Fréttablaðið - 15.10.2010, Blaðsíða 65
FÖSTUDAGUR 15. október 2010 37
FÓTBOLTI Ísland er langfámennasta
þjóðin sem hefur átt lið í úrslita-
keppni Evrópumeistaramóts karla-
landsliða sem skipuð eru leikmönn-
um 21 árs og yngri.
Ísland tryggði sér á mánudags-
kvöldið sæti í úrslitakeppni EM
sem fer fram í Danmörku næsta
sumar með 2-1 sigri á Skotum
í Edinborg og 4-2 samanlagt í
umspilsrimmu liðanna.
Gamla „metið“ átti Albanía sem
hefur einu sinni komist í hóp átta
bestu U-21 landsliða Evrópu en það
var árið 1984. Um þrjár milljónir
bjuggu í Albaníu þá, eða næstum
tífaldur fólksfjöldi Íslands. Hag-
stofa Íslands segir að í upphafi árs
hafi verið rúmlega 317 þúsund íbúar
á Íslandi.
Undirstrikar þetta enn frekar
hversu glæsilegur árangur íslenska
U-21 landsliðsins er, sérstaklega í
ljósi þess að knattspyrna er almennt
talin vinsælasta íþrótt heims og með
flesta iðkendur. Samkvæmt könnun
FIFA frá árinu 2006 eru 265 millj-
ónir iðkenda um allan heim.
Í sömu úttekt er Ísland skráð
með 32.408 iðkendur en Albanía, til
samanburðar, með rúm 164 þúsund.
Skotland, sem Ísland sló úr leik í
umspilinu, er með 420 þúsund.
Þýskaland, næstfjölmennasta
þjóð Evrópu, er með 16,3 millj-
ónir knattspyrnuiðkenda sam-
kvæmt sömu könnun. Ísland lék
með Þýskalandi í riðlakeppninni
og vann 4-1 sigur á heimavelli en
liðin gerðu jafntefli ytra, 2-2. Þjóð-
verjar eru einnig ríkjandi Evrópu-
meistarar í flokki U-21 landsliða
en fá ekki tækifæri til að verja
titilinn í Danmörku á næsta ári.
Það skal tekið fram að ekki var
haldin sérstök úrslitakeppni í EM
U-21 landsliða fyrr en árið 1994.
Keppnin hefur þó farið fram reglu-
lega frá 1978. Fram til ársins 1994
komust átta lið upp úr riðlakeppn-
inni í útsláttarkeppni þar sem
leikið var heima og að heiman og
samanlögð úrslit giltu.
Ísland verður eini nýliðinn í
úrslitakeppni EM næsta sumar
sem verður átjánda mótið frá upp-
hafi í þessum aldursflokki. Ísland
er 36. Evrópuþjóðin sem kemst í
hóp átta bestu í sögu keppninnar.
- esá
Ísland í hópi 36 þjóða sem hafa komist upp úr undankeppni Evrópumeistaramóts U-21 landsliða:
Langfámennasta þjóðin sem kemst svo langt
Fámennustu þjóðirnar
Tölur í milljónum*
1. Ísland 0,317
2. Albanía 3,2
3. Króatía 4,4
4. Noregur 4,9
5. Skotland 5,2
6. Slóvakía 5,4
7. Finnland 5,4
8. Danmörk 5,5
9. Búlgaría 7,5
10. Ísrael 7,6
* miðað við upplýsingar um núverandi
íbúafjölda.
GYLFI ÞÓR SIGURÐSSON
Lykilmaður í U-21 liði Íslands.
FFRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Íslenska U-21 landsliðið
verður í efri styrkleikaflokki
þegar dregið verður í riðla fyrir
úrslitakeppni EM sem haldin
verður í Danmörku á næsta ári.
Liðunum er raðað eftir árangri
í undankeppninni og Ísland er í
efri styrkleikaflokki með Dönum,
Tékkum og Spánverjum. Ljóst er
að Danir spila í A-riðli og Tékk-
ar, sem sú þjóð sem náði bestum
árangri í undankeppninni, í B-
riðli.
Ísland og Spánn verða svo
dregin út næst og geta því ekki
lent í sama riðli. Að lokum verður
dregið úr neðri styrkleikaflokk-
unum í riðlana tvo. Í honum eru
England, Sviss, Hvíta-Rússland
og Úkraína. Dregið verður í riðla
þann 9. nóvember næstkomandi.
- esá
EM U-21 landsliða:
Ísland í efri
styrkleikaflokki
FÓTBOLTI Gylfi Einarsson hefur
skrifað undir þriggja ára samn-
ing við Fylki en hann er nú að
snúa aftur heim eftir tíu ár í
atvinnumennsku.
Gylfi er uppalinn Fylkismaður
en fór frá liðnu árið 2000 og gekk
til liðs við Lilleström. Árið 2004
fór hann til Leeds í Englandi en
fjórum árum síðar sneri hann
aftur til Noregs og leikur nú með
Brann.
Þar hefur hann lítið fengið
að spila að undanförnu þar sem
félagið hefur ekki efni á að greiða
honum bónusgreiðslur fyrir
hvern spilaðan leik.
Gylfi hefur á ferlinum leikið 24
A-landsleiki og skorað í þeim eitt
mark, í 2-0 sigri Íslands á Ítalíu í
vináttulandsleik árið 2004.
Gylfi lék á sínum tíma 54 leiki
með Fylki og skoraði í þeim átján
mörk. - esá
Gylfi Einarsson til Fylkis:
Þriggja ára
samningur
GYLFI Hér í leik með Brann frá Bergen.
NORDIC PHOTOS/AFP
kemur við sögu
á hverjum degi!
OG STYDDU INNLENT HJÁLPARSTARF
RAUÐA KROSS ÍSLANDS Í LEIÐINNI
10 KRÓNUR AF HVERJUM
SELDUM PAKKA RENNA TIL STARFSINS
KAUPTU FRÓN
MJÓLKURKEX
Sjálfboðaliðar í 50 deildum um allt land halda uppi innanlandsaðstoð Rauða kross Íslands.
Meðal helstu verkefna má nefna Hjálparsímann 1717, Rauðakrosshúsið, fataflokkun,
heimsóknarvini, sjúkrabifreiðar, skyndihjálparfræðslu, þjónustu og aðstoð við innflytjendur,
hælisleitendur, fólk með geðraskanir og ungmennastarf. Einnig má nefna að Rauði krossinn
er hluti af almannavörnum og sinnir þar m.a. sálænum stuðningi þegar á reynir.