Morgunn - 01.12.1929, Blaðsíða 4
130
MORGUNN
tista og flutt þar erindi, og alloft prédikar hann í einu af
samkomuhúsum spíritista í London, Grotrian Hall.
í bók sinni segir presturinn frá árangrinum af ellefu
ára rannsóknum sínum á fundum hjá miðlinum Mrs. Osborne
Leonard, sem talinn er einhver besti sannanamiðill í heimi.
Það, sem auðvitað gefur bókinni aðalgildi sitt, er hvað
mikið er þar af sönnunum, og þó segir höfundurinn, að
ekki sé nærri alt týnt til af því, sem hann eigi í fórum
sínum, þvi að það yrði altof mikið til þess að hægt væri
að prenta það í svona bók. Auk sannananna eru í bókinni
stórfróðlegir kaflar um, hvernig miðilsgáfunni og miðils-
ástandinu er háttað, og er mest af því bygt á umsögn
þeirra, sem hann hefir haft samband við. Þá er nijög mik-
ill hluti bókarinnar frásagnir um lífið hinumegin, sem eru
bæði fræðandi og ánægjulegir aflestrar.
Flestar ef ekki allar sannanirnar eru að dómi höfund-
arins svo óyggjandi, að hann er ekki í neinum vafa um,
að hann sé að tala við föður sinn, síra John D. Thomas
og systur sína, er heitir Etta; öll bókin er bygð á samtöl-
uin hans við þau tvö, en fáa eða enga aðra. Og eftir því,
sem hann þekti þau, meðan þau voru hér á jörðunni, sér
þann heldur ekki ástæða til, þegar hann er búinn að fá
vissu sína fyrir því, að það séu í raun og veru þau, sem
hann talar við, að rengja það sem þau segja honum.
Reyndar er honum mjög vel ljóst, að meira og minna
vantar á, að þau geti sagt honuin alt, sem þau vilja, eða
á þann hátt, sem þau óska að segja það. Faðir hans segir
einhversstaðar, að það, að koma frásögnum gegnum miðil,
sé líkt og að kasta möl í gegnum sigti: það smæsta fari
í gegn, hitt situr eftir. En sira Drayton Thomas veit hins-
vegar, að viljandi segja þau honum ekki nema það sann-
asta og réttasta um það, hvernig þau lifi, og hvað þau
hafi lært síðan þau fluttust yfir um.
Að því er sannanirnar snertir, leggur presturinn aðal-
áhersluna á endurminningasannanir, og á sannanirnar, sem
faðir hans og systir færa fyrir því, að þau fylgist með í
því, sem gerist í kringum hann. Kemur það einnig oft fyrir