsdómur stofn- aður árið 1922 og hafa fjögur mál komið til kasta hans. Á síðustu vikum hafa komið fram ásakan- ir á hendur Matti Vanhanen, fyrr- verandi forsætisráðherra, og kröf- ur um að hann verði dreginn fyrir landsdóm vegna hagsmuna árekstra í tengslum við fjármögnun kosn- ingabaráttu hans árið 2006. Málið snýst um styrki í kosn- ingasjóð Vanhanens upp á samtals nokkrar milljónir króna frá finnsk- um æskulýðssamtökum, en Vanhan- en bar sem forsætisráðherra árin 2006-2009, eftir að hafa náð kjöri með stuðningi samtakanna, ábyrgð á úthlutun fjár úr ríkissjóði til þess- ara samtaka. Vanhanen lætur formlega af þingmennsku í Finnlandi nú eftir helgina þegar þing kemur saman. Hann tekur innan tíðar við nýju starfi sem framkvæmdastjóri Bandalags finnskra fjölskyldufyr- irtækja. Bretar og Frakkar Bretar eiga sér langa sögu emb- ættissviptingarmála gegn ráða- mönnum, þó fátt hafi gerst í þeirri sögu síðustu tvær aldirnar. Fyrsta þekkta dæmið er frá árinu 1376, en það síðasta er frá árinu 1806. Stöku sinnum hefur þó komið til tals á seinni árum að ákæra ráðamenn til embættismissis, síðast árið 2006 þegar breski herforinginn Michael Rose krafðist þess að Tony Blair forsætisráðherra yrði ákærður fyrir að draga breska hermenn á fölskum forsendum út í stríð í Írak árið 2003. Í Frakklandi eru hins vegar til- tölulega nýtilkomnir möguleik- ar á því að ákæra forseta landsins til embættismissis. Árið 2007 var stjórnarskrá Frakklands breytt svo hægt yrði að ákæra forseta lands- ins fyrir landráð til sérdómstóls, en annar dómstóll, sem stofnað- ur var árið 1993, dæmir ef forseti er kærður fyrir embættisbrot eða aðra alvarlega glæpi. Ríkisstjórinn í Illinois Í Bandaríkjunum var Rod Bla- gojevic, ríkisstjóri í Illinois, hand- tekinn í desember árið 2008, stuttu eftir að Barack Obama var kos- inn forseti. Hann var sakaður um margvíslega spillingu, meðal ann- ars tilraun til þess að „selja“ hæst- bjóðanda sæti Baracks Obama í öldungadeild Bandaríkjanna. 8. janúar árið 2009 samþykkti full- trúadeild ríkisþingsins með einu mótatkvæði að ákæra Blagojevic fyrir embættisbrot. Hann var síðan einróma sakfelldur þremur vikum síðar í öldungadeild ríkisins og þar með sviptur embætti. Mál hans hélt engu að síður áfram fyrir dómstól- um. Nú í sumar lauk þeim rétt- arhöldum með sakfellingu í einu ákæruatriði en sýknun af öllum alvarlegustu ákærunum. Saksókn- ari fór síðan strax fram á ný rétt- arhöld. Clinton og Nixon Bandaríkin eiga sér annars langa hefð dómsmála gegn ráðamönnum, einkum dómurum og ríkisstjórum en stöku sinnum forsetum og ráð- herrum. Þekktasta málið á seinni tímum er eru málaferlin 1998-99 gegn Bill Clinton forseta vegna sambands hans við Monicu Lewin- sky, lærling í Hvíta húsinu. Clinton var ákærður bæði fyrir að hafa satt ósatt við yfirheyrslur þar sem hann hafði svarið þess eið að segja sannleikann og fyrir að hafa hindr- að framgang réttvísinnar. Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti ákæru á hendur honum og í framhaldi hófust réttarhöld í öldungadeildinni sem stóðu í sam- tals 21 dag. Clinton var sýknaður af báðum ákæruatriðum. Richard Nixon Bandaríkjaforseti átti yfir höfði sér málaferli í þing- inu þegar hann sagði af sér í ágúst árið 1974. Ljóst þótti að hann hefði reynt að koma í veg fyrir rannsókn á innbroti í skrifstofur Demókrata- flokksins, andstæðinga sinna, sem stuðningsmenn hans höfðu gerst sekir um. Fáeinum mánuðum eftir afsögnina greip Gerald Ford, vara- forseti Nixons og arftaki hans, til þess ráðs að náða forvera sinn af öllum afbrotum sem hann kynni hugsanlega að hafa framið meðan hann gegndi embættinu. Þetta kom í veg fyrir að hægt yrði að höfða mál gegn honum. Ráðamenn dregnir fyrir dóm Sjaldgæft er að æðstu ráðamenn þjóða séu dregnir fyrir dómstóla fyrir embættisbrot eða alvarlega glæpi. Víða eru sérstakir dóm- stólar ætlaðir til slíkra málaferla, en fyrirkomulag þeirra er misjafnt. Guðsteinn Bjarnason rekur nokkur dæmi. 1974 RICHARD NIXON 1999 BILL CLINTON 2004 ROLAND PAKSAS 2006 TONY BLAIR 2009 ROD BLAGOJEVIC 2010 MATTI VANHANEN UMDEILDIR LEIÐTOGAR Kröfur um ákærur vegna embættisbrota skjóta reglulega upp kollinum víða um heim, en leiða þó alls ekki alltaf til ákæru, hvað þá dóms. Richard Nixon sagði til að mynda af sér áður en af ákæru varð, en Bill Clinton var sýknaður eftir að hafa gengið í gegnum ströng málaferli. GYÐJA RÉTTLÆTISINS Réttarhöld yfir æðstu embættismönnum víða um lönd hafa jafnan verið umdeild, ekki síður en valdhafarnir sjálfir. NORDICPHOTOS/AFP
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.