Fréttablaðið - 15.10.2010, Page 18

Fréttablaðið - 15.10.2010, Page 18
18 15. október 2010 FÖSTUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is HALLDÓR Eva Joly, þingmaður Græningja á Evrópu þinginu og frambjóðandi í frönsku forsetakosningunum, segir á blaðamannafundi hérlendis að snúa eigi við þeirri þróun að einkaaðilar eignist hér orkuauðlindir. Hún spyr hvers vegna Íslendingar ættu að setja orkulindir í einkaeigu. Þetta kallar á aðra spurningu: Hvar er verið að einkavæða orkulindir á Íslandi í dag? Getur einhver nefnt dæmi um slíka þróun, eða svo mikið sem ein- hverja talsmenn hennar? Fyrir rúmlega tveimur árum var það raunar bundið hér í lög að orkuauðlindir í eigu opinberra aðila mætti eingöngu selja öðrum slíkum, eða fyrirtækjum í eigu opinberra aðila. Þessi umræða snýst þess vegna ekki um neitt. Joly vill jafnframt stöðva kaup Magma Energy á HS Orku, og virðist af fréttum að dæma telja að þar hafi erlent fyrirtæki keypt orkuauðlindir á Reykjanesskaga. Svo er ekki, líkt og margoft hefur komið fram. HS Orka leigir afnotarétt af auðlindum í eigu sveitarfélaga og greiðir þeim auðlin- dagjald fyrir þann aðgang. Kaup Magma á meirihluta í HS Orku hafa hins vegar þegar farið fram og hafa jafnframt ítrek- að verið úrskurðuð lögmæt viðskipti af opinberum aðilum. Þá fylgist Orkustofnun með því að við nýtingu auðlindanna sé fylgt skilmálum virkjunarleyfis og hefur stofnunin víðtækar heimildir til að bregð- ast við hugsanlegum frávikum ef þurfa þykir. Enginn hefur þó jafn ríka hagsmuni af góðri umgengni við þessar auðlindir og fyrirtækið sjálft. Athygli vekur að Joly, sem gegnt hefur hlutverki ráðgjafa við íslenskt saksóknara- embætti, lýsti því yfir að væri hún ríkis- saksóknari hér myndi hún hefja sakamála- rannsókn á fyrrgreindum viðskiptum, sem þegar hafa ítrekað verið úrskurðuð lögmæt af opinberum aðilum. Um leið kom fram að á umræddum blaðamanna- fundi væri Joly fyrst og fremst að tala sem áhugamanneskja um orkumál og að hún gæti ekkert fullyrt um sumt af því sem hún teldi vera tilefni til rannsókna. Þarna var stjórnmálamaðurinn Eva Joly að tala. Ekki saksóknari, ekki lögmaður. Hvaða „einkavæðing“? Orkumál Gústaf Adolf Skúlason aðstoðarfram- kvæmdastjóri Samorku, samtaka orku- og veitufyrirtækja Þarna var stjórn- málamaðurinn Eva Joly að tala. Ekki saksóknari, ekki lögmaður. Happy hour Þingkonum hefur borist boð um að mæta á léttan fund á fimmtudaginn kemur (á „happy hour“) á Hótel Nordica og ræða það hvort stjórn- málamenn geti átt samleið með viðskiptalífinu. Það eru samtökin LeiðtogaAuður sem standa fyrir fundinum. Þau berjast fyrir því að efla tengsl kvenna í leiðtoga- og stjórnun- arstörfum á Íslandi. Ekkert svona Forvitnilegt verður að sjá hvaða þingkonur láta sjá sig. Ein hefur hins vegar afboðað sig með stæl. Það er Margrét Tryggvadóttir, Hreyfingunni. Hún sendi samtökun- um póst um hæl og lét afrit fylgja með til fjölmiðla. Margrét vísar í svari sínu í ekki ómerkara rit en skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis, þar sem segir: „Leita þarf leiða til þess að draga skýrari mörk á milli fjármála- lífs og stjórnmála. Ekki er líðandi að gæslumenn almannahagsmuna gangi erinda einkafyrirtækja með þeim hætti sem gert var í aðdrag- anda bankahrunsins.“ Í ljósi þessa sér Margrét sér ekki fært að hitta hóp kvenna, fá sér öl eða latté og spjalla um samstöðu þeirra í stjórnmálum og viðskipta- lífi. Sumir eru einfald- lega ekki til sölu. Fornaldarráðuneytið Jón Bjarnason hældi nýráðnum undirmanni sínum, Bjarna Harðarsyni, á hvert reipi í fréttum í gær. Enginn í víðri veröld væri hæfari til að gegna starfi upplýsingafulltrúa ráðuneytis- ins en Bjarni, sem hefði skrifað svo ægilega mikið í gegnum tíðina um landbúnað og sjávarútveg. Áhugi þeirra tveggja á málaflokkunum er því áþekkur. En Bjarni er líka „óforbetranlegur fornaldar- dýrkandi“ að eigin sögn, eins og sjá má á bloggsíðu hans. Skyldi sú staðreynd hafa vegið þungt í hæfnismatinu? stigur@frettabladid.isÞ jónusta við konur og karla sem hafa mátt þola kynferðis- legt ofbeldi sem og þjónusta við konur sem búa við ofbeldi í nánum samböndum fer að langstærstum hluta fram á vegum félagasamtaka og grasrótarhreyfinga. Þarna eru fyrirferðarmest annars vegar Stígamót sem sinna konum og körlum sem hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi og hins vegar Samtök um kvennaathvarf sem reka Kvennaathvarfið þar sem tekið er á móti konum sem hafa orðið fyrir ofbeldi af hálfu maka. Bæði þessi samtök fá framlag frá ríki og sveitarfélögum en rekstur athvarfa þeirra er á ábyrgð þessara hreyfinga og samtaka. Þar er því iðulega þröngt í búi, ekki síst vegna þess að erf- itt getur verið að sjá fyrir um þörfina á þjónustu frá ári til árs og jafnvel mánuði til mánaðar. Fyrir skemmstu kom til dæmis fram að í kjölfar umræðunnar um kynferðislegt ofbeldi kirkj- unnar manna hefði þeim konum sem leituðu til Stígamóta fjölgað verulega. Hér verður nefnilega að gæta þess að margir þolendur kynferðislegs ofbeldis hafa byrgt óbærilega reynslu inni um langt skeið áður en þeir áræða að leita sér hjálpar við að vinna úr henni. Kvennaathvarfið er eingöngu til staðar í höfuðborginni en á Akureyri njóta þolendur kynbundins ofbeldis þjónustu frá Aflinu sem einnig er rekið af félagasamtökum og á Ísafirði gegna Sólstafir svipuðu hlutverki. Stígamót veittu til skamms tíma þjónustu á sjö stöðum utan höfuðborgarsvæðisins en eftir efnahagshrunið þurftu samtökin að loka þessum þjónustumiðstöðvum vegna fjárskorts. Til að bæta úr því og einnig til að flytja starfsemi Stígamóta í stærra húsnæði og veita þjónustu allan sólarhringinn, meðal annars með opnun athvarfs fyrir konur sem vilja brjótast út úr mansali og vændi, efna Skotturnar til landssöfnunar nú um helgina. Markmiðið er að stórauka og bæta þjónustu Stígamóta. Þjóðinni gefst þá kostur á að styðja við starfsemi Stígamóta með því að kaupa barmmerki með kynjagleraugum fyrir þúsund krónur. Bleika og bláa glerið í kynjagleraugunum hafa þá fallegu og táknrænu merkingu að minna á að bæði kyn eiga að taka ábyrgð á kynferðisofbeldi. Það er afar brýnt að Stígamót geti að nýju þjónað þolendum kyn- ferðislegs ofbeldis víða um land. Hitt verkefnið er ekki síður brýnt að hægt sé að leita til Stígamóta allan sólarhringinn og að athvarfi fyrir konur sem vilja brjótast út úr vændi og mansali, og vaxandi þörf er fyrir, verði komið á fót. Konur í vændi og þolendur mansals er hópur sem var algerlega falinn þar til fyrir fáeinum misserum. Nú er hins vegar orðin dag- ljós nauðsyn þess að þessum hópi standi til boða þjónusta sem sér- staklega er sniðinn að þörfum hans. Það er svo í anda þeirrar sömu kvennasamstöðu sem liggur að baki bæði Stígamótum og Kvennaathvarfinu að markmið Skottanna er ekki aðeins að safna fé til að unnt verði að auka og bæta starf Stígamóta heldur einnig að manna að einhverju leyti þá starfsemi með sjálfboðastarfi. Skottur safna fyrir Stígamót. Setjum öll upp kynjagleraugu SKOÐUN Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.