Morgunn - 01.12.1929, Blaðsíða 106
232
MORGUNN
Dr. Martensen- Hr. Halldör Jónasson tekur það íram í
Larsen lýsir erindi því, sem prentað er eftir hann í
spiritismanum. þessu hefti, að leiðtogar spiritistisku
hreyfingarinnar úti um heiminn muni ekki kannast við, að
lýsing dr. Martensen-Larsens á þeirri hreyfingu sé rétt.
Mér finst ekki ástæðulaust, að hér sé bætt fáeinum at-
hugasemdum við þá hárréttu staðhæfing H. J.
Hjáguðadýrkun Dr. Martensen-Larsen telur þá tilhneiging
og sannur að sleppa sjálfstæði sínu og falla fram í
heiðindómur. tilbeiðslu og aðdáun, ef menn sjá eitt-
hvað dulrænt, hina eiginlegu hjáguðadýrkun, hinn sanna
heiðindóm. Það er vitanlega illa til fundið að sleppa sjálf-
stæði sínu, hvort sem það er einhver gömul bók eins og
biblían, sem kemur manni til þess, eða kenningar einhverr-
ar kirkju eða einhver vera úr ósýnilegum heimi, eða eitt-
hvað annað. Um hitt er eg ekki jafn-sannfærður, að til-
beiðslan og aðdáunin að æðri máttarvöldum og tilverunni
sé að sjálfsögðu vondur heiðindómur, þó að það sé eitt-
hvað dularfult, sem verður til þess að vekja þetta. En um
spíritismann er það að segja, að ef menn vilja nefna hannj
trúarbrögð, eða að svo miklu leyti, sem rétt kann að vera
að telja hann það, þá hefir áreiðanlega engum trúarbrögð-
um veraldarinnar verið veitt viðtaka af jafn-mikilli gagn-
rýni og jafn-miklu sjálfstæði eins og honum.
í mínum augum er mjög hæpið að tala
um spíritismann sem nokkur sérstök trúar-
brögð. Hvaða boðskapur er það, sem hann
flytur? Hann flytur sannanir fyrir þvi, að mennirnir lifi
eftir andlátið. Önnur trúarbrögð fullyrða það. Hann flytur
sannanir fyrir því, að mennirnir séu gæddir öðrum hæfi-
leikum en þeim, sem að jafnaði koma fram í daglegu lífi.
Sú skoðun er ekkert nýtt. Hann flytur sannanir fyrir því,
að oss sé unt að ná sambandi við verur á öðrum tilveru-
stigum. Mennirnir hafa alt af öðru hvoru verið að fullyrða
það. Og hann flytur nokkura fræðslu, sem grundvölluð er
á sönnunum, um næsta tilverustigið, sem bíður vor eftir
jarðlifið. Slíka fræðslu hafa menn alt af verið að reyna að
Boðskapur
spiritismans.