Fréttablaðið - 15.10.2010, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 15.10.2010, Blaðsíða 64
 15. október 2010 FÖSTUDAGUR36 sport@frettabladid.is JÓN GUÐNI FJÓLUSON er afar eftirsóttur þessa dagana en stórliðin PSV Eindhoven og FC Bayern vilja bæði skoða strákinn betur. Hann heldur til PSV í næstu viku og þegar hann er búinn að æfa þar mun hann færa sig yfir til Þýskalands og æfa með Bayern. Henry Birgir Gunnarsson segir sína skoðun Árangur A-landsliðsþjálfara í mótsleikjum: 50 40 30 20 10 0% Guðjón Þórðarson HM 1998 og EM 2000 Atli Eðvaldsson HM 2002 og EM 2004 Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson EM 2004 og HM 2006 Eyjólfur Sverrisson EM 2008 Ólafur Jóhannesson EM 2008, HM 2010 og EM 2012 50% 14% 24% 31% 41% Landsliðið í frjálsu falli FÓTBOLTI Það er afar áhugavert að fylgjast með þeirri þróun sem hefur orðið hjá íslenska A-lands- liðinu síðan Guðjón Þórðarson náði flottum árangri með liðið í kringum aldamótin. Frá því að Guðjón fór til Stoke er stöðugur tröppugangur niður á við hjá landsliðinu og sérstakt að árangurinn hefur alltaf versnað á milli þjálfara. Enginn þjálfari á eftir Guðjóni hefur náð að gera betur en forveri hans. Margir héldu að botninum hefði verið náð undir stjórn Eyj- ólfs Sverrissonar en Eyjólfur náði engum árangri og tapaði meðal annars stórt gegn smáríkinu Liechtenstein. Eyjólfur náði aðeins í 24 pró- sent þeirra stiga sem í boði voru á sínum tíma en það er samt tíu prósentustigum betri árangur en hjá Ólafi Jóhannessyni, sem hefur stýrt landsliðinu í tólf alvöru leikj- um. Eyjólfur stýrði liðinu í ellefu alvöru leikjum á sínum tíma. Þessi niðurstaða er mikið áfall fyrir stjórn KSÍ, sem er ábyrg fyrir ráðningu þjálfara, en síðustu ráðningar hafa verið allt annað en óumdeildar. Eyjólfur var ráðinn inn eftir að hafa náð takmörkuð- um árangri með U-21 árs liðið á sínum tíma. Margir höfðu einn- ig efasemdir um hæfi Ólafs sem landsliðsþjálfara. Nú sýnir það sig svart á hvítu að efasemdarmennirnir höfðu mikið til síns máls. Síðasta undankeppni var léleg en stjórn KSÍ ákvað samt að ráða Ólaf áfram sem þjálfara. Framhaldið þekkja allir – þrjú töp í þremur leikjum í núverandi und- ankeppni. Árangur Ólafs er léleg- asti árangur allra landsliðsþjálfara sem hafa náð tíu mótsleikjum! Þrátt fyrir þessar staðreyndir hefur formaður KSÍ, Geir Þor- steinsson, lýst yfir stuðningi við Ólaf, sem hann endurréð eftir lélega undankeppni. Undir forystu Geirs hefur A- landslið karla verið í frjálsu falli og þær landsliðsþjálfararáðning- ar sem hann er ábyrgur fyrir hafa reynst þær verstu á síðari tímum. Geir ber því mikla ábyrgð enda hafa ráðningar hans ekki verið faglegar og menn fengið lands- liðsþjálfarastarfið án þess að hafa í rauninni unnið til þess. A-landsliðið stendur á ákveðnum tímamótum í dag. Upp er að koma ein efnilegasta kynslóð knatt- spyrnumanna sem Ísland hefur átt. Kynslóð sem menn binda vonir við að geti keppt af fullri alvöru um að koma A-landsliðinu á stórmót. Það er á ábyrgð KSÍ að sjá til þess að þessir frábæru knatt- spyrnumenn fái þá faglegu þjálf- un og umgjörð sem mun stuðla að því að A-landsliðið blómstri á næstu árum. Til að slíkur árangur náist þarf hæfan og góðan þjálfara fyrir þessa efnilegu stráka. KSÍ hefur nú kjörið tækifæri til þess að