Fréttablaðið - 18.09.2010, Blaðsíða 62
6 matur
A S
Í E L D H Ú S K R Ó K N U M
2 tsk. smjör
1 franskbrauð
½ kg beikon
1 krukka hnetusmjör
1 sultukrukka að eigin
vali
Smyrjið brauðheifinn að
utan með smjöri og hitið í
180 gráðu heitum ofni í um
10-15 mínútur, eða þar til
hann er orðinn gullinbrúnn.
Steikið beikonið á
meðan. Sker-
ið hleifinn eftir
endilöngu og
holið hann svo-
lítið að innan.
smyrjið aðra
hliðina með
hnetusmjöri
og hina með
sultu og
fyllið upp
með beik-
oni. Lokið
samlokunni
og berið hana
fram.
Elvis Presley er ekki einungs
minnst fyrir fagra söngrödd
heldur l íka sérstakan og
óneitanlega óhollan matarsmekk.
Þegar minnst er á Elvis og mat
í sömu andrá koma myndir af
steiktu brauði með hnetusmjöri og
banana oftar en ekki upp í hugann,
en það var með því besta sem hann
bragðaði.
Elvis lagði stundum mikið á sig
til að nálgast það sem garnirnar
gauluðu eftir en sagan af því þegar
löngun eftir samlokunni Fool’s
Gold Loaf gerði vart við sig slær
öllu öðru við. Elvis var staddur á
heimili sínu í Graceland í Memp-
his, Tennessee og var að skemmta
lögreglumönnunum Jerry Kenn-
edy og Ron Pietrafeso frá Color-
ado. Umrædd samloka, sem fékkst
á fimm stjörnu veitingastaðnum
Colorado Mine Company í Denver,
barst í tal. Elvis hafði bragðað
hana áður og fann til óstjórnlegr-
ar löngunar eftir að komast í hana
á ný, en meginuppistaða hennar
er hnetusmjör, beikon og sulta.
Kennedy og Pietrafeso voru vinir
Bucks Scott, eiganda veitingastað-
arins. Þeir settu sig í samband við
hann og óskuðu eftir því að sam-
lokurnar yrðu útbúnar fyrir þá
félaga. Því næst var þeim skutl-
að á Memphis-flugvöll þar sem
einkaþota Elvis, Lisa Marie, beið
þeirra og flaug með þá á flugvöll-
inn í Denver. Ferðin tók tvo tíma
og var ferðalöngunum vísað í sér-
stakt skýli þar sem Scott tók á
móti þeim með 22 Fool‘s Gold Loaf
samlokur. Það tók þá þrjá klukku-
tíma að spoðrenna matnum en að
því loknu sneru þeir heim án þess
að hafa nokkurn tímann yfirgefið
flugvöllinn.
Fréttablaðið fékk matreiðslu-
manninn Berglindi Ósk Lofts-
dóttur til að útbúa umrædda sam-
loku. Hún segir það lítið verk og
að í raun hafi bragðið komið henni
á óvart. „Þetta var alls ekki eins
slæmt og ég átti von á en ég torgaði
þó ekki meira en tveimur bitum.“
Ég fór hins vegar með sýniseintak-
ið til vina minna og þeim fannst
þetta hreinasta sælgæti. En sögðu
svo: „Úr hverju dó Elvis afur, var
það ekki hjartaáfall?“ Berglind og
félagar hennar komust síðar að
þeirri niðurstöðu að ekki væri ráð-
legt að borða samlokuna oftar en
einu sinni á fimm ára fresti.
Berglind tekur að sér veislur í
heimahúsum en hefur aldrei boðið
upp á nokkuð þessu líkt. Hún tekur
þó við öllum óskum en upplýsingar
um veislurnar hennar er að finna
undir leitarorðinu Veisluna heim á
Facebook. - ve
FLAUG EFTIR
Elvis var sérstaklega sólginn í samlokur.
Matreiðslumaðurinn Berglind Ósk, sem er sjálfstæður dreifingaraðili fyrir ZinZino-heimakaffi, segir samlokuna koma á óvart.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
samloku
Elvis Presley fékk eitt sinn svo mikla löngun í ákveðna samloku að hann flaug frá
Memphis til Denver í þeim eina tilgangi að komast yfir herlegheitin.
KRINGLÓTT BOX til
að geyma og safna sæl-
gæti í. ILVA, Korputorgi.
Verð: 795 krónur.
STEIKARSPAÐI fyrir safa-
ríkar og þykkar nautasteik-
ur. IKEA, Kauptúni 4. Verð:
1.190 krónur.
UPPTAKARI
fyrir kókflösku
á nammikvöldi.
IKEA, 295 kr.
FOOL’S GOLD LOAF
Uppskriftabókin Are You
Hungry Tonight hefur að
geyma uppáhalds upp-
skriftir Elvis. Þær eru
fæstar hollar og eru
hnetusmjör, beikon
og sulta oftar en ekki
á meðal innihalds-
efna.
Sp
ör
e
hf
.
s: 570 2790 www.baendaferdir.is
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
Saalbach - Hinterglemm
29. janúar - 5. febrúar 2011
SVIGSKÍÐAFERÐ
Saalbach - Hinterglemm hefur stundum verið nefnd skíðaparadís Alpanna og ekki að
ástæðulausu. Púðursnjór, fjölbreyttar brekkur og kristaltært loft gerir skíðaferð til Saalbach
- Hinterglemm að ógleymanlegu fríi og lætur engan ósnortinn. Þessir tveir líflegu
systrabæir eru í 1000 m hæð og eru skíðabrekkurnar samtals um 200 km í öllum
erfiðleikastigum. Gist er á vel staðsettu 3* hóteli í austurrískum stíl í Hinterglemm þar sem
morgunverðarhlaðborð og kvöldverður með mismunandi valmatseðli á hverju kvöldi er
innifalið. Hótelið býður upp á góða heilsulind, örstutt er í lyftur á helstu skíðasvæðin og í
miðbæinn með fjöldan allan af líflegum aprés-ski börum. Flogið er með Icelandair til
München og ekið sem leið liggur beint á hótelið í Hinterglemm. Fararstjóri er jafnframt með
hópnum alla ferðina, gistir á sama hóteli og skipuleggur skíðaferðir fyrir þá sem það vilja.
Fararstjóri: Marianne Eiríksson
Verð: 189.600 kr. á mann í tvíbýli.
Innifalið: Flug, skattar, hótelgisting, morgunverðarhlaðborð,
kvöldverður, aðgangur að heilsulind hótelsins, ferðir til og frá München
flugvelli og íslensk fararstjórn.
Transfer og hálft fæði innifalið