Fréttablaðið - 18.09.2010, Page 82
50 18. september 2010 LAUGARDAGUR
utlit@frettabladid.is
Fyrir stuttu fór ég í svolítið frí til Svíþjóðar.
Tilhlökkunin var mikil áður en haldið var af
stað í ferðina enda nokkuð langt um liðið frá
því ég hafði síðast ferðast út fyrir landstein-
ana.
Fyrstu dagarnir fóru aðallega í það að rölta
um höfuðborgina, Stokkhólm, kíkja í versl-
anir og dásama gamla bæinn. Á milli þess
naut hamingjusami ferðalangurinn
þess að hvíla lúin bein á kaffihúsum
og fylgjast með mannlífinu þar í
borg. Ég fór fljótlega að spá svolítið
og spekúlera í tísku heimamanna
og fannst merkilegt hversu fáar
stúlkur gengu um í hælaháum
skóm. Flestar klæddust þær
þægilegum Dr. Martens-skóm
eða strigaskóm af ýmsum
stærðum og gerðum. Marg-
ar voru einnig í víðum buxum
sem brettar voru upp yfir
skóna og svo stórum, víðum
kápum við. Sjálf er ég agalega
hrifin af öllu víðu og stóru þegar
kemur að tísku og fannst því þessi
sænska tíska auðvitað helvíti flott.
Sænsku piltarnir voru engu
minna flottir í tauinu og brettu
einnig villt og galið upp á sínar
buxur, alveg eins og stúlkurnar. Er
ég sat þarna á kaffihúsinu og hvíldi
þreytta fætur tók ég eftir því að hægt
er að skipta sænskum karlmönnum gróf-
lega í tvo hópa; þessa sem bretta upp á
gallabuxurnar og þá sem klæða sig eins
og þeir séu á leið í bátaklúbbinn (sem er
alls ekki ólíklegt miðað við mikla báta-
eign Svía). Síðarnefndi hópurinn einkennd-
ist af frísklegum ungum piltum klæddum
í sandlitar buxur, bláa skó og oftast í hvítri
skyrtu við.
Mér fannst ægilega gaman að geta setið
þarna og drukkið í mig tískustrauma annarra
og jafnvel sækja þaðan innblástur um hvern-
ig ég geti sjálf klætt mig. Það er alveg nauð-
synlegt að skipta aðeins um umhverfi svona
öðru hvoru.
Nýtt land, nýir straumar
DAÐRAÐ VIÐ TÍSKUNA
SARA MCMAHON
OKKUR
LANGAR Í
…
Haustlína tískumerkisins
Lacoste var skemmtileg
blanda af diskótímabilinu
og fágaðri tísku fjórða ára-
tugarins. Stórar peysur og
litríkir jakkar voru á meðal
þess sem fyrirsæturnar
sýndu er þær gengu eftir
sýningarpallinum.
HAUSTLÍNA LACOSTE EINKENNDIST AF DISKÓI OG FÁGUÐUM FLÍKUM:
TVENNIR TÍMAR MÆTAST
FÁGAÐUR OG FLOTTUR Það mátti einnig
sjá áhrif frá tísku fjórða áratugarins í
línunni. Karlfyrirsæta klæðist þægilegum
og fáguðum jakkafötum.
STÓRKOSTLEG PEYSA Fallegur grár skyrtukjóll og
hlýleg peysa frá Lacoste.
GRÆNT OG VÆNT Þessi græni herrajakki
frá Lacoste getur lífgað upp á hvunndag-
inn. NORDICPHOTOS/GETTY
LITRÍK Sterkir litir og hrein snið voru
meðal þess sem sást í haustlínu Lacoste
fyrir veturinn.
> SPENNANDI SPENNUR
Spennan hefur verið vinsæll fylgihlutur meðal stúlkna
áratugum saman. Á leikskólaárunum urðu helst slaufu-
eða blómaspennur í öllum regnbogans litum fyrir valinu
þegar skreyta átti hár sitt.
Á tískusýningum Rodarte, Badgley Mischka og Carolina
Herrera á tískuvikunni í New York
voru spennur í fyrirrúmi í hárskrauti
fyrirsætanna. Þeir sem vilja tolla í
hártískunni ættu að fara og gramsa
svolítið og draga fram gömlu, góðu
spennurnar fyrir næsta vor.
DÖKKIR TÓNAR Fal-
legur samfestingur
og sítt vesti í anda
diskótímabilsins.
Eitt af mörgum fallegum
naglalökkum frá Nails Inc sem
fást hjá Beauty Barnum.
Töff augnskugga frá
MAC með málmáferð.
Ótrúlega flott veski
frá Marc Jacobs, fæst í
Kron Kron.