Morgunn - 01.12.1929, Qupperneq 9
MORÖUNN
135
hafi fengist við rannsóknir sínar, hafi hann aldrei fundið
neitt, sem gat bent til þess, að þeir vinir hans, sem hann
hafi átt tal við, væru aðrir en þeir segðust vera. Ef hann
hefði komist að raun um, að alt, sem miðillinn hafi haft að
segja honum, hafi ýmist verið runnið úr hans eigin vitund,
eða fengið annarsstaðar að, segist hann alls ekki mundu
hafa fengist við þessar rannsóknir allan þennan tíma.
Áður en ég fer út í að segja frá því, sem skýrt er frá
i bókinni um lífið hinum megin, ætla eg að minnast stutt-
lega á aðalefnið úr þeim köflum, þar sem síra Drayton
Thomas gerir iniðilshæfileikann og miðilsástandið að um-
talsefni. Þeir kaflar eru mjög fróðlegir, en því miður verð-
ur óhjákvæmilegt að stytta þá töluvert.
Hann er ekki í neinum vafa um það, að miðilsástand-
ið sé háð ákveðnum lögmálum, ogálítur hann, að það, sem
fyrst og fremst þurfi að gera, sé að komast fyrir um þau
lögmál, að svo miklu leyti sem hægt er, og það, hvort sem
menn fallast á, að framliðnir menn stjórni miðlinum, eða
eitthvað annað standi þar að baki.
Það, sem hann segir um þetta efni, byggist á viðtöl-
um við Fedu, sem er aðalstjórnandi Mrs. Leonard, og einnig
á því, sem faðir hans og systir hafa skýrt honum frá. Tel-
ur hann flest af því, sem sagt er, eigi við trancemiðla
yfirleitt.
Áður en síra Drayton Thomas byrjaði rannsóknir sínar,
hallaðist hann helzt að þeirri skoðun, að stjórnendur mið-
ilsins væru ýmsar hliðar á draumalífi hans, eða hluti af
persónuleika miðilsins. Reynslan færði honum heim sann-
inn um, að svo var ekki. Bæði héldu þeir, sem hann hafði
samband við, hinu gagnstæða fram, og svo gerði hann alls-
konar tilraunir, sem sönnuðu algerlega, að þeir voru ein-
staklingarnir, sem þeir kváðust vera. En að »Feda«, »faðir
hans« og »systir hans« séu aðeins klofningur eða hluti af per-
sónuleika Mrs. Leonard, slíkt finnur enga stoð í reynslu hans.
Þau tala hvort um annað rétt eins og við gerum um þá, sem
við erum með. Feda sjálf er, eins og kunnugt er, útlend
(indversk), og talar því bjagað og rangt mál, einkum þegar