Fréttablaðið - 15.10.2010, Side 2

Fréttablaðið - 15.10.2010, Side 2
2 15. október 2010 FÖSTUDAGUR María, jafnast finnski hestur- inn á við þann íslenska? Já, finnski hesturinn er fyndnari. María Reyndal leikstýrir gamanverkinu Finnski hesturinn í Þjóðleikhúsinu. FÓLK „Það hafa allir mikla gleði af þessu, ekki síður ættingjar en starfsmenn og íbúar,“ segir Anna Birna Jensdóttir, hjúkrunarfor- stjóri í Sóltúni þar sem nú standa yfir Franskir dagar. Í Sóltúni eru 92 íbúar í tólf álmum, sem hver og ein valdi sér að vera eitt af hverfum Parísar þessa vikuna og skreytti húsnæðið á viðeigandi hátt. „Nú förum við í Óperuhverfið, Latínuhverfið og Gyðingahverf- ið. Fólk er líka í gervum. Ein er til að mynda Coco Chanel og einn er Sarkozy. Menn koma með myndasýningar frá dvöl sinni úti og það eru fánar úti um allt. Ég held að það sé ekki til frönsk bók á bókasöfnum bæjarins því þær eru allar komnar hér í hús,“ segir Anna, sem lýsir stemningunni sem einstaklegra ljúfri. „Ættingjar sem hafa búið í París mættu með franskar bók- menntir og málverk. Fólk kemur hér með alls kyns víntegundir sem er í boði að smakka. Bara nefndu það, það er allt hér í umferð,“ segir Anna og játar að fjörið sé svo mikið í Sóltúni þessa dagana að við liggi að allt sé að fara úr böndunum. „Það liggur við. Ég get ekki borið alveg fulla ábyrgð á þessu. Það er hér meira að segja vændishverfi, þetta er allur pakkinn!“ Á miðvikudag var frönsk kaffi- húsastemning í Sóltúni. „Þá voru ostar og vín í kaffihúsinu okkar, Café de Fleur. Elín Pálmadóttir blaðamaður hélt glæsilegt erindi fyrir fullum sal um sögu franskra sjómanna við Íslandsstrendur í máli og myndum. Á morgnana höfum við sýnt franskar bíó- myndir, meðal annars um Edith Piaf,“ segir Anna. Matseðilinn í Sóltúni hefur verið franskur alla vikuna. Í gærkvöld var hátíðarkvöldverð- ur með lambalæri og franskri súkkulaðitertu í eftirrétt og ætl- uðu um fimmtíu ættingjar að vera viðstaddir. Eftir kvöldverð- inn söng Brynhildur Guðjónsdótt- ir leikkona franska söngva við undirleik Jóhanns G. Jóhannsson- ar. Og dómnefnd íbúafélagsins veitti verðlaun fyrir hugmynda- auðgi, frumleika og fleira. „Það er alveg sama hvernig heilsan er; manneskjur eru til- finningaverur og tilfinninga- greindin fer ekki neitt. Við leik- um okkur með hana og njótum lífsins saman – það eru lífsgæði fólgin í því,“ segir Anna Birna Jensdóttir. gar@frettabladid.is Sóltún breytist í París með rauðvíni og söng Íbúar hjúkrunarheimilisins Sóltúns skemmta sér vel á Frönskum dögum. Álmur heimilisins eru hverfi Parísar. Íbúarnir klæða sig að frönskum sið og dreypa á rauðvíni. Hápunkturinn var söngskemmtun eftir hátíðarkvöldverð í gærkvöld. FRANSKIR DAGAR Íbúar, ættingjar og starfsmenn hafa glaðst saman á Frönskum dögum í Sóltúni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM TVÆR HRESSAR Vinkonurnar sátu saman og nutu franskrar stemningar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Það er hér meira að segja vændishverfi, þetta er allur pakkinn! ANNA BIRNA JENSDÓTTIR HJÚKRUNARFORSTJÓRI Í SÓLTÚNI. Tveir af föstum pistlahöfundum Fréttablaðsins, þeir Þorvaldur Gylfason og Pawel Bartoszek, hafa boðið sig fram til stjórn- lagaþings. Fram að kjördegin- um, 26. nóvember, verða þeir því í fríi frá pistlaskrifum en taka upp þráðinn á ný eftir kosningar. Pistlahöfundar í framboði í frí VERSLUN Sala á sígarettum hefur dregist saman um tæp 13 prósent í magni á tímabilinu janúar-sept- ember í samanburði við sama tímabil í fyrra. Á sama tíma hefur sala á neftóbaki aukist um 9,2 prósent en í lok september höfðu selst tæplega 18,8 tonn af neftóbaki. Sala áfengis hefur á sama tímabili dregist saman um 5,6 prósent í magni. Mestur sam- dráttur er í sterkum og blönduð- um drykkjum en minnst í sölu hvítvíns. - jhh Samdráttur í verslun: Sala á sígarett- um minnkar FÓLK Kagendra Magar fagnaði í gær átján ára afmæli sínu en um leið komst hann í heimsmetabók Guinness þar sem hann er lág- vaxnasti maður heims. Magar, sem býr í Nepal, er aðeins 67 senti- metrar á hæð og vegur 6,5 kíló. Kagendra starfar með dans- flokki sem heldur danssýningar víða um Nepal. Þess á milli hjálpar hann foreldrum sínum í grænmetisverslun þeirra. - kh Minnsti maður í heimi: 67 sentimetrar MAGAR Hann er tæplega tvöfalt hærri en Fréttablaðið. NORDICPHOTOS/AFP STJÓRNMÁL Þingflokkur Hreyfing- arinnar krefst þess að ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur víki og komið verði á neyðarstjórn sem hafi það með höndum að setja neyðarlög til að taka á skulda- vandanum, afgreiða fjárlög, koma á lýðræðisumbótum og endur- skoða samstarfið við Alþjóða- gjaldeyrissjóðinn. Ef þetta verður ekki að veru- leika vill Hreyfingin að boðað verði til alþingiskosninga. Ástæða þessa er að Hreyfing- in telur sitjandi ríkisstjórn ekki færa um að leysa úr skuldavanda heimilanna með sanngjörn- um og réttlátum hætti. Það hafi orðið ljóst á samráðsfundum með stjórnarandstöðunni. - sh Kosningar ef ekkert breytist: Hreyfingin vill neyðarstjórn DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur vísað frá máli filippseyskrar konu sem hafði sótt um dvalar- leyfi fyrir ellefu ára gamla bróð- urdóttur sína. Útlendingastofn- un hafði synjað stúlkunni um dvalarleyfi og dóms- og mann- réttindamálaráðuneytið stað- fest þá niðurstöðu. Héraðsdómur Reykjavíkur staðfesti svo aftur niðurstöðu ráðuneytisins og var því ákveðið að áfrýja málinu til Hæstaréttar. Konan sem sótti um dval- arleyfi fyrir telpuna kvaðst upphaflega vera móðir henn- ar. Útlendingastofnun veitti þá barninu tímabundið dvalarleyfi. Í skýrslugjöf hjá lögreglu við- urkenndi konan hins vegar að hún væri ekki móðir telpunn- ar. Í kjölfar þess var dvalarleyfi barnsins afturkallað með ákvörð- un útlendingastofnunar. Forsjá litlu telpunnar er nú í höndum fjölskyldunefndar. - jhh Hæstiréttur úrskurðar: 11 ára stúlka fær ekki dvalarleyfi Sjúkraliðar semja Fulltrúar Sjúkraliðafélags Íslands og fjármálaráðuneytisins undirrituðu kjarasamninga í gær. Þeir gilda til 1. desember 2010. Samningar hafa verið lausir síðan í apríl 2009. KJARASAMNINGAR VIÐSKIPTI Þrátt fyrir að hluti bif- reiðaeigenda hafi fengið úrlausn mála með lán sín að undanförnu hefur það ekki aukið viðskiptin hjá bílasölum á höfuðborgarsvæðinu. Viðmælendur Fréttablaðsins segja að þrátt fyrir að sala hafi glæðst síðustu vikur sé enn ekki farið að gæta áhrifa gengislánadóms og lánaleiðréttinga. Lítið framboð sé enn á nýlegum notuðum bílum og eftirspurn hafi aukist. Pétur Þór Hall, sölustjóri Toyota Notaðra bíla, sagði að salan hefði þó verið góð í síðasta mánuði. „Það var metsala frá hruni hjá okkur. Fólk þurfti greinilega að fara að endurnýja.“ Hann segir þó að við- skiptavinirnir hafi verið hófstillt- ir í kaupum. Einar Gunnarsson hjá Bílahöll- inni segir markaðinn með notaða bíla vera að glæðast nokkuð en sér ekki fram á verðlækkun. „Flestir bílar hækkuðu í samræmi við nýja bíla á sínum tíma. Það er mikil eftirspurn eftir nýlegum bílum, þannig að þeir munu ekki lækka að neinu marki.“ Loks segir Björgvin Harðar- son hjá Bílasölu Íslands að bíla- sala hafi nær stöðvast í ágúst en markaðurinn sé farinn af stað á ný. Framboðið á nýrri tegundum sé þó mjög lítið. - þj Bílasalar hafa ekki orðið varir við meira annríki í kjölfar dóma og lánaleiðréttinga: Lítið framboð á nýlegum bílum Á SÖLU Bílasalar segja gengislánadóm og lánaleiðréttingu ekki enn hafa skilað sér inn á plan til þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM BRUNI Íbúð í þríbýlishúsi við Marbakkabraut í Kópavogi er mikið skemmd eftir að eldur kom þar upp á þriðja tímanum í gær. Lögregla telur að kviknað hafi í út frá kannabisrækt. Allt tiltækt slökkvilið var kallað út þegar til- kynnt var um að íbúðin á miðhæð hússins væri alelda. Reykkafarar slökkviliðsins fóru inn í húsið í gær til að kanna hvort fólk væri innan- dyra. Húsið reyndist hins vegar mannlaust. Heimir Ríkharðsson hjá lögreglunni á höfuð- borgarsvæðinu staðfestir að frumrannsókn hafi leitt í ljós að líklega hafi kviknað í út frá fjöl- tengi sem í voru tengd ýmis rafmagnstæki til kannabisræktunar, hitalampar og annað. Tíu kannabisplöntur fundust á staðnum. Heim- ir segir að rætt hafi verið við eiganda íbúðarinn- ar og hann hafi gengist við kannabisræktuninni. Íbúðin þar sem eldurinn kom upp er stór- skemmd. Nokkrar sótskemmdir eru í íbúð- inni fyrir ofan, og vatnsskemmdir í þeirri fyrir neðan. - sh Íbúð í Kópavogi er stórskemmd eftir bruna og sót og vatn skemmdi tvær aðrar: Kviknaði líklega í út frá kannabisrækt MIKLAR SKEMMDIR Kannabisrækt húsráðanda virðist hafa dregið dilk á eftir sér. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.