Fréttablaðið - 15.10.2010, Page 36
Björgvin
Halldórsson
Það þarf ekki að fara mörgum
orðum um meistara Bó - einn
ástsælasta söngvara
þjóðarinnar sem er löngu orðin
goðsögn í lifanda lífi.
Björgvin hefur hljóðritað í
kringum 900 lög á ferlinum og
eru þau flest mjög vinsæl hjá
landanum ár hvert. Mörg
jólalaga Björgvins eru löngu
orðin klassísk og hljóma um
hver jól. Árið 2006 efndi
Björgvin til stórtónleika í
Laugardalshöllinni ásamt
Sinfóníuhljómsveit Íslands og
fyllti höllina þrisvar sinnum.
Síðan þá hefur hann endurtekið
leikinn ár hvert. Björgvin
Halldórsson hefur fyrir löngu
skipað sér á bekk meðal
fremstu manna íslenskrar
tónlistarsögu og það sæti mun
vera merkt honum um alla
framtíð.
Fróðleiksmolar
· Fullt nafn: Björgvin
Helgi Halldórsson.
· Gælunafn: Bó.
· Björgvin starfaði eitt sinn
sem rótari.
Eftirlaetis tilvitnun:
„TCB. Taking care of Business“
- E. Presley.
Helgi
Björnsson
Helgi var söngvari í Grafík á
árunum 1983-1986 og Síðan
skein sól frá 1987 sem með
tímanum breytti nafni sínu í
SSSól. Fyrsta sólóplata Helga
kom út í árslok 1997 og nefndist
einfaldlega Helgi Björns. Sönginn
og leiklistina hefur hann náð að
sameina öðru hverju t.d. með
þáttöku í söngleiknum Meiri
gauragangur, í óperunni Carmen
Negra og í Rocky Horror árið
1995, þar sem hann var í
aðalhlutverki sýningarinnar. Helgi
er höfuðpaur Reiðmanna vindanna
sem sendi frá sér plötuna Ríðum
sem fjandinn árið 2008, við
miklar vinsældir.
Fróðleiksmolar
· Gælunafn: Holy B.
· Helgi starfaði eitt sinn sem málari.
Eftirlaetis tilvitnun:
„Couple of times.“
Vala
Guðnadóttir
Vala starfar sem bæði leikkona
og söngkona, hún nam einsöng
við framhaldsdeild Guildhall
School of Music and Drama í
London og útskrifaðist þaðan
vorið 2000. Áður hafði hún
lokið 8. stigi með hæstu
einkunn frá Söngskólanum í
Reykjavík. Hún hefur leikið og
sungið í Þjóðleikhúsinu,
Borgarleikhúsinu, Íslensku
Óperunni og víðar. Vala fór með
hlutverk Maríu í Söngvaseið í
fyrra, en fyrir það hlutverk hlaut
hún Grímuverðlaunin sem
Söngvari ársins 2009.
Fróðleiksmolar
· Fullt nafn: Valgerður
Guðrún Guðnadóttir.
· Gælunöfn Valgerðar eru Vala
eða Valsmína hjá ákveðnum
fjölskyldumeðlimum.
· Valgerður starfaði eitt sinn
sem skrifstofumær.
Eftirlaetis tilvitnun:
„Afsakið mig og mína persónu
ef einhver væri en engin er.“
-Ofurhógvær eldri frænka úr sveit.
Sigríður
Thorlacius
Sigríður stundaði nám í
klassískum söng við
Söngskólann í Reykjavík um
nokkurra ára skeið en færði sig
svo um set yfir í Tónlistarskóla
FÍH og lauk burtfararprófi af
jazz-braut vorið 2008. Sigríður
hefur sungið með hljómsveitinni
Hjaltalín frá árinu 2006.
Sigríður hlaut í ár íslensku
tónlistarverðlaunin sem rödd
ársins fyrir söng sinn með
Hjaltalín og á sólóplötu sinni
Á ljúflingshól.
Fróðleiksmolar
· Gælunafn: Sigfríð.
Eftirlaetis tilvitnun:
„The bigger the hair,
the closer to God.“
Högni
Egilsson
Högni hóf nám í fiðluleik hjá
Lilju Hjaltadóttur aðeins fimm
ára og stundaði það fram að
unglingsárum. Árin 2006 til 2008
lagði hann stund á tónsmíðar í
Listaháskóla Íslands, m.a. hjá
Atla Ingólfssyni, Kjartani
Ólafssyni og Hróðmari Inga
Sigurbjörnssyni.
Högni er aðallagahöfundur
og söngvari hljómsveitarinnar
Hjaltalín og hefur komið fram
með henni á Norðurlöndunum
og víðar í Evrópu sem og
hér heima.
Paul Potts
Paul sló allrækilega í gegn árið 2007 þegar hann sigraði í fyrstu
seríu sjónvarpshæfileikakeppninnar Bretland býr yfir hæfileikum
eða „Britain's Got Talent”. Í sinni fyrstu áheyrnarprufu heillaði
hann áhorfendur, dómarana þrjá og reyndar alla heimsbyggðina
upp úr skónum. Paul Potts hefur síðan þá gefið út þrjár plötur,
komist á toppinn í 15 löndum, farið í fimm uppseldar tónleika-
ferðir um heiminn, sungið fyrir Englandsdrottningu og hetjuna
sína José Carreras, sem kallaði rödd hans „ótrúlegt hljóðfæri.“
Summer Watson
Summer er rísandi stjarna í óperuheiminum og hefur
sungið í mörgum af stærstu óperuhúsum heims. Hún
kemur reglulega fram fyrir bresku konungsfjölskylduna
og gerði það t.d. á 60 ára afmælistónleikum konunglegu
fílharmóníusveitarinnar í Buckinghamhöll. Henni hefur
verið lýst sem „klassískt menntuðum söngvara sem býr
yfir silkimjúkri flauelsrödd sem svífur áreynslulaust
yfir tónverk merkustu tónskálda sögunnar.”
Alexander Rybak
Norska stórstjarnan Alexander Rybak kom, sá og sigraði í
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva sem haldin var árið
2009 í Moskvu, með eigin tónsmíð, hinu stórskemmtilega
Ævintýri eða „Fairytale“. Hann sigraði keppnina með miklum
yfirburðum, hlaut samtals 387 stig og bætti þar með stigamet
finnsku þungarokkaranna Lordi, sem árið 2006 hlutu 292 stig.
Hann mun taka lagið með Jóhönnu Guðrúnu og er það í fyrsta
skipti sem Evróvisjónfararnir snúa bökum saman.
*Vinsamlegast athugið: Alexander, Paul og Summer koma eingöngu fram í Reykjavík.