Fréttablaðið - 15.10.2010, Qupperneq 1
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
Föstudagur
skoðun 18
15. október 2010 FÖSTUDAGUR
1
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
A rnaldur Birgir Konráðs-son hefur starfað sem einkaþjálfari frá árinu 1997. Hann stofnaði Boot Camp fyrir sex árum og passar eins og gefur að skilja vel upp á mataræðið. „Ég legg þó aðaláherslu á fjölbreytni bæði fyrir sjálfan mig og viðskipta-vini mína. Þeim sem hi
Arnaldur Birgir þróaði Boot Camp-kerfið í samvinnu við Róbert Traustason og nú hafa þeir félagar gefið út bók. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hráefni
4-5 klakar
200 g vanilluskyr1-2 msk. kókos2-3 msk. múslí½ banani og/eða pera2 m k
Aðferð
Allt sett í blandara og hellt í glas. Þeir sem þola mjólkurvörur illa geta sleppt skyrinu
LÉTTBÚST
Arnaldur Birgir Konráðsson segir fólki sem hugsar mikið um heilsuna hætta til að borða einhæfan mat:
Fjölbreytnin fyrir öllu
Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 FNetfang l
4ra rétta
Góð tækifærisgjöf!
Kryddlegin bleikjameð rússneskri pönnuköku, dillrjóma og piparrótarsósuHumarsúparjómalöguð, með Madeira og grilluðum humarhölum
Fiskur dagsinsþað ferskasta hverju sinni; útfærður af matreiðslumönnum Perlunnar
*** eða / Or ***
Lambatvennameð steinseljurótarmauki, aspas, rófu, soðkartöflu og basil-myntu gljáa
Kókoshnetu Tapiocameð steiktu mangói og lychee sorbet
Verð aðeins 7.290 kr.
tilboðsseðill
Fjölskylduleiðangur verður í boði um sýninguna Að elta
fólk og drekka mjólk í Hafnarborg á sunnudag klukkan
14. Gestum gefst þar færi á að skoða listaverkin í leik
um safnið með aðstoð vísbendinga.
föstudagur
FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS
15. október 2010
Arnþrúður Dögg
Sigu ðardóttir
heill ðist af
kvikmynda-
bransanum
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Föstudagur
veðrið í dag
15. október 2010
242. tölublað 10. árgangur
Litli leikklúbburinn
á Ísafirði er 45 ára
Emil í Kattholti
á fjalirnar
allt 3
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
9
-1
6
0
8
Uppskriftin að föstudags-
pizzunni er á gottimatinn.is
Opið til 19
Kringlukast
20 –50% afsláttur
Sérblað fylgir!
Landsliðið í frjálsu falli
Árangur A-landsliðsins
hefur versnað stöðugt síðan
Guðjón Þórðarson hætti.
sport 36
BLAUTT VESTRA Í dag verða
sunnan 5-10 m/s og rigning S- og
V-til en annars hægari og úrkomu-
lítið. Hiti 7-12 stig.
VEÐUR 4
10
11
9
9
8
DÓMSMÁL Baldur Guðlaugsson, fyrr-
verandi ráðuneytisstjóri í fjármála-
ráðuneytinu, hefur verið ákærður
fyrir innherjasvik og brot í opin-
beru starfi. Baldri var birt ákæran
þegar hann mætti að eigin frum-
kvæði á skrifstofur sérstaks sak-
sóknara eftir hádegi í gær.
Ákæran er gefin út af Birni L.
Bergssyni, settum ríkissaksóknara,
þar sem ríkissaksóknari skal ann-
ast öll mál sem varða brot í opin-
beru starfi. Hún er önnur ákæran
sem gefin er út í kjölfar rannsókn-
ar embættis sérstaks saksóknara.
Björn hefur falið sérstökum sak-
sóknara að reka málið fyrir dómi.
Baldur seldi hlutabréf í Lands-
bankanum fyrir rúmar 192 millj-
ónir króna tveimur vikum fyrir
bankahrunið. Hann er ákærður
fyrir að hafa á þeim tíma haft inn-
herjaupplýsingar um stöðu bankans
vegna setu sinnar í samráðshópi
Seðlabankans um fjármálastöðug-
leika. Féð hefur verið kyrrsett á
bankareikningum Baldurs. Gerð er
krafa um upptöku þess og líklegt er
að kyrrsetningin verði í gildi þar til
niðurstaða fæst í málið.
Jafnframt er ákært fyrir brot
í opinberu starfi samkvæmt 138.
grein hegningarlaga. Hún kveður
á um að hafi maður misnotað opin-
bera stöðu til að fremja afbrot geti
dómari þyngt refsinguna um allt að
helming. Refsiramminn fyrir inn-
herjasvik er sex ár, en níu ár í máli
Baldurs í ljósi þessa.
Karl Axelsson, verjandi Baldurs,
segir ákæruna ekki eiga við rök
að styðjast. Í ástandinu sem ríki á
Íslandi sé mikilvægt að dómstólar
standi í lappirnar. „Ég hef áhyggj-
ur af því að dómstólar sveiflist eins
og allir aðrir pendúlar með almenn-
ingsáliti. Það er alveg ljóst að það
hefði verið þúsund sinnum erfiðara
fyrir saksóknara að taka ákvörð-
un um að ákæra Baldur ekki en að
ákæra hann,“ bætir hann við.
Ákæran verður þingfest eftir
rétta viku. - sh
Refsiramminn fyrir meint brot Baldurs Guðlaugssonar er níu ára fangelsisvist:
Baldur ákærður fyrir innherjasvik
EFNAHAGSMÁL Örfáir af um fimmtíu
þúsund viðskiptavinum Íbúðalána-
sjóðs hafa nýtt sér ýtrustu úrræði
til greiðslu- og skuldaaðlögunar.
„Þetta segir okkur, að mínu
mati, að úrræðin eru það flókin í
framkvæmd að fólk veigrar sér við
að nýta þau,“ segir Ásta H. Braga-
dóttir, framkvæmdastjóri Íbúða-
lánasjóðs.
Alls hafa 28 nýtt sér tímabundna
greiðsluaðlögun fasteignaveð-
krafna og fjórtán hafa notfært sér
sértæka skuldaaðlögun.
Tímabundin greiðsluaðlögun
fæst með úrskurði dómara en
semja þarf um sértæka skulda-
aðlögun við aðalviðskiptabanka.
Um 2.000 viðskiptavina Íbúða-
lánasjóðs eru með lán sín í fryst-
ingu en um slíkt er samið við
sjóðinn.
Þá eru á bilinu 7.000 til 8.000
í vanskilum við Íbúðalánasjóð,
stórum eða smáum.
Ásta vill ekki taka afstöðu til
hugmynda um flata niðurfærslu
lána en segir blasa við að Íbúða-
lánasjóður ráði ekki einn og
óstuddur við fimmtán til átján
prósenta niðurfellingu. 107 millj-
arðar króna myndu falla á Íbúða-
lánasjóð við átján prósenta niður-
færslu.
Hún telur hins vegar rétt að ein-
falda þau úrræði sem þegar séu í
boði fyrir fólk sem ekki ráði við
afborganir af lánum sínum. - bþs
Flókin úrræði fæla fólk frá
Af 50 þúsund viðskiptavinum Íbúðalánasjóðs hafa 28 nýtt sér tímabundna greiðsluaðlögun og fjórtán hafa
nýtt sér sértæka skuldaaðlögun. Er til marks um að úrræðin séu of flókin segir framkvæmdastjóri sjóðsins.
Úrræðin í stuttu máli
Greiðsluaðlögun
Greiðsluaðlögun getur
staðið í allt að fimm
ár. Afborganir eru í
samræmi við greiðslu-
getu. Mánaðargreiðslur
aldrei lægri en 60% af
hæfilegri húsaleigu.
Skuldaaðlögun
Lántakinn greiðir
af skuldum eins og
greiðslugeta leyfir og
kröfuhafar geta fallist
á eftirgjöf, hlutfallslega
lækkun eða gjaldfrest
á því sem umfram er.
Tímabundin frysting
Afborgunum frestað í
allt að þrjú ár. Hægt að
fá frestun á afborgun-
um af höfuðstól, en
greiða vexti og verð-
bætur, eða sækja um
frestun allra afborgana.
SJÁVARÚTVEGSMÁL Jón Bjarnason,
landbúnaðar- og sjávarútvegs-
ráðherra, vill beita sér fyrir
því að gefnar
verði út aukn-
ar veiðiheim-
ildir í helstu
nytjastofn-
um og leigja
þær út. Þetta
fyrirkomu-
lag var tekið
upp nýlega
við úthlutun á
skötuselskvóta.
Þetta kom
fram í ræðu Jóns á aðalfundi
Landssamtaka smábátasjó-
manna í gær. Ekki kom fram í
máli Jóns hversu mikið hann vill
auka kvótann en tegundirnar
eru þorskur, ýsa, ufsi, gullkarfi
og íslensk sumargotssíld.
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri LÍÚ, segir Jón
hafa fullyrt að leiga á skötusel-
skvóta hefði ekkert fordæm-
isgildi. Friðrik segir alvarlegt
að ekki sé hægt að taka mark á
einu né neinu sem frá ráðherra í
ríkisstjórn Íslands kemur.
- shá / sjá síðu 6
Viðbótarkvóti ekki til útgerðanna:
Ráðherra vill
leigja kvóta
Takk útrásarvíkingar!
Lára Björg Björnsdóttir
segir frá bloggi sem varð
að bók og baráttunni fyrir
einhverfum syni sínum.
viðtal 16
JÓN BJARNASON
Ég hef áhyggjur af því
að dómstólar sveiflist
eins og allir aðrir pendúlar
með almenningsáliti.
KARL AXELSSON
VERJANDI BALDURS GUÐLAUGSSONAR
KYNLEGIR RÁÐHERRAR Halda mætti að Jóhanna Sigurðardóttir og Ögmundur Jónasson
hefðu skellt sér á þrívíddarmyndina Piranha 3D í gær. Svo var hins vegar ekki. Þau fóru til Stígamóta, keyptu sér
svokölluð kynjagleraugu og settu þau á nefið. Gleraugun eru seld til stuðnings þjónustumiðstöðvum Stígamóta
utan borgarinnar, sem stóð til að loka vegna niðurskurðar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA