Fréttablaðið - 18.09.2010, Qupperneq 41
LAUGARDAGUR 18. september 2010 5
Barnaföt, sparikjólar, risaeðlur
og önnur leikföng verða til sölu
á markaði í kjallaranum í versl-
uninni Kirsuberjatrénu í dag.
Listakonurnar í Kirsuberjatrénu
munu selja ýmislegt forláta góss
sem fundist hefur í komputiltekt,
í kjallaranum í versluninni Kirsu-
berjatrénu, að Vesturgötu 4, í
dag.
Á markaðinum verða gömul
barnaföt seld, sparikjólar, risa-
eðlur og önnur leikföng, bækur, og
aldrei að vita nema einhverjir list-
munir slæðist með að sögn Kirsu-
berjatréskvenna. „Þetta verður
mjög spennandi, enda erum við
allar miklir safnarar,“ segir ein
þeirra, Sigríður Ásta Árnadóttir,
sem hlakkar til að sjá hvað hinar
mæta með.
Gengið er inn í kjallarann baka-
til en þar í portinu verða einhverj-
ir kompumunir einnig til sölu utan-
dyra ef veður leyfir. Markaðurinn
hefst klukkan 12 og stendur til
klukkan 17. - jma
Listakonur taka til í
kompunum sínum
Nokkrar af Kirsuberjatréskonum sem selja munu á morgun, frá vinstri: Lára Magnús-
dóttir, Margrét Guðnadótti, Arndís Jóhannsdóttir og Sigríður Ásta Árnadóttir. Með á
myndinni er Úlfhildur Valgeirsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Spennandi hlutir, listmunir, barnaföt og
sparikjólar verða til sölu á Vesturgötu 4
á morgun.
Afmælisveisla og útgáfa á sögu
Snarfara verður haldin hátíðleg
við Snarfarahöfn í dag. Gamlir
og nýir félagar eru hvattir til að
mæta og gleðjast með afmælis-
barninu.
Snarfari – félag sportbátaeig-
enda í Reykjavík býður til veislu
í félagsheimili sínu við Snarfara-
höfn í Naustavogi í tilefni af 35 ára
afmæli félagsins.
Félagið, sem var stofnað í húsi
Slysavarnafélagsins 18. septemb-
er 1975, hafði í upphafi 60 stofnfé-
laga, en nú, 35 árum síðar, eru 350
manns í félaginu.
Í tilefni afmælisins kemur saga
Snarfara út. Hallur Hallsson ritaði
hana og verður Hafsteini Sveins-
syni, fyrsta formanni félagsins,
afhent fyrsta eintakið að viðstödd-
um borgarstjóra og borgarfulltrú-
um.
Gamlir og nýir félagar eru
hvattir til að mæta á staðinn og
gleðjast með afmælisbarninu, en
veisluhöldin hefjast klukkan 15 í
félagsheimilinu þar sem veitingar
verða í boði. - jbá
Hátíðarhöld við
Snarfarahöfn í dag
Snarfari býður gömlum og nýjum félögum til afmælisveislu í félagsheimili sínu við
Snarfarahöfn að Naustavogi.
Tónlistarhópurinn Elektra Ensemble flytur þrjú tríó fyrir flautu, selló
og píanó frá þremur öldum á Kjarvalsstöðum annað kvöld;
Píanótríó í D-dúr Hob. XV:16 eftir J. Haydn, Tríó fyrir flautu,
selló og píanó eftir B. Marti og Píanótríó nr. 1 í d-moll, op.
49 eftir F. Mendelssohn sem flestir þekkja í flutningi fiðlu,
sellós og píanós. Nánar á heimasíðu Elektra Ensemble.
www.elektraensemble.org
á glæsilegu sveitasetri í fallegu og afslöppuðu umhverfi.
Ráðstefnur og fundarhöld
Ef halda skal veislu, námskeið eða hópefli eru fáir staðir betur staðsettir en Grímsá sveitasetur
og Veiðihúsið við Laxá í Kjós. Við tökum að okkur allar tegundir af veislum og uppákomum.
Bæði húsin taka allt að 50 manns í gistingu sem leigjast með eða án þjónustu.
Pöntunarsímar: 618 0083 & 437 0083
www.grimsa.is
Í Veiðihúsinu við Laxá í Kjós
er stór og vandaður veislusalur
sem tekur allt að 100 manns í
sæti og með gistingu fyrir allt að
50 manns.
Veiðihúsið í Kjós
Erum byrjaðir að taka niður
pantanir í villibráðarhlaðborðið
og jólahlaðborðið okkar
Veisluborð
Grímsá Veiðihús
Í veiðihúsinu við Grímsá er
glæsilegur salur sem tekur allt að
70 manns í sæti og gisting fyrir allt
að 36 manns. Í húsinu er gufubað
og heitur pottur svo hægt er að
slaka vel á eftir góðan dag.
Verð aðeins 9.900 krónur með gistingu, dagskrá og fullu fæði.
Nánari upplýsingar á www.kfum.is - Bókanir í síma 588 8899
Mæðgur
6 - 99 ára
Hjartanlega velkomnar
í mæðgnaflokk
í Vindáshlíð
1.-3. október 2010
Mæðgur 6 - 99 ára