Fréttablaðið - 15.10.2010, Síða 70

Fréttablaðið - 15.10.2010, Síða 70
42 15. október 2010 FÖSTUDAGUR FÉSBÓKIN Sex gigg í þessari viku … Gam- an, gaman! Lengi lifi Airwaves! Lára Rúnarsdóttir, tónlistarkona. „Ég sagði nú einhvern tíma að það hefðu verið fegurðarsamkeppnir sem komu manni á bragðið með lambið,“ segir Baldvin Jónsson, verkefnastjóri hjá Bændasamtökunum. Baldvin hefur verið fenginn til að dæma í fegurðarsamkeppninni Miss Sinergy sem hefst í Washington í dag. Baldvin hefur unnið að markaðssetningu lambakjöts og annarra íslenskra matvæla undanfarin ár auk þess að koma að skipulagningu Food and Fun- hátíðar innar. Þá er hann ekki ókunnugur dómnefndar störfunum og var um árabil dómari í Ungfrú Ísland. „Ég átta mig ekki á hvers vegna ég var beð- inn um að taka þetta að mér en þetta er mik- ill heiður,“ segir Baldvin. „Keppnin er mikill viðburður hérna í borginni, þar sem er verið að fara að safna fjármunum fyrir brjósta- krabbameinsrannsóknir. Gríðarlega miklum fjármunum er safnað í kringum þessa miklu hátíð.“ Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Íslending- ur er á meðal dómara í keppninni, því eins og Fréttablaðið greindi frá í fyrra var fegurðar- drottningin og fyrirsætan Ingibjörg Egils- dóttir dómari í fyrra. Henni hefur verið boðið að vera sérstakur heiðursgestur í ár. En ætlarðu að gefa keppendunum að borða? „Nei, við erum ekki komin svo langt að við eigum fyrir því,“ segir Baldvin. „Það hefði verið mjög snjallt að hafa íslenskan mat á boðstólnum, en það gerist kannski á næsta ári.“ - afb Dæmir í bandarískri fegurðarsamkeppni DÓMARINN Baldvin Jónsson hefur unnið að markaðssetningu lamba- kjöts í Bandaríkjunum en vendir sínu kvæði í kross um helgina og dæmir í fegurðarsamkeppni. Hann fetar þar með í fótspor Ingibjargar Egilsdóttur, sem var dómari í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA „Þetta byrjaði eiginlega þegar ég var að taka viðtal við Jónas fyrir Kastljós. Við fórum að tala um hvað hamingjan er hættuleg. Jónas lýsti því yfir að hann væri svo hrifinn af Bollywood-myndum þar sem hamingjan er allsráðandi og mikilfengleg,“ segir Margrét Erla Maack fjölmiðlakona. Margrét er potturinn og pann- an á bak við myndband tónlist- armannsins Jónasar Sigurðsson- ar við eitt af vinsælustu lögum ársins, Hamingjan er hér. „Það vill svo skemmtilega til að ég hef kennt Bollywood-dansa í Kram- húsinu í mörg ár svo það lá bara beint við að ég tæki þetta að mér,“ segir Margrét en þetta er í fyrsta sinn sem hún stýrir tón- listarmyndbandi á eigin vegum og er bæði fyrir framan og aftan myndavélina. „Þetta var svakalega gaman og gekk ekkert smá vel. Við vöktum frekar mikla athygli dansandi á bumbunum um miðbæ Reykja- víkur í september,“ segir Margrét glöð í bragði og segir að stundum hafi fólk slegist í hópinn og viljað dansa með. „Við gátum til dæmis ekki notað skot sem við tókum úr Hallgrímskirkjuturni því það voru alltaf ferðamenn að koma og dansa með okkur.“ Margrét auglýsti eftir dönsur- um á Facebook og sumar stelp- urnar höfðu ekki dansað áður. „Ég kenndi þeim dansinn og svo var myndbandið tekið upp á einum degi. Við vorum svo góður hópur að vinna saman að þetta gekk eins og í sögu,“ segir Margrét og útilokar ekki að taka að sér leik- stjórn fleiri tónlistarmyndbanda í framtíðinni. - áp Magga Maack í nýju hlutverki FJÖLHÆF Margrét Erla Maack fjölmiðla- kona leikstýrði og lék í myndbandi tónlistarmannsins Jónasar Sigurðssonar sem kom út í vikunni. „Ég ætla aðeins að tékka á Bó,“ segir Ragnhildur Gísladóttir, sem verður einn af gestum Björgvins Halldórssonar á jólatónleikum hans í desember. Heil þrjátíu ár eru liðin síðan leið- ir þeirra lágu síðast saman í hinum smáa íslenska tónlistarbransa, við plötuna Dagar og nætur. Ragnhild- ur fór ekki fögrum orðum um sam- starfið við Björgvin í Poppbókinni eftir Jens Guð sem kom út 1983 og hefur því mörgum komið á óvart að sjá þau saman á auglýsingaplaköt- um fyrir jólatónleikana. Í bókinni er þetta haft eftir Ragnhildi: „Þetta átti að verða voða vinsælt pródúkt. Músíkin var leiðinleg og fílingur- inn milli okkar Bjögga var upp og niður. Við höfum svo ólíkan músík- smekk.“ Minnst var á ummæli Ragnhildar í ævisögu Björgvins sem kom út fyrir nokkrum árum. Ragnhildur viðurkennir að þau Björgvin hafi ekki alltaf verið sam- mála á þessum tíma en þau hafi þó langt í frá verið einhverjir erki- fjendur síðustu þrjátíu árin. Hún segir það engu að síður hafa komið sér dálítið á óvart þegar Björg- vin hafði samband við hana vegna jólatónleikanna. „Við höfum ekk- ert verið að vinna neitt saman eða verið í neinum samskiptum fyrr en núna. En það er ekki búinn að vera neitt vondur fílíngur eða neitt. Það hefur bara ekki verið neitt sam- band og allt í góðu með það. En við getum bæði verið svolítið stríðin. Það getur verið að það sé eitthvað sem fólk er að tala um,“ segir hún. Björgvin er ánægður með að Ragnhildur sé komin í lið með sér eftir öll þessi ár. „Hún var í Brim- kló um tíma og í framhaldi af því gerðum við plötuna Dagar og nætur, sem ég myndi segja að sé orðin hálfgerð klassík,“ segir hann en á henni eru slagararnir Ég gef þér allt mitt líf, titillagið Dagar og nætur og Fyrsta ástin. „Við gerðum þessa plötu og svo fór hún í Grýlurnar og svo í Stuðmenn. Það er sérstaklega gaman að fá hana til liðs við okkur. Við hlökkum mikið til að sjá hana því hún er ein af okkar bestu,“ fullyrðir hann. Spurður hvort samskipti þeirra hafi verið stirð í gegnum árin segir Björgin: „Nei, það hefur aldrei verið. Ekki af minni hálfu og ekki frá henni, held ég. Ég bara fór í eina átt og hún fór í aðra. Hún hefur ákveðið að mennta sig í tónsmíðum og það er bara æðislegt. Þessu sam- starfi lauk bara og það er frábært að fá hana í lið með okkur á þessum tónleikum. Hún bætir svo sannar- lega hópinn.“ freyr@frettabladid.is RAGNHILDUR GÍSLADÓTTIR: VIÐ VORUM EKKI ALLTAF SAMMÁLA Ragga Gísla og Bó starfa saman eftir þrjátíu ára hlé BJÖRGVIN OG RAGNHILDUR Björgvin Halldórsson og Ragnhildur Gísladóttir í september árið 1980, um svipað leyti og platan Dagar og nætur kom út. Núna, þrjátíu árum síðar, liggja leiðir þeirra saman á nýjan leik. Fös 15.10. Kl. 20:00 frums. Lau 16.10. Kl. 20:00 2. sýn Fös 22.10. Kl. 20:00 aukas. Lau 23.10. Kl. 20:00 3. sýn Lau 30.10. Kl. 20:00 4. sýn Sun 31.10. Kl. 20:00 5. sýn Fös 5.11. Kl. 20:00 6. sýn Lau 6.11. Kl. 20:00 7. sýn Fim 11.11. Kl. 20:00 8. sýn Fös 12.11. Kl. 20:00 Fös 19.11. Kl. 20:00 Lau 20.11. Kl. 20:00 Lau 16.10. Kl. 13:00 Lau 16.10. Kl. 15:00 Sun 17.10. Kl. 13:00 Sun 17.10. Kl. 15:00 Lau 23.10. Kl. 13:00 Lau 23.10. Kl. 15:00 Sun 24.10. Kl. 13:00 Sun 24.10. Kl. 15:00 Lau 30.10. Kl. 13:00 Lau 30.10. Kl. 15:00 Sun 31.10. Kl. 13:00 Sun 31.10. Kl. 15:00 Lau 6.11. Kl. 13:00 Lau 6.11. Kl. 15:00 Sun 7.11. Kl. 13:00 Sun 7.11. Kl. 15:00 Lau 13.11. Kl. 13:00 Lau 13.11. Kl. 15:00 Sun 14.11. Kl. 13:00 Sun 14.11. Kl. 15:00 Fös 15.10. Kl. 20:00 Lau 16.10. Kl. 20:00 Fim 21.10. Kl. 20:00 aukas. Fös 22.10. Kl. 20:00 Lau 23.10. Kl. 20:00 Fim 28.10. Kl. 20:00 Fös 29.10. Kl. 20:00 Lau 30.10. Kl. 20:00 Sun 31.10. Kl. 20:00 Fim 4.11. Kl. 20:00 Fös 5.11. Kl. 20:00 Lau 6.11. Kl. 20:00 Fim 11.11. Kl. 20:00 Fös 12.11. Kl. 20:00 Lau 13.11. Kl. 20:00 Sun 17.10. Kl. 19:00 Sun 24.10. Kl. 19:00 Þri 26.10. Kl. 19:00 Mið 27.10. Kl. 19:00 Fim 28.10. Kl. 19:00 Mið 3.11. Kl. 19:00 aukas. Sun 7.11. Kl. 19:00 Mið 10.11. Kl. 19:00 Sun 14.11. Kl. 19:00 Mið 24.11. Kl. 19:00 aukas. Fim 25.11. Kl. 19:00 aukas. Lau 11.12. Kl. 19:00 aukas. Sun 12.12. Kl. 19:00 aukas. Fim 21.10. Kl. 20:00 Fös 29.10. Kl. 20:00 Fim 4.11. Kl. 20:00 Lau 13.11. Kl. 20:00 Fim 18.11. Kl. 20:00 Aukas. Fös 26.11. Kl. 20:00 Fös 3.12. Kl. 20:00 U Ö Ö Ö Ö U U U Finnski hesturinn (Stóra sviðið) Fíasól (Kúlan) Hænuungarnir (Kassinn) Íslandsklukkan (Stóra sviðið) Gerpla (Stóra sviðið) Gildir ágúst 2010 til jún í 2011 úsk orti ð 1 OPIÐ KORT Gildir á Leik hús kor tið 201 0/2 011 ÁSK khusi d.is I midas ala@ le Leikhúsk ort 4 miðar á aðeins 9.900 kr. Ö U U U Ö U Ö Ö U Ö U U Ö Ö Ö Ö U Ö Ö U Ö Ö Ö U U U Ö U Ö U Ö U Ö Ö Ö Ö U Ö U U Ö Ö Ö Ö Ö Ö Spennandi saga um eldgamalt safn þar sem ekki er allt sem sýnist. Fyrsta bókin í nýjum bókaflokki eftir Sigrúnu Eldjárn. Ríkulega myndskreytt Hringdu í síma ef blaðið berst ekki

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.