Fréttablaðið - 15.10.2010, Síða 4
4 15. október 2010 FÖSTUDAGUR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Sigmundur Halldórsson sigmundur@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is
GENGIÐ 13.10.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
206,1859
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
110,13 110,65
176,40 177,26
154,85 155,71
20,763 20,885
19,160 19,272
16,757 16,855
1,3564 1,3644
173,91 174,95
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
SJÁVARÚTVEGUR Fundi strandríkja
um stjórnun makrílveiða lauk í
London í gær án niðurstöðu. Önnur
fundarlota er
boðuð síðar í
þessum mán-
uði. Bitbeinið er
og verður hlut-
deild strandríkj-
anna – Evrópu-
sambandsins,
Noregs, Fær-
eyja og Íslands
– í heildarveiði
á makríl.
Tómas H. Heiðar, formaður
samninganefndar Íslands í makríl-
viðræðunum, segir það ekki þurfa
að koma neinum á óvart að niður-
staða hafi ekki fengist. Enginn hafi
gert ráð fyrir því að deilan yrði
leyst á þessum fundi, enda hafi það
tekið ESB og Noreg mörg ár að við-
urkenna stöðu Íslands sem strand-
ríkis þrátt fyrir að fyrir lægju
vísindalegar upplýsingar um að
makríl væri að finna í íslenskri lög-
sögu í sívaxandi mæli. Þegar það
væri haft hugfast væru vonir um
skjótfengna niðurstöðu um skipt-
ingu makrílkvóta á milli strand-
ríkjanna fjögurra óraunhæfar.
Á fundinum var rætt um skipt-
ingu makrílkvóta fyrir næstu
ár. „Það er ekki ágreiningur um
stjórnun makrílveiðanna í grund-
vallaratriðum. Allir eru sammála
um að fylgja vísindalegri ráðgjöf
ICES en menn greinir hins vegar
á um hvernig á að skipta stofnin-
um á milli strandríkjanna. Tek-
ist er á um það,“ segir Tómas sem
getur ekki upplýst hverjar kröfur
Íslands eru eða hvað er í boði frá
hendi ESB og Noregs. Hann segir
að íslenska samninganefndin hafi
lagt áherslu á að það sé sameigin-
leg ábyrgð allra strandríkjanna að
sjá til þess að heildarveiðarnar úr
stofninum verði sjálfbærar. Í því
felist í raun að allir aðilar verði að
draga úr sínum veiðum til að kröf-
um um sjálfbærar veiðar verði
mætt.
Úr þessu má lesa að allar þjóðirn-
ar verði að draga úr sínum veiðum
jafnt, þar sem öll löndin hafa úthlut-
að sér kvóta einhliða. Makrílkvóti
Íslendinga fyrir árið 2010 er 130
þúsund tonn, sem eru um sautján
prósent af saman lögðum kvótum
allra ríkjanna. Því má gera ráð
fyrir að íslenska samninganefnd-
in fari fram á að Íslendingar fái
sautján prósent af þeim heildar-
kvóta sem verður gefinn út sam-
kvæmt veiðiráðgjöf ICES næstu
árin. Tómas vill ekki tjá sig um
þetta atriði, enda segir hann við-
ræðurnar á viðkvæmu stigi.
ESB hefur sent Íslendingum
tóninn á undanförnum vikum.
Ekki fer leynt að það er að undir-
lagi Skota, sem eiga mikilla hags-
muna að gæta. Spurður um samn-
ingsvilja úr þeirri átt segir Tómas
að í opnunarávarpi sínu á fundin-
um hafi hann tekið skýrt fram að
hótanir frá ESB væru ekki til að
greiða fyrir lausn málsins, heldur
þvert á móti. svavar@frettabladid.is
Engin niðurstaða en
ný fundarlota boðuð
Viðræðum um stjórn makrílveiða lauk í gær án niðurstöðu. Formaður íslensku
samninganefndarinnar er mátulega bjartsýnn á árangur og gagnrýndi hótanir
Evrópusambandsins að undanförnu í opnunarávarpi sínu á fundinum.
Auk Tómasar H. Heiðar eru í samninganefndinni þeir Steinar Ingi Matthías-
son, fiskimálafulltrúi við sendiráðið í Brussel, Jóhann Sigurjónsson, forstjóri
Hafrannsóknastofnunar, Eyþór Björnsson fiskistofustjóri og Friðrik J. Arn-
grímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ.
Samninganefnd Íslands í makríldeilunni
TÓMAS H. HEIÐAR
MAKRÍLL Nýjustu rannsóknir sýna að yfir milljón tonn af makríl gengu inn í
íslensku lögsöguna í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
23°
11°
13°
11°
12°
15°
10°
10°
24°
15°
25°
16°
28°
8°
15°
20°
6°Á MORGUN
SA-strekkingur SV-til,
annars hægari.
SUNNUDAGUR
Vaxandi N-átt og kóln-
andi veður.
9
9
8
6
10
10
10
11
12
8
10
6
4
3
6
7
2
4
3
2
2
2
10
10
11
11
8 65
8
9
9
HELGIN VERÐUR
GÓÐ því það verð-
ur fremur milt í
veðri en eftir helgi
fer heldur kólnandi
og veturinn mun
láta á sér kræla.
Hins vegar verður
vætusamt í dag og
á morgun einkum
sunnan og vestan-
lands en þá er ein-
falt að skella sér í
regngalla og njóta
haustsins.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
SÍLE, AP Sebastian Pinera, forseti
Síle, segir að aldrei framar muni
stjórn landsins heimila það að
fólk vinni við jafn ómannúðleg-
ar aðstæður og námumennirn-
ir 33 sem bjarga þurfti út úr lok-
uðum námugöngum eftir tveggja
mánaða innilokun.