breyta um þar sem langt er í næsta mótsleik. Verður áhugavert að sjá hvort KSÍ sinnir ábyrgðarhlut- verki sínu og ræður nýjan þjálf- ara eða setur þennan efnilega hóp leikmanna í hendurnar á þjálfaran- um sem hefur náð einum lélegasta árangri landsliðsins frá upphafi. Lengi getur vont versnað Árangur A-landsliðs karla hefur versnað með hverju stórmóti síðan Guðjón Þórðarson yfirgaf skútuna. Guðjón náði 50 prósenta árangri í mótsleikjum. Árangur Ólafs Jóhannessonar er sá langslakasti, aðeins 14 prósent. FORMAÐURINN OG ÞJÁLFARINN Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, hefur alla tíð stutt Ólaf þjálfara þar til fyrir skömmu er hann ákvað að taka U-21 árs landsliðið fram yfir A-landsliðið. Ólafur var ekki sáttur en ætlar að sitja áfram. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Mótsleikir A-þjálfara: Guðjón Þórðarson (HM 1998, EM 2000) Leikir: 14 Sigrar: 6 Jafntefli: 3 Töp: 5 Markatala: 22-15 (+7) Stig: 21 Hlutfall stiga í húsi: 50% Atli Eðvaldsson (HM 2002, EM 2004) Leikir: 13 Sigrar: 5 Jafntefli: 1 Töp: 7 Markatala: 18-23 (-5) Stig: 16 Hlutfall stiga í húsi: 41%. Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson (EM 2004, HM 2006) Leikir: 15 Sigrar: 4 Jafntefli: 2 Töp: 9 Markatala: 21-33 (-12) Stig: 14 Hlutfall stiga í húsi: 31% Eyjólfur Sverrisson (EM 2008) Leikir: 11 Sigrar: 2 Jafntefli: 2 Töp: 7 Markatala: 10-24 (-14) Stig: 8 Hlutfall stiga í húsi: 24% Ólafur Jóhannesson (EM 2008, HM 2010, EM 2012) Leikir: 12 Sigur: 1 Jafntefli: 2 Töp: 9 Markatala: 9-22 (-13) Stig: 5 Hlutfall stiga í húsi: 14% NÚ ER TVÖFALT MEIRA Í VINNING EN Á-DUR! I I ! 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. 11. 12. 13. ÚRV.D. ÚRV.D. 1. D. Arsenal - Birmingham Bolton - Stoke Fulham - Tottenham Man. Utd. - WBA Newcastle - Wigan Wolves - West Ham AIK - Gefl e Crystal P - Millwall Leicester - Hull Portsmouth - Watford QPR - Norwich Reading - Swansea Sheffi eld Utd. - Burnley 76.000.000 28.500.000 22.800.000 47.500.000 ENSKI BOLTINN 16. OKTÓBER 2010 41. LEIKVIKA (13 R.) (12 R.) (11 R.) (10 R.) Stærstu nöfnin eru í Enska boltanum og nú er potturinn orðinn ennþá stærri. Vertu með og tippaðu fyrir kl. 13 á morgun. SÖLU LÝKUR 16. OKT. KL. 13.00 1 X 2 TIPPAÐU Á NÆSTA SÖLUSTAÐ EÐA Á 1X2.IS FÓTBOLTI George Gillett og Tim Hicks, eigendur Liverpool, hafa gert allt sem þeir geta til þess að stöðva sölu félagsins til NESV sem er í eigu Johns Henry sem einnig á Boston Red Sox. Á miðvikudagskvöld fengu þeir Gillett og Hicks lögbannskröfu á söluna frá Texas í Bandaríkj- unum en stjórn Liverpool hafði samþykkt tilboð frá NESV upp á 300 milljónir punda. Dómstólar í Bretlandi hnekktu í gær lögbannskröfunni frá Texas og sögðu ríkið hafa nákvæmlega ekkert um málið að segja. Þar með er væntanlega öll von úti hjá þeim Gillett og Hicks. Singapúrinn Peter Lim dró í gær tilboð sitt í Liverpool til baka þar sem hann sagði stjórn félags- ins engan áhuga hafa á að semja við sig. Stjórnin ætlar því að standa við að selja NESV félagið og Liver- pool er því væntanlega endan- lega laust við þá Gillett og Hicks. Stuðningsmenn félagsins fagna því. - hbg Salan á Liverpool: Gillett og Hicks að missa félagið Á FÖRUM Hicks og Gillett er þeir keyptu Liverpool á sínum tíma. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.