Fréttablaðið - 15.10.2010, Qupperneq 10
15. október 2010 FÖSTUDAGUR
Tilboðsverð frá kr. 22.900*
Miele ryksugurnar eru í senn kraftmiklar, hljóðlátar, léttar
og þægilegar í notkun og fást þær í nokkrum litum.
Hægt er að setja ofnæmissíur í ryksugurnar.
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Sparaðu með Miele
*Gildir á meðan birgðir endast.
Kynntu þér málið hjá sölumönnum Eirvíkur
–einfalt og ódýrt
TILBOÐ MÁNAÐARINS
15% AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM NICOTINELL 204 STK PÖKKUM
VERÐ FRÁ 3.941 KR. (2MG FRUIT)
TILBOÐ GILDIR ÚT OKTÓBER
Spönginni • Hólagarði • Hagkaup Skeifunni • Hagkaup Akureyri • www.apotekid.is
STJÓRNMÁL Ögmundur Jónasson,
dómsmála- og mannréttindaráð-
herra, hefur ákveðið að stöðva, að
svo stöddu, endursendingar hælis-
leitenda til Grikklands á grund-
velli Dyflinnarreglugerðarinnar.
Umsóknir um hæli, sem ella
bæri að taka til efnismeðferðar
í Grikklandi á grundvelli reglu-
gerðarinnar, verða afgreiddar
hér á landi þar til annað verður
ákveðið.
Er ákvörðunin tekin í ljósi
nýrra tilmæla Mannréttindadóm-
stóls Evrópu til Noregs og breyt-
inga á afstöðu norskra stjórnvalda
í kjölfar þeirra,
eins og segir í
tilkynningu frá
ráðherra.
Mannrétt-
indadómstóll-
inn hefur nú til
meðferðar mál
sem höfðað var
gegn belgískum
stjórnvöldum.
Í því reynir á
hvort endursendingar til Grikk-
lands séu samrýmanlegar Mann-
réttindasáttmála Evrópu.
Í rúmt ár hafa íslensk stjórn-
völd fylgt þeirri reglu að hvert
tilvik fyrir sig sé skoðað og
aðstæður viðkomandi einstakl-
ings metnar áður en ákvörðun
er tekin um endursendingu til
Grikklands. Byggði ákvörðun þar
um á framkvæmd annarra ríkja
sem eiga aðild að Dyflinnarreglu-
gerðinni.
Fram kemur í tilkynningu að
Ögmundur hafi tekið ákvörð-
un sína í samráði við Útlend-
ingastofnun. Búast má við nýrri
ákvörðun að dómi Mannréttinda-
dómstólsins í málinu gegn Belgíu
gengnum. - bþs
Mannréttindaráðherra stöðvar endursendingar hælisleitenda til Grikklands:
Hælisumsóknir afgreiddar hér
ÖGMUNDUR
JÓNASSON
BRETLAND Ný bresk rannsókn gefur
fyrirheit um að með einföldu þvag-
prófi sé hægt að greina hverjir
séu líklegir til að fá krabbamein í
blöðruhálskirtli. BBC greindi frá
þessu í gær.
Fyrstu nið-
urstöður rann-
sóknarinnar,
sem leidd er
af dr. Hayley
Whitaker, próf-
essor í Cam-
bridge-háskóla,
sýna að mögu-
lega sé hægt að
greina svokall-
að MSMB-prótín í þvagi. Prótínið
tengist erfðabreytileika tengdum
krabbameini.
Hayley segir að sýni hafi verið
tekin af 350 mönnum sem ann-
aðhvort voru með krabbamein í
blöðruhálskirtli eða ekki. Niður-
stöðurnar hafi verið sláandi því
greinileg tengsl hafi verið á milli
magns MSMB-prótínsins og erfða-
fræðilegs breytileika sem tengist
krabbameininu.
Frekari rannsókna er þörf en
ef niðurstöður þeirra verða í takt
við væntingar rannsakenda gætu
þær leitt til þess að hægt verði að
framleiða tiltölulega ódýrt þvag-
próf, sem myndi kosta um þúsund
krónur í Bretlandi.
Í dag er notast við svokallað
PSA-blóðpróf til að greina
krabbamein í blöðruhálskirtli
en samkvæmt BBC er það próf
ónákvæmt.
Laufey Tryggvadóttir, klínískur
prófessor við Háskóla Íslands og
framkvæmdastjóri Krabbameins-
skrár Íslands, segir of snemmt að
segja nokkuð til um hvort þetta
próf verði að veruleika.
„Það á eftir að prófa hversu vel
þetta próf spáir fyrir um krabba-
meinsgreiningu með frekari rann-
sóknum,“ segir Laufey. „Þær próf-
anir munu taka einhvern tíma. Ef
niðurstöðurnar verða jákvæðar
verður þetta hugsanlega nothæft.
Í dag er mest þörf á prófum sem
greina það hvort krabbamein í
blöðruhálskirtli sé alvarlegt eða
sofandi, hvort það leiði til dauða
þess sem greindur er eða hvort
það hafi engin slæm áhrif á við-
komandi. Óvíst er hvort þetta próf
leysir þann vanda. Kannski vita
það ekki allir en ef krabbamein-
ið er sofandi geta menn lifað með
því alla ævi án þess að kenna sér
nokkurs meins.“ trausti@frettabladid.is
Þvagprufa notuð til
að greina krabbamein
Á Íslandi greinast árlega um 220 karlmenn með krabbamein í blöðruhálskirtli.
Mögulega er með einföldu þvagprófi hægt að greina þá sem eru líklegir til að
fá meinið. Prófessor við Háskóla Íslands setur fyrirvara við rannsóknina.
SJÚKDÓMUR Krabbamein í blöðruhálskirtli greinist oftast hjá rosknum karlmönnum, tveir af hverjum þremur sem greinast eru
yfir 70 ára að aldri. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
LAUFEY
TRYGGVADÓTTIR
STÆRSTI
HÚSNÆÐISVEFUR
LANDSINS
...ég sá það á Vísi
Ótrúlegt
úrval íbúða til sölu
eða leigu!
Á Íslandi greinast árlega um 220 karlmenn með krabbamein í blöðruháls-
kirtli og um 50 látast af völdum sjúkdómsins.
Tveir af hverjum þremur eru komnir yfir sjötugt þegar meinið greinist og
sjúkdómurinn er mjög sjaldgæfur hjá karlmönnum undir fimmtugu. Hjá
tíunda hverjum er meinið ættlægt og áhættan á að fá krabbameinið getur
að minnsta kosti tvöfaldast ef faðir eða bróðir hefur meinið. Í árslok 2007
voru 1.550 karlar sem greinst höfðu með krabbameinið á lífi.
Ef blöðruhálskirtillinn er skoðaður við krufningu hjá karlmönnum sem
komnir eru yfir fimmtugt finnast merki krabbameins hjá mörgum og hjá
allflestum þeirra sem komnir eru yfir nírætt.
Heimild: Fræðslurit Krabbameinsfélagsins
220 greinast árlega hérlendis