Fréttablaðið - 15.10.2010, Side 56
28 15. október 2010 FÖSTUDAGUR28
menning@frettabladid.is
EKKI MISSA AF síðasta sýningardegi sýningarinnar Ár – málverkið á tímum straumvatna í Lista-
safni Árnesinga í Hveragerði á sunnudag. Boðið verður upp á leiðsögn um sýninguna og rithöfund-
arnir Auður Ava Ólafsdóttir og Eiríkur Guðmundsson lesa úr nýjum skáldverkum sínum.
Sölvi Björn Sigurðsson er í
hópi um 40 rithöfunda frá
öllum heimshornum sem
boðið var í þriggja mánaða
ritsmiðju á vegum Iowa-
háskóla í Bandaríkjunum í
ár. Hann segir þetta frá-
bæra reynslu sem hleypt
hafi nýju lífi í skáldsögu
sem hann vinnur að.
Á hverju ári er um 40 rithöfund-
um frá öllum heimshornum boðið
til dvalar við Iowa-háskólann í
Bandaríkjunum um þriggja mán-
aða skeið til að kynnast banda-
rískum bókmenntaheimi og vinna
að eigin verkum. Sölva Birni Sig-
urðssyni rithöfundi var boðið í ár
og hefur dvalið ytra um nokkurra
vikna skeið.
„Þetta hefur verið frábær
reynsla,“ segir Sölvi. „Maður ræður
tíma sínum nokkurn veginn sjálfur
og getur því setið inni á hóteli við
skriftir út í eitt ef út í það er farið.
Ég hef nýtt tækifærið til að kom-
ast almennilega inn í nýja skáldsögu
en það hefur líka verið frábært að
kynnast þessum höfundum og bera
saman bækur sínar við þá. Í hverri
viku eru nokkrir upplestrar, fyr-
irlestrar, ljóðakvöld og ritsmiðjur
sem manni gefst kostur á að sækja
og taka þátt í hér og þar um borg-
ina. Það má segja að hér sé allur
höfundaskalinn ef svo má að orði
komast, ungir höfundar sem eru
nýbúnir að gefa út sitt fyrsta verk
og svo aðrir sem hafa selt milljónir
eintaka af sínum bókum.“
Nærast á eigin sérvisku
Sölvi segir að skynja megi hvern-
ig straumar og stefnur geta verið
mismunandi hjá höfundum eftir
uppruna en enginn merkjanlegur
munur sé á því hvernig höfundar
nálgast starf sitt.
„Rithöfundar nærast að mestu á
eigin sérviskum og það kemur ber-
lega í ljós þegar maður umgengst
svona margt ólíkt fólk; sumir
þurfa að ganga fimm kílómetra
áður en þeir setjast niður til að
skrifa, aðrir vakna seinni partinn,
sumir drekka ekki kaffi, aðrir þola
ekki morgunmat og þar fram eftir
götunum.“
Sölvi hefur líka gefið sér tíma
til að ferðast„Ég fór til Wyoming á
kúrekabúgarð og hitti þar kúreka-
skáld – vestraútgáfan af rímna-
skáldum – og nú stendur til að fara
til Portland í Maine að setja upp
leikrit eftir mig og þaðan til Wash-
ington D.C. og New York að hitta
fólk í bókmenntaheiminum og
útgáfubransanum þar.“
Vinnur að nýrri skáldsögu
Bandaríska sendiráðið á Íslandi
hafði milligöngu um að senda Sölva
til Iowa og stendur straum af kostn-
aðinum við dvölina. Sölvi, sem í
fyrra sendi frá sér skáldsöguna Síð-
ustu dagar móður minnar og hefur
nýlokið við að þýða Ofviðrið eftir
Shakespeare, segir það hafa verið
sannkallaða himnasendingu þegar
sendiráðið hringdi í hann í vor og
bauð honum út.
„Það stóð alltaf til að næsta
skáldsaga myndi millilenda í
bandarískum háskólabæ á austur-
ströndinni og eftir því sem líður á
dvölina hefur hugmyndin styrkst
og dýpkað, eins og gerist þegar
nýjar upplifanir taka sér bólstað
í manni.“ Bókin fjalli þó fyrst og
fremst um Ísland, „með stærra Í-
i en venjulega. Hún á að heita Það
er ekki í lagi með okkur og kemur
út á næsta ári, ef allt gengur að
óskum.“ bergsteinn@frettabladid.is
ALÞJÓÐLEGUR SKÁLDATÍMI Í IOWA
SÖLVI BJÖRN Hafði hugsað sér að láta næstu skáldsögu sína gerast að hluta til í
bandarískum háskólabæ. Það var því himnasending þegar sendiráð Bandaríkjanna
hafði samband við hann í vor og bauð honum til Iowa. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
1976 Sigurður A. Magnússon
1983 Guðmundur Steinsson
1984 Steinunn Sigurðardóttir
1986 Guðbergur Bergsson
1988 Birgir Sigurðsson
AÐRIR ÍSLENSKIR RITSMIÐJUGESTIR
Sýningar í
fullum gangi
Sýningadagar
Lau. 16/10 kl. 13 Ör
fá sæti
Sun. 17/10 kl. 14 Up
pselt
Lau. 23/10 kl. 13 Ör
fá sæti
Sun. 24/10 kl. 14 Up
pselt
Lau. 30/10 kl. 13 Ör
fá sæti
Sun. 31/10 kl. 14 Ör
fá sæti
Hópur listamanna undir forystu
Kristjáns Jóhannssonar efnir
til tónleika í Víðistaðakirkju í
Hafnarfirði laugardaginn 23.
október til styrktar MND-félag-
inu á Íslandi.
Með Kristjáni verða nokkrar
skærustu söngstjörnur landsins
og ætla þau að flytja léttklass-
ísk verk, einsöngslög og dúetta.
Listafólkið gefur vinnu sína og
rennur allur ágóðinn til íbúða-
sjóðs MND-félagsins.
Auk Kristjáns Jóhannssonar
koma fram á tónleikunum Anna
Sigríður Helgadóttir messó-
sópran, Gissur Páll Gissurar-
son tenór, Hallveig Rúnars-
dóttir sópran, Kristján Ingi
Jóhannesson bassi, Lilja Egg-
ertsdóttur sópran og Valgerður
Guðnadóttur sópran. Undirleik
annast Jónas Þórir en kynnir
á tónleikunum verður Jóhann
Sigurðarson leikari.
„Við erum ákaflega þakklát
þessu frábæra listafólki sem
hefur ákveðið að styrkja okkur
í að koma upp aðstöðu sem brýn
þörf er fyrir,“ segir Guðjón
Sigurðsson, formaður MND-
félagsins.
Tónleikarnir í Víðistaðakirkju
hefjast klukkan 17.00 laugar-
daginn 23. október. Forsala
aðgöngumiða er hafin á www.
midi.is og kostar miðinn 3.500
krónur.
Tónleikar til styrkar
MND-félaginu
KRISTJÁN OG FÉLAGAR Listafólkið á tónleikunum gefur vinnu sína og rennur allur
ágóði til MND-félagsins á Íslandi.