Fréttablaðið - 18.09.2010, Síða 34

Fréttablaðið - 18.09.2010, Síða 34
2 matur HvunndagsKökur A Aðal- rétturS Smá- réttir Sætindi Skýringar á uppskriftatáknum: SUNNUTORG ER SUKKÞÖRFIN KNÝR Á Sólveig Gísladóttir Ég ólst ekki upp við mikið sælgætisát. Í Þýskalandi var enda ekki til siðs að bryðja brjóstsykur eða japla á súkkulaði í tíma og ótíma. Gosdrykkir voru sjaldan á borðum og í mesta lagi að maður leyfði sér að blanda saman sódavatni og eplasafa á tyllidögum. Svo fluttum við heim þar sem sjoppur eru á hverju götuhorni. Þá fór maður að stelast til að kaupa bland í poka, Curly Wurly, Ískóla og RcCola, sem var ódýrast á grunnskólárum mínum. Peningaleysi var vitaskuld vandamál hjá tíu til tólf ára barni. Því var litli bróðir, sem gaf sig út fyrir að vera snill- ingur í spilakössum, í miklu uppáhaldi. Hann var stund- um sendur út með nokkra tíkalla sem honum tókst að margfalda og kom þá heim hlaðinn sælgæti og jafnvel með vídeóspólu. Þá ríkti gleði í höllinni. Á unglingsárunum jókst sykurþörfin um helming. Bestu minningarnar voru að liggja uppi í rúmi með góða bók, súkkulaðistykki á sænginni og kókflöskuna á kantin- um. Peningaleysið hrjáði þó enn og varð til þess að ég gerði hinar ýmsustu æfingar í eldhúsinu til að uppfylla sykurþörf- ina. Þannig fannst mér hið ágætasta sælgæti að þeyta saman egg og sykur og borða með skeið. Fryst kókómjólk kom vel í staðinn fyrir ís og bræddur sykur með smjöri var hin ágæt- asta karamella. Þessi sykurfíkn hefur líklega einnig orðið til þess að ég kann í dag að baka ágætar kökur. Gjarnan vildi ég ljúka þessum pistli á því að segja að ég hafi þroskast upp úr þessu öllu saman. Lifi nú heilbrigðum lífsstíl með einum nammi- degi, á laugardögum, kjósi vatn fram yfir gos og fái mér döðlu í stað súkkulaðis, en þá væri ég að ljúga. Nammigrísinn lifir enn góðu og sjálfstæðu lífi og heimtar sitt, sérstaklega á kvöldin fyrir framan sjónvarpið. Stundum fer ég í átak og reyni þá að eiga ekkert sælgæti á heimilinu, það virkar stundum en fáheyrð er sú gleði á slíkum tímum þegar ég uppgötva löngu gleymdan súkkulaðimola í efstu hillu ísskápsins, þá er gaman að lifa. Sunnutorg við Langholtsveg var byggt árið 1958 sem strætisvagnabiðstöð með aðstöðu fyrir bíl- stjórana til að hvíla sig á milli ferða. Þar höfðu ófáir strætisvagnar viðkomu og má segja að það hafi verið Hlemmtorg síns tíma. Í dag er þar rekinn söluturninn Sunnutorg. „Andinn í hverfinu er mjög góður, hingað sækja margir fastakúnnar sem þekkjast jafnvel inn- byrðis, hittast hér og spjalla um daginn og veginn,“ segir Egill Magnússon, starfsmaður Sunnutorgs. Hann líkir Sunnutorgi við hálf- gerða félagsmiðstöð þar sem fólk kaupir sér kaffibolla, gluggar í blöðin og spjallar við aðra gesti söluturnsins. En hvað annað er boðið upp á á Sunntorgi? „Við höfum fundið fyrir mikilli aukningu í pylsusöl- unni undanfarið en mörgum þykja þær skrambi góðar. Fólk gerir oft grín þegar það kemur inn og spyr hvort hér séu ekki bæjarins bestu, eða í það minnsta næst bestu,“ segir Egill glaðlega og bætir við að tóbakssalan sé í miklum blóma enda stæri þeir sig af fremur lágu gjaldi. Á Sunnutorg sækir fjölbreyttur hópur fólks. „Við höfum gantast með að hægt væri að búa til lítinn, sætan sjónvarpsþátt um lífið á Sunntorgi,“ segir Egill og hlær. Inntur eftir því hvort lúgan sé mikið notuð játar hann því. „Hér kemur fólk í sunndagsbíltúrnum og margir kaupa sér kók eða appelsín í gleri og lakkrísrör með.“ Hálfgerð félagsmiðstöð Það er allt of gott að borða yfir sjónvarpinu á kvöldin,“ segir söngvarinn Jóhann Friðgeir Valdimarsson sem veit fátt betra eftir langan vinnudag en að slaka á með eitthvað gott að narta í, þá helst ís. „Ég gerði mikið af því en er hættur því núna,“ segir Jóhann sem tók mataræði sitt í gegn í byrj- un árs og hefur í kjölfarið misst tuttugu kíló. Hann gefur því uppskrift að túnfisksalati sem auðveldlega má breyta fyrir þá sem huga að hollustunni. „Maður getur sleppt majonesinu og doritos-flögunum og þá er þetta orðið hollt og gott,“ segir Jóhann sem æfir nú af kappi hlutverk hertogans í óperunni Rigoletto eftir Verdi. „Hertoginn er kvennabósi og Rigoletto hirðfífl Yndislegt að narta Jóhann Friðgeir Valdimarsson elskar að slaka á kvöldin og hafa gott snarl við hendina. Í seinni tíð hefur hann þó ekki leyft sér slíkt þar sem hann hefur tekið mataræðið í gegn. Öðru hverju býr hann þó til ljúffengt túnfisksalat. 2 dósir túnfiskur (ég nota 1 með olíu og 1 án, tek safann af) 4 tómatar (smátt skornir) 1 rauðlaukur (smátt skorinn) 1 askja ferskt kóriander Safi úr ½ til 1 lime Sletta af majonesi eða sýrðum rjóma (má sleppa). Borið fram með saltkexi eða Doritos-snakki. TÚNFISKSALAT MEÐ DORITOS hans. Hertoginn heillast af dóttur Rigoletto og hirðfíflið brjálast út í hertogann. Að lokum ræður hann sér leigumorðinga en ekki vill betur til en svo að dóttir hans er myrt í misgripum.“ Óperan verður frumsýnd í Íslensku óperunni 9. október næst- komandi. - sg Túnfisksalatið getur bæði hentað sukkurum og þeim sem vilja hollan mat. Með því að sleppa majonesi og Doritos verður sal- atið hollt og gott. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA matur kemur út mánaðarlega með laugardagsblaði Fréttablaðsins. Ritstjórn: Roald Eyvindsson og Sólveig Gísladóttir Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Forsíðumynd: Anton Brink Pennar: Vera Einarsdóttir, Júlía Margrét Alexandersdóttir Ljósmyndir: Fréttablaðið Auglýsingar: Bjarni Þór Sigurðsson bjarnithor@365.is S. 440-1800 www.kælitækni.is Okkar þekking nýtist þér ... Mylur alla ávexti, grænmeti klaka og nánast hvað sem er Hnoðar deig Býr til heita súpu og ís Uppskriftarbók og DVD diskur fylgja með Lífstíðareign! Blandarinn sem allir eru að tala um! Tilboðsve Uppskrifta disku Mötuneyti og stóreldhús Kíkið inn á grimurkokkur.is og skoðið úrvalið Pantið á netinu!
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.