Morgunn - 01.12.1922, Síða 49
M 0 R G U N N
143
Ein sú spurning, sem hver hugsandi maður, sem
fylgist með í hinu mikla rannsóknarstarfi dulrænna fyrir-
brigða, sem nú á tímum fer fram víðsvegar um heiminn,
leggur fyrir sjálfan sig, er þessi: Hvað hafa rannsókn-
irnar sannað? Er t. d. framhaldstilvera einstaklingsins
eftir líkarasdauðanu sönnuð? Höfum vér fengið sannanir
um það hvernig öðru lífi só háttað? o. s. frv. Þannig
spyrja nú margir. Ég ætla ekki að sinni að reyna til að
svara þessum spurningum, kera að þeim síðar, þótt í stuttu
máli verði. En eitt það fyrsta, sem verður fyrir oss, af
því sem vísindin viðurkenna að sálarrannsóknir nútímans
hafi sannað, er þetta: Þau telja paö sannað, að menn-
irnir geti, óháð tima og rúmi og án aðstoðar skilningarvit ■
anna, haft hein persónuleg áhrif hverjir á aðra. Aftui' á
móti eru skiftar skoðanir urn, á hvern hátt þetta eigi sér
stað. En bæði Sálarrannsóknafjelagið brezka, og mörg
önnur vísindafélög og einstakir menn hal’a safnað þeim
ókjörum af líkum fyrir því, að hin svokölluðu fjarhrif
eigi sér stað, að vísindamennirnir telja nú undantekning-
arlaust fjarhrifin visindalega sannaða staðreynd. Og það
er fróðlegt að athuga hvert þessi staðreynd ber oss. Að
vísu má með nokkrum rétti segja, að yfirleitt sé ekki unt
að færa algilda sönttun fyrir nokkrum sköpuðum hlut í
tilverunni, af þeirri einföldu ástæðu, að hugsunin, eins og
hún lýsir sér hjá raönnunum, er takraörkunum háð. Vér
getum ekki hugsað nokkra hugsun, sem gæti talist algild
undir öllum kringumstæðum, vegna þess, að hugsun vor
er aðallega fólgin í samanburði á því, sem inn í vitund
vora berst frá þeim umheimi, sem vér skynjum. Sönnun
er því í raun og veru ekki annað en sá l'jöldi af líkum,
sem mannshugurinn þarf að viða að sér, til þess að vér
getum í reyndinni gengið út frá þeim sem algildt'i sönn-
un. Þetta viðurkennir líka rökfræðin og hagar sór eftir
því, þegar liún er að prófa sig áfram með aðleiðslu- og
afleiðsluaðferð siuni og auðvitað viðurkennir hún og tak-
mörk þekkingarinnat'. Þessi takmörkun hinnar vísindalegu