Fréttablaðið - 15.10.2010, Page 25
Konur af erlendum uppruna
opna mömmueldhús á Akranesi
í dag.
Veitingasalan Veröldin okkar –
mömmueldhús tekur til starfa á
Kirkjubraut 8 á Akranesi í dag
en þar verður boðið upp á ódýran
heimilismat frá öllum heimshorn-
um. Um er að ræða virkniúrræði
og atvinnutækifæri fyrir konur af
erlendum uppruna sem er styrkt af
Evrópuári gegn fátækt og félags-
legri einangrun og Atvinnuþróun-
arsjóði kvenna.
„Í starfi okkar með fólki af
erlendum uppruna höfum við orðið
þess áskynja að staða erlendra
kvenna sem ekki eru á vinnu-
markaði er mjög slæm. Tengsla-
net þeirra er lítið og veikbyggt
og þeim hættir til að einangrast,“
segir Amal Tamimi, framkvæmda-
stjóri Jafnréttishúss, en Jafnrétt-
ishús er í forsvari fyrir verkefn-
inu. „Með því að bjóða konunum að
taka þátt í þessu verkefni má rjúfa
félagslega einangrun þeirra.“
Í tilefni af opnuninni verður
haldin veisla milli 15 og 17 í dag
og er öllum velkomið að líta við og
gæða sér á fyrirtaks mömmumat
frá öllum heimshornum.
- ve
Alþjóðleg
eldamennska
FÖSTUDAGUR 15. október 2010 3
„Bæjarbúar hafa lengi átt sér
draum um barnaleikrit og eftir
miklar vangaveltur kom leikstjór-
inn Elvar Logi Hannesson með
hugmyndina um Emil í Kattholti.
Eftir það var ekki aftur snúið, því
við urðum öll eins og börn aftur
við tilhugsunina um strákapör-
in hans Emils,“
segir Katrín
Jónsdóttir for-
maður Lit la
leikklúbbsins
á Ísafirði sem
nú fagnar 45
ára afmæli og
frumsýnir af
því tilefni veg-
lega uppfærslu
á einu vinsæl-
asta barnaleik-
riti allra tíma,
eftir sænsku skáldkonuna Astrid
Lindgren.
Nítján leikarar fara með hlut-
verk í sýningunni og alls koma
sextíu manns að verkinu, enda
ævintýraheimur Smálandanna
stór.
„Okkur þótti líka tilvalið að
áttugasta uppfærsla Litla leik-
klúbbsins yrði verk eftir Astrid
Lindgren þar sem fyrsta sýning
leikklúbbsins fyrir 45 árum var
Lína Langsokkur eftir sama höf-
und,“ segir Katrín og bætir við
að mikið ævintýri hafi verið að
koma Kattholti á fjalirnar, enda
ekki á hvers manns færi að flytja
Smálöndin til Ísafjarðar.
„Fleiri, fleiri börn sóttu um hlut-
verk Emils og Ídu og öll svo efni-
leg að erfitt var að velja úr rétta
parið. Að lokum stóð uppi hið full-
komna par sem bæði eru eins og
sköpuð fyrir hlutverkin, auk þess
að vera með eindæmum hæfileika-
rík og ótrúlega fljót að læra text-
ana og lögin utan að,“ segir Katr-
ín um þau Pétur Svavarsson (10
ára) og Þuríði Kristínu Þorsteins-
dóttur (8 ára) sem leika systkinin
óborganlegu í Kattholti.
„Ísfirðingum er leiklist í blóð
borin og þess vegna hefur leik-
klúbburinn blómstrað frá fyrstu
tíð. Allir vinna launalaust og af
ósviknum áhuga, og auðvitað
stórkostlegt að hver sem er geti
komist á svið með sína leiklistar-
drauma,“ segir Katrín, sem á von
á góðum viðtökum allra lands-
manna.
„Leiksýningin er bráðfyndin,
fjörug og skemmtileg, og vita-
skuld ævintýri fyrir aðkomu-
fólk að eyða helgi á Ísafirði. Frá
Reykjavík er malbikað alla leið
og stuttur bíltúr að renna hing-
að í helgarferð til að gera börn-
um glaðan dag með einstakri leik-
húsupplifun,“ segir Katrín sem
hlakkar mjög til frumsýningar
morgundagsins.
„Pétur sjálfur er Emil uppmál-
aður; uppátækjasamur og ofsalega
skemmtilegur, og Þuríður á sam-
eiginlegt með Ídu að vera ljúf, góð
og mikill dýravinur. Henni finnst
núorðið lítið mál að láta flagga
sér upp í fánastöng en fyrst þegar
við hífðum hana upp og spurðum
hvort væri gaman, stóð ekki á
svarinu: „Já! Og nei! Nei!““
Emil í Kattholti verður sýnt í
Edinborgarhúsinu laugardaga
og sunnudaga klukkan 14 fram í
miðjan nóvember. Miðasala í síma
450 5555. thordis@frettabladid.is
Strákapör Emils á Ísafirði
Á morgun skekur órói Ísafjarðarbæ, því þá hefur innrás stráksskrattinn Emil í Kattholti með sín ófyrirleitnu skammarstrik og misvinsælu
uppákomur í sænsku Smálöndunum sem þar hafa tekið sér tímabundna bólfestu í meðförum Litla leikklúbbsins í Edinborgarhúsinu.
Katrín Jónsdóttir,
formaður Litla
leikklúbbsins á
Ísafirði.
Pétur Svavarsson og Þuríður Kristín Þorsteinsdóttir eru sem sköpuð í hlutverk Emils og Ídu, eins og sjá má á þessari kostulegu
mynd úr uppfærslu Litla leikklúbbsins á Ísafirði. MYND/ÁGÚST G. ATLASON
Amal segir verkefninu meðal annars
ætlað að rjúfa félagslega einangrun.
w w w. m y s e c r e t . i s S í m i 5 2 7 - 2 7 7 7
aada er vinsælasti engiferdrykkurinn
á Íslandi hjá My Secret!
Engiferdrykkurinn aada hefur heldur betur slegið í gegn og
það besta við drykkinn er hvað hann er að virka vel á ýmsa
kvilla hjá fólki og má þar helst nefna gigt, astma, mígreni,
tíðaverki, flensu og hálsbólgu, sykurfíkn, eykur brennsluna,
bólgur, sogæðakerfið, ýmis húðvandamál. Hann virkar hjá
mörgum vatnslosandi og hefur hjálpað mörgum við meltingar-
vandarmál nú svo gefur engifer aukna orku og þol.
5L aada
Öflugastur í fjölskyldunni – Styrkleiki 100%
2L aada
75% styrkleiki af 5L
300 ml aada
50% styrkleiki af sterkasta
2L Beat the body with goji
– 5 daga hreinsun
“Beat the body with goji”
Þetta er mjög öflug 5 daga hreinsun og
byggist drykkurinn á grunndrykknum aada
ásamt goji berjum, rauðrófum, bláberjum
og cayenne pipar.
Tvær leiðir eru til að drekka þennan
hreinsunardrykk:
Annars vegar 2 sinnum á dag og þá 200
ml í senn – í fastandi maga á morgnana og
seinnipartinn.
Hins vegar 3 sinnum á dag og þá 130 ml
í senn – í fastandi maga á morgnana,
í hádeginu og seinnipartinn.
Huga þarf vel að matarræðinu á meðan.
Borða grænmeti, ávexti, fisk og kjúkling í
lagi, sleppa unnum mat og hveitivörum.
nýtt