Fréttablaðið - 15.10.2010, Blaðsíða 44
14 föstudagur 15. október
tíðin
✽ stórir draumar
F atahönnuðurinn Harpa Einarsdótt-ir opnar sýningu undir nafninu
Skull and Halos í Gallerí Lost Horse á
morgun. Á sýningunni eru teikningar,
klippiverk, unnar með blandaðri tækni
og skúlptúrar þar sem Harpa reynir að
koma á framfæri mikilvægi jafnvæg-
is milli góðs og ills. „Titill sýningar-
innar er kominn af þessum eilífðar til-
vísunum í baráttuna milli góðs og ills.
Hvort tveggja verður að vera til staðar
svo jafnvægi skapist. En þetta er samt
létt og skemmtileg sýning þó að undir-
tónninn sé djúpur,“ segir Harpa sem er
þekktari fyrir fatahönnun sína og bún-
ingahönnun í tölvuleikjum fyrir CCP.
„Upphaflega sótti ég um í bæði mynd-
list og fatahönnun í Listaháskólanum
en komst inn í fatahönnunina svo það
varð ofan á en myndlistin hefur ávallt
verið ríkjandi í því sem ég tek mér fyrir
hendur. Þegar ég var að vinna fyrir CCP
fékk ég aftur löngunina að gera mynd-
list.“
Harpa hefur ekki haft langan tíma til
að undirbúa sýninguna en unnið baki
brotnu síðustu tvær vikurnar. Meðal
verka sem verða til sýnis er skúlptúr úr
hestahauskúpum sem hún hefur safnað
saman frá bóndabýli föður síns og gifs-
stytta af líkama Brynhildar Guðjóns-
dóttur leikkonu.
„Heimir Sverrisson og Gunnar Þór
Nilsen hafa aðstoðað mig við að gera
sýninguna að veruleika og er ég þeim
mjög þakklát.“
Sýningin verður opnuð á morgun
klukkan 19 í Gallerí Lost Horse á
Hverfisgötu. - áp
Harpa Einarsdóttir opnar myndlistarsýningu
Geislabaugar og kúpur
Undirbúningur í hámarki Harpa Einarsdóttir opnar sýninguna Skull and Halos í Gallery Lost Horse. Í bakgrunni sést í gifsstyttuna sem er eftirmynd af lík-
ama Brynhildar Guðjónsdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Á uppleið
Rokk og ról! Airwaves
er í fullu gangi yfir helg-
ina. Þeir sem ekki náðu að
bóka miða í tæka tíð geta
samt tekið þátt í rokkinu
með því að sækja utan-
dagskrárviðburði.
Þykkar peysur Nú er
orðið nógu kalt til að
klæðast notalegu, stóru,
þykku peysunum aftur.
Tískuverslanirnar eru stút-
fullar af alls konar peysum
þessa dagana og því úr
nógu að velja!
Heitir réttir Indverskur,
mexíkóskur og asískur
matur er fullkomin leið til
að seðja svanga maga á
köldum haustkvöldum.
Á niðurleið
Hreyfingarleysi Sam-
kvæmt nýjustu tölum eru
Íslendingar nú á meðal
feitustu þjóða heims og
ætti fólk að huga svolít-
ið betur að heilsunni og
hreyfa sig meira.
Öfundsýki Það er gott
að geta glaðst með öðrum
og þess vegna ættu menn
að láta alla öfundsýki lönd
og leið.
Geisladiskar Gömlu
góðu vínilplöturnar eru að
ryðja sér aftur til rúms og
því ágætt að hvíla geisla-
diskana svolítið.
Mælistikan
Sparaðu
með Siemens
Siemens er þekkt fyrir
umhverfisvæna stefnu
sína og er í fremstu röð
þegar skoðaðar eru
tækninýjungar er varða
orkusparnað á heimilum.
A
T
A
R
N
A
Nóatúni 4 • Sími 520 3000
www.sminor.issparnaður
-50%
1995 2010
0,13 kwst.
sparnaður
-36%
1995 2010
0,11 kwst. 0,07 kwst.
sparnaður
-48%
1995 2010
Þvottavél
WM 16S770DN
Orkunotkun miðuð við
þvott á 1 kg á 60° C.
Uppþvottavél
SN 46T590SK
Orkunotkun miðuð við
borðbúnað fyrir einn.
Kæliskápur
KG 36VX74
Orkunotkun miðuð við
100 l á sólarhring.
0,48 kwst. 0,25 kwst.0,26 kwst.
MJÚKAR VARIR Shea butter frá l‘Occ-
itane er gott fyrir þurra og viðkvæma húð,
neglur og frostbitnar varir.