Fréttablaðið - 15.10.2010, Síða 24
15. október 2010 FÖSTUDAGUR2
„Hér verða um 600 söngmenn og
settur verður saman svokallaður
Kötlukór er syngur lög sem kór-
arnir hafa verið að æfa, hver í
sínu heimahéraði,“ segir Valdimar
Bragason, prentari á Selfossi. Hann
er formaður Kötlu, sambands sunn-
lenskra karlakóra, er heldur kóra-
mót á morgun á Flúðum. Það mun
verða fjölmennasti samsöngur
karlakóra í áraraðir á Íslandi.
Valdimar segir félagssvæði Kötlu
ná frá Höfn í austri í Dali vest-
ur og innan hennar vera fimmtán
kóra, suma með hundrað ára sögu
að baki og aðra glænýja. Þeir stilli
saman strengina og syngi saman og
auk þess verði sérstakir tónleikar
hvers kórs fyrir sig. „Þeir syngja
á tveimur stöðum, annars vegar
í félagsheimilinu og hins vegar í
Límtréshöllinni. Það er stórt og
mikið verksmiðjuhús Límtrés sem
hefur að hluta til verið breytt í tón-
leikahöll af þessu tilefni. Þar verða
sameiginlegir tónleikar þessa 600
manna kórs og nóg pláss fyrir
áheyrendur.“
Auk sunnlensku kóranna verða
tveir gestakórar á mótinu, Karla-
kór Akureyrar-Geysir og finnski
kórinn Manifestum sem mun
syngja Finlandiu á frummálinu.
Finnarnir hafa sumir hverjir haft
kynni af Íslendingum áður því þeir
hafa komið fram með Karlakórnum
Fóstbræðrum.
Mótið verður sett formlega klukk-
an 13.30 á morgun og klukkutíma
síðar hefjast tónleikar kóranna
hvers fyrir sig. Svo verður sung-
ið fram á kvöld. „Það á að verða
nóg pláss fyrir þá sem vilja koma
og hlýða á okkur,“ segir Valdimar
og tekur fram að um eitt verð sé
að ræða fyrir allan daginn, 2.500
krónur.
Forseti Íslands ávarpar gesti við
setninguna, meðal annarra og mun
njóta söngsins það sem eftir er dags-
ins auk þess að sitja hátíðarkvöld-
verð Kötlu.
Þess má geta að finnski kórinn
Manifestum og Fóstbræður hita upp
með tónleikum í Langholtskirkju í
kvöld klukkan 20. gun@frettabladid.is
Samsöngur sex
hundruð karla
Fimmtán íslenskir karlakórar og einn finnskur syngja á risastóru
kóramóti á Flúðum á morgun sem stendur mestallan daginn.
Finnski kórinn Manifestum á djúpar rætur í ríkri karlakórahefð Finna en var stofnaður
í júní síðastliðnum þegar þaulvanir söngmenn fylgdu stjórnanda sínum, Markus
Westerlund, í nýjan kór. MYND/ÚR EINKASAFNI
• Allir skokkar áður 16990
St. 36-48
Nú 5000
• Skór áður 14990
Nú 5000
• Kápur áður 14990
ath aðeins litlar stærðir
Nú 5000
• Bolakjólar áður 9990
ath stórar stærðir
Nú 5000
Og margt margt fleira
Nýtt kortatímabil
FRÚIN ER ENN Í TILTEKTARSTUÐI
30-80% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM
Lín Design, Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is
Lín Design á
6 ára afmæli
15 - 50%
afsláttur af
öllum vörum
Föstudag &
laugardag
Börnin fá frían
sængurfatnað fyrir
bangsann
Einnig í vefvers
lun
www.lindesign
.is
Nýtt kortatíma
bil
ALLA DAGA FRÁ
HEIÐAR AUSTMANN
10 – 13
TOPPMAÐUR
Tveir stórpíanistar halda tónleika í Hömrum á Ísafirði á sunnu-
daginn klukkan 15. Eru það rússnesk-ísraelski píanóleikarinn Albert
Mamriev og Ísfirðingurinn Selma Guðmundsdóttir. Þau flytja meðal
annars verk eftir Richard Wagner og spila þau fjórhent á píanó.