Pinera fylgdist grannt með björg-
unaraðgerðunum og hefur ósp-
art látið ljósmynda sig með námu-
mönnunum, sem flestir eru við
góða heilsu eftir þessa þrekraun.
Forsetinn segir þennan góða
árangur björgunarmanna verða
til þess að álit umheimsins á Síle
vaxi. Jafnframt segir hann að
Sílebúar verði að læra af þess-
ari erfiðu reynslu og heitir því að
grundvallarbreytingar verði gerð-
ar á því hvernig fyrirtæki í land-
inu komi fram við starfsfólk sitt.
Námumennirnir voru fluttir á
sjúkrahús eftir björgunina, sem
gekk eins og í sögu. Þeir verða
flestir útskrifaðir strax í dag
og geta varla beðið eftir því að
komast heim.
Fjölskyldur þeirra og vinir hafa
skipulagt fagnaðarsamkomur og
þjóðin öll hefur óspart tekið þátt
í gleðinni. - gb
Námumennirnir í Síle flestir við góða heilsu eftir tveggja mánaða innilokun:
Forsetinn lofar breytingum
PINERA OG NÁMUMENNIRNIR Nú þarf
hann að standa við stóru orðin.
NORDICPHOTOS/AFP
SMYGL Tollgæslan á Íslandi tók
þátt í alþjóðlegri aðgerð sem
miðaði að því að uppræta sölu á
fölsuðum og ólöglegum lyfjum
á Netinu og voru póst- og hrað-
sendingar undir sérstöku eftirliti
meðan á aðgerðinni stóð.
Hundruðum heimasíðna var
lokað í aðgerðinni, mikið magn
ólöglegra lyfja gert upptækt og
fjöldi einstaklinga handtekinn,
samkvæmt tilkynningu á heima-
síðu Tollsins. Ekki eru veittar
frekari upplýsingar um málið hjá
Tollgæslunni.
Alþjóðleg tollgæsluaðgerð:
Sala á sviknum
lyfjum stöðvuð
SAMKEPPNI Samtök atvinnurek-
enda í raf- og tölvuiðnaði (SART)
hafa viðurkennt brot á samkeppn-
islögum og er gert að greiða fjór-
ar milljónir í sekt. SART mun nú
tryggja að samkeppni verði ekki
raskað á vettvangi samtakanna.
Rafverktökum í SART var
meinað að eiga viðskipti við
kvartanda þar sem ágreiningur
var milli hans og rafverktaka
innan samtakanna vegna upp-
gjörs á verksamningi. Athugun
Samkeppniseftirlitsins leiddi í
ljós að SART höfðu einnig brotið
gegn að minnsta kosti þremur
öðrum fyrirtækjum. - sv
Játa brot á samkeppnislögum:
SART greiðir 4
milljónir í sekt
SAMFÉLAGSMÁL Alls söfnuðust 2,7
milljónir króna á Herminator,
árlegu góðgerðagolfmóti Her-
manns Hreiðarsonar, sem haldið
var í Vestmannaeyjum hinn 26.
júní síðastliðinn. Söfnunarfénu
var í gær deilt á milli sex góð-
gerðafélaga.
Umhyggja, Barnaspítali
Hringsins og Mæðrastyrksnefnd
fengu 700.000 krónur hvert. Blátt
áfram, Barnahagur Vestmanna-
eyjum og SOS-barnaþorp fengu
200.000 krónur hvert. - sv
Herminator golfar til góðs:
2,7 milljónum
króna safnað
GJAFIRNAR Hreiðar Hermannsson, faðir
Hermanns Hreiðarssonar, afhenti gjaf-
irnar sex í Barnaspítala Hringsins í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FÓLK Alex Máni Guðríðarson,
þrettán ára gamall, bar sigur úr
býtum í ljósmyndakeppni Frétta-
blaðsins í síðustu viku. Um 250
ljósmyndarar tóku þátt í keppn-
inni. Myndin var birt á forsíðu
Fréttablaðsins síðastliðinn laugar-
dag, en myndefnið var litla systir
hans að leika sér í haustlaufum.
Alex fékk gjafabréf frá Ice-
land Express í verðlaun og segist
sennilega ætla að nýta sér það í
ferð til Ítalíu eða Spánar. Alex
ætlar að taka myndavélina með í
ferðina og nýta sér hið framandi
umhverfi út í ystu æsar. - sv
Vinningshafi í myndakeppni:
Ætlar til Ítalíu
eða Spánar
IÐNAÐUR Framleiðslugeta verk-
smiðju Actavis í Hafnarfirði mun
aukast um fimmtíu prósent á
næstunni.Nú er verið að setja upp
ný tæki í stækkaðri verksmiðju
og er verðmæti þeirra yfir 200
milljónir króna, að því er fram
kemur í tilkynningu.
Tækjakaupin eru stærsta ein-
staka fjárfesting Actavis við
stækkun verksmiðjunnar. Eftir
stækkun verður afkastageta
verksmiðjunnar um einn og hálf-
ur milljarður taflna á ári. - þj
Stækkun hjá Actavis á Íslandi:
Framleiðslugeta
eykst um 50%
VERÐLAUN Vinningshafinn í ljósmynda-
samkeppninni tekur við gjafabréfi frá
ritstjóra Fréttablaðsins, Ólafi Stephen-
sen. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN