Fréttablaðið - 18.09.2010, Page 30
30 18. september 2010 LAUGARDAGUR
A
f hverju er McDon-
ald‘s ekki lengur
á Íslandi?“ er það
fyrsta sem Kristófer
Breki Berglindarson
spyr um þegar blaða-
maður hittir hann og ömmu hans,
Hrefnu Halldórsdóttur, í Chill
Factore-skíðahöllinni í Manchester
í Englandi. Chill Factore, sem er um
tvö hundruð metra löng og hundr-
að metra breið innanhúss skíða-
og snjóbrettahöll í Trafford Park-
hverfi borgarinnar, er líkt og annað
heimili hins tíu ára gamla Kristóf-
ers Breka, sem fær að æfa og nýta
sér alla aðstöðu hallarinnar sér að
kostnaðarlausu.
Stjórnendum Chill Factore þykir
akkur í því að Kristófer sé eitt af
andlitum hallarinnar út á við, því
hann þykir einn allra efnilegasti
skíðamaður Bretlands og þó víðar
væri leitað. Meðal annars prýð-
ir mynd af Kristófer fjölmarg-
ar auglýsingar fyrir starfsemina
sem þar fer fram og margar grein-
ar hafa verið skrifaðar um Íslend-
inginn unga í dagblöð í Manchest-
er og nágrenni. „Þetta er allt ömmu
að kenna,“ segir Kristófer og hlær.
„Ef mér gengur vel þá er það henni
að kenna og ef ég meiði mig þá er
það líka henni að kenna. En það er
af því að hún er alltaf að hjálpa mér.
Ég elska ömmu út af lífinu,“ segir
skíðamaðurinn knái.
Hafði aldrei skíðað á Íslandi
Þegar Kristófer Breki flutti með
ömmu sinni til Manchester fyrir
fimm árum hafði hann aldrei stig-
ið á skíði, enda einungis fimm ára
gamall. Nálægt heimili þeirra á
Rossendale-svæðinu í útjaðri borg-
arinnar er svokölluð Dry Slope-
brekka, gervibrekka án snjós sem
svo er bleytt með vatni til að hægt
sé að renna sér á skíðum, og strax
í fyrstu heimsókn sinni í brekkuna
sýndi Kristófer Breki fram á ótvíð-
ræða hæfileika miðað við aldur. Nú
nokkrum árum og fjöldamörgum
æfingum og mótum síðar er Krist-
ófer talinn yfirburðaskíðamaður í
sínum aldurshópi á Bretlandseyjum,
en hann er jafnvígur á keppni inn-
anhúss sem utan, í alvöru snjó, gervi-
snjó og Dry Slope, auk þess sem
hann keppir einnig á Free Style-
skíðamótum sem ganga meðal ann-
ars út á að taka heljarstökk í loftinu.
Bara á þessu ári hefur Kristófer 35
sinnum komist á verðlaunapall móta
í Englandi, Skotlandi, Frakklandi og
Sviss og þar af 27 sinnum unnið til
gullverðlauna.
Í raun hefur hann aðeins einu
sinni tekið þátt í móti á þessu ári án
þess að komast á verðlaunapall, en
það helgaðist af því að annað skíðið
losnaði af Kristófer efst í brekk-
unni og var hann því dæmdur úr
keppni samkvæmt reglum. Það aftr-
aði honum þó ekki frá því að skíða
niður alla brekkuna á öðru skíðinu,
og munu viðstaddir hafa haft á
orði að öðrum eins tilþrifum hefðu
þeir aldrei orðið vitni að hjá svona
ungum manni.
Þá keppir hann einnig fyrir
hönd barnalandsliðs Bretlands á
skíðum.
Í gærkvöldi sóttu þau Kristófer
og Hrefna svo athöfn þar sem
íþróttamenn ársins í Rossendale og
nágrenni, sem er um hundrað þús-
und manna samfélag, voru verðlaun-
aðir. Þar var Kristófer tilnefndur í
flokki átján ára og yngri, langyngst-
ur þeirra sem þar voru tilnefndir, en
hann fagnaði einmitt tíu ára stóraf-
mæli sínu í gær.
Sigraði á Evrópumóti þremur mán-
uðum eftir handleggsbrot
Auk þess að stunda skíði af kappi
æfir Kristófer Breki margar aðrar
íþróttagreinar með vinum sínum í
Bury Grammar-drengjaskólanum.
Eðli málsins samkvæmt er hann
afar orkumikill piltur og segir
Hrefna, amma hans, að hræðsla
sé tilfinning sem Kristófer sé alls
ókunnug.
Dirfskan skilaði sér meðal ann-
ars í alvarlegu slysi sem hann varð
fyrir á síðasta ári, en þá datt Krist-
ófer illa eftir að hafa brunað á gríð-
arlegum hraða niður Dry Slope-
brekkuna í Rossdale.
„Ég mátti ekkert hreyfa mig í
heila viku og það var svolítið erf-
itt að bíða svona lengi, og eftir það
mátti ég bara hreyfa puttana. En
svo settu þeir pinna í handlegginn á
mér og ég varð smám saman betri,“
segir Kristófer og bætir við að mat-
urinn á spítalanum hafi ekki verið
neitt sérstaklega góður, en á tíma-
bili óttuðust læknarnir að vegna
alvarleika brotsins myndi handlegg-
ur Kristófers aldrei vaxa í takt við
aðra líkamshluta og yrði alltaf eins
og á átta ára gömlu barni. Því var
mikil hætta á því að Kristófer gæti
aldrei skíðað aftur.
Þegar þrír mánuðir voru liðn-
ir frá slysinu sáu læknarnir loks-
ins fram á að beinin í handleggnum
myndu vaxa rétt. Mánuði síðar fór
European Indoors Ski Champion-
ship-keppnin fram í Chill Factore,
en þar tók meðal annars þátt efni-
legasta skíðafólk Íslands í aldurs-
flokki Kristófers. Hrefna ákvað að
leyfa Kristófer að taka þátt í mótinu,
og þrátt fyrir að hafa ekki skíðað í
langan tíma gerði hann sér lítið
fyrir og sigraði.
Fiskibollur í dós eru bestar
Kristófer Breki segist kunna vel
við sig í Manchester, en enn þá
skemmtilegra þykir honum þó að
heimsækja Ísland með ömmu sinni.
„Ísland er landið mitt því þar þykir
mér gott að vera. Ég hef því miður
aldrei farið á skíði á Íslandi en lang-
ar mikið til þess. Ég sakna mömmu
minnar og pabba og systkina minna
og svo er íslenskur matur svo rosa-
lega góður,“ segir hann. „Ég tek
alltaf lýsi og borða skyr og ost frá
Íslandi, og alltaf þegar einhverjir
koma í heimsókn til okkar bið ég
þá um að hafa með sér fiskibollur í
dós. Það er það besta sem ég fæ. Svo
fæ ég líka sent íslenskt vatn sem ég
hef með mér hvert sem ég fer. Ég
skíða nefnilega hraðar ef ég drekk
íslenskt vatn,“ segir Kristófer, en
hann er mjög meðvitaður um heil-
brigðan lífsstíl og segist alltaf fara
snemma að sofa.
Kristófer tekur þátt í æfingum og
mótum víðsvegar um Evrópu en
passar þó alltaf vel upp á að læra
heima á hverjum degi, enda þykir
honum gaman í skólanum.
„Ég ætla að verða læknir þegar
ég verð orðinn stór, því ég vil geta
hjálpað og bjargað fólki. En ég ætla
líka að verða bestur á skíðum. Ég
ætla á Ólympíuleikana og ætla að
vinna þá fyrir Ísland, með íslenska
fánann á hjálminum mínum,“ segir
Kristófer Breki að lokum.
Hrefna Halldórsdóttir fluttist til Manchester ásamt dóttursynin-
um Kristófer Breka fyrir fimm árum til
að freista þess að gefa honum færi á að
alast upp við meiri stöðugleika en rótlaust
umhverfi hans á Íslandi bauð upp á. „Auð-
vitað hefur þetta verið erfitt að mörgu leyti
og ég heyri vel á Kristófer að hann langar
mikið heim,“ segir Hrefna, „en maður gerir
bara það besta í stöðunni hverju sinni. Hann
saknar foreldra sinna á Íslandi, en þegar
hann fór að sýna þessa hæfileika á skíðun-
um hugsaði ég með mér að þetta myndi
hjálpa honum mikið. Það þurfa allir að taka
ákvarðanir í lífinu og þetta var mín ákvörð-
un,“ segir Hrefna.
Hún segir Kristófer hafa verið orkumikinn
nánast frá fæðingu. „Á Íslandi var fólk dálít-
ið að velta fyrir sér hvort hann væri ofvirkur
því hann var svo orkumikill. Fólk var jafnvel
að tala um að það þyrfti að setja hann á rítal-
ín, en við vildum alls ekki gera það. Kristóf-
er hefur ekki verið greindur ofvirkur, en ég
á fimm börn og veit að hann er ekki eins og
þau. Hann er alltaf á línunni með allt og á erf-
itt með að halda sig innan einhvers fyrirfram
ákveðins ramma. Íþróttir geta hjálpað svona
orkumiklum börnum mjög mikið og ég er viss
um að það þarf að búa yfir svona eiginleikum
til að ná langt í íþróttum.“
Vegna mikillar velgengni Kristófers í skíða-
brekkunum má segja að Hrefna sé í fullu
starfi við að sjá um barnabarnið og gæta þess
að hann hljóti bestu þjálfun sem fáanleg er.
Það inniheldur að fylgja honum á allar æfing-
ar og mót, sem jafnvel taka margar vikur í
senn í mörgum löndum, og sjá til þess að
Kristófer hafi yfir að ráða öllum þeim búnaði
sem nauðsynlegur er til að ná árangri.
Hún telur það einfaldlega vera skyldu sína
sem uppalandi að sinna þessu starfi af kost-
gæfni. „Auðvitað er þetta erfitt, en annað-
hvort er maður í þessu eða ekki, og ég er í
þessu frá a til ö. Kristófer getur orðið besti
skíðamaður heims, það segja allir, og ef hann
væri ekki svona rosalega góður þá væri ég
ekki að þessu. Mitt markmið er að koma
honum eins langt og hann kemst, og ég mun
gera allt sem ég get til að það verði að veru-
leika.“
Hún viðurkennir að það sé hörkuvinna og
kosti heilmikla peninga að sjá Kristófer fyrir
þjálfuninni, ferðast til fjallanna í Evrópu og
þar fram eftir götunum. „Ég fer með hann út
um allt til að sýna fram á að hann sé svona
góður og auðvitað erum við alltaf að vonast til
að styrktaraðilar skjóti upp kollinum í jöfnu
hlutfalli við árangurinn. Kristófer er styrktur
af Chill Factore-höllinni og Icelandic Glacial-
vatni, en það væri gott ef fleiri sæju sér fært
að styrkja okkur enda ekki vanþörf á.“
Hrefna segir æfingaaðstöðuna í Manchester
mjög góða, en ef Kristófer ætli sér að ná þeim
árangri sem þau stefni að muni þeim reyn-
ast nauðsynlegt að flytja á stað með alvöru
skíðabrekkum fyrr eða síðar. „Við verðum hér
út veturinn að minnsta kosti, en svo gæti ég
trúað að við flytjum okkur um set, til dæmis
til Austurríkis eða Kanada,“ segir Hrefna.
Ætlar að vinna fyrir Ísland
Hinn tíu ára gamli Kristófer Breki Berglindarson flutti til Englands með ömmu sinni, Hrefnu Halldórsdóttur, fyrir fimm
árum. Nú þykir Kristófer einn allra efnilegasti skíðamaður Bretlands og þó víðar væri leitað. Kjartan Guðmundsson hitti lang-
mæðginin í Manchester og ræddi við þau um heimaslóðirnar, alvarlegt slys og hvernig er að ala upp ungan afreksmann.
■ HREFNA HALLDÓRSDÓTTIR
Skylda mín að koma honum eins langt og hann kemst
KRISTÓFER BREKI OG ALAIN BAXTER Skoski skíðamaðurinn, sem hlaut meðal annars
bronsverðlaun í svigi á vetrarólympíuleikunum árið 2002, hefur fylgst með framgangi
Kristófers Breka undanfarið og segir hann yfirburðamann í sínum aldursflokki.
KEPPT Í FRAKKLANDI „Mér finnst langskemmtileg-
ast að fara hratt niður brekkurnar og ég veit að ég
þarf að æfa mig rosalega mikið til að verða bestur,“
sagði hann í samtali við Fréttablaðið